Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heldur flugeldasýningu fyrir fangana á Litla Hrauni Róbert Guðmundsson íbúi á Eyrarbakka hefur skotið upp flugeldum fyrir fangana á Litla Hrauni undanfarin þrjú ár. Sýningin sem var pínulítil í upphafi hefur farið stækkandi og verður hin glæsilegasta annað kvöld. 30.12.2008 14:43
500 e-töflur í Hlíðunum Um 500 e-töflur voru haldlagðar í húsi í Hlíðunum um síðustu helgi. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að karlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn í tengslum við málið sem er rannsakað í samvinnu við rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri. 30.12.2008 14:25
Brennur um alla borg, nema á Ártúnsholtinu Vel gengur að safna í bálkesti fyrir áramótin og að sögn Jóns Bergvinssonar, brennukóngs og rekstrarfulltrúa á hverfastöð Framkvæmda- og eignasviðs er búið að loka fyrir móttöku á flestar þeirra sem eru í umsjá Reykjavíkurborgar. 30.12.2008 14:16
Síðasti sjéns til þess að fá sér Burger King á Íslandi Hamborgarastaðurinn Burger King mun loka eftir daginn í dag. Framkvæmdarstjórinn segir að um rekstrarhagræðingu sé að ræða en nýr staður með nýju nafni verður opnaður strax eftir áramót. Burger King hefur verið á tveimur stöðum í Reykjavík að undanförnu, en staðurinn opnaði fyrst árið 2004. 30.12.2008 14:10
Aldrei meira tekið af hassi en í ár Um 14 þúsund hegningarlagabrot voru framin á árinu ef marka má bráðabirgðatölur frá Ríkislögreglustjóra. Brotum hefur fjölgað um sjö prósent frá síðasta ári og um tæp fjögur prósent frá árinu 2006. Árið 2004 var þó sýnu verst í þessu sambandi en þá voru hegningarlagabrot um 16.500. Fjöldi umferðarlagabrota var um 55.500 á árinu sem er svipaður fjöldi og árið 2004 en síðustu ár hafa þau verið um 50 þúsund að meðaltali. 30.12.2008 14:04
Óvenju mikil frjósemi á Vestfjörðum í ár Fæðingum á fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði hefur fjölgað mjög í ár. Fréttavefurinn Bæjarins besta segir 72 börn hafa komið í heiminn það sem af er ári, en þau voru 47 í fyrra. 30.12.2008 13:58
Safna klinki í styrktarsjóð Rauði krossinn og Iceland Express hafa stofnað sameiginlegan styrktarsjóð fyrir fólk með geðraskanir. Fyrsti hópurinn fer á fótboltaleik í Bretlandi í janúar. 30.12.2008 13:44
Ekki búið að ákveða hvort staða bankastjóra verði auglýst Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort bankastjórastaða Nýja Glitnis verði auglýst. Birna Einarsdóttir var skipuð bankastjóri skömmu eftir yfirtöku ríkisins á bankanum en þá var staðan ekki auglýst. Ekki náðist í stjórnarformenn hinna bankanna. 30.12.2008 13:44
Lán til Orkuveitunnar frosin Evrópskir bankar neita að afgreiða lán til Orkuveitu Reykjavíkur fyrr en ástandið lagast á Íslandi. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir að besti möguleikinn í spilunum til að höggva á hnútinn sé að koma álversframvæmdum í gang í Helguvík. 30.12.2008 12:15
Geir útilokar ekki að falla frá málssókn á hendur Bretum Forsætisráðherra útilokar ekki að íslensk stjórnvöld falli frá málsókn á hendur Bretum til að tryggja betri lánskjör vegna Icesave málsins. Hann segist þó ekki vilja blanda þessum málum saman. 30.12.2008 12:12
Galopin kröfuganga á gamlársdag Enn bætist í mótmælaflóruna. Galopna kröfugangan verður farin á gamlársdag, í þetta sinn undir nafninu Ógöngur 2008. 30.12.2008 11:55
Steingrímur vill fund í utanríkismálanefnd strax Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, hefur óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd svo fljótt sem því verður við komið vegna ástandsins á Gasa og til að fara yfir stöðu mála í deilunni vegna Icesave-reikninganna og hvar málarekstur gegn Bretum er á vegi staddur. 30.12.2008 11:33
Tveimur í viðbót sagt upp hjá Kaupþingi Líkt og fram kom í fréttum í gærkvöldi sagði Kaupþing upp þremur yfirmönnum bankans í gær. Tveir í viðbót hafa nú bæst í þann hóp en það eru Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi og Jónas Sigurgeirsson forstöðumaður samskiptasviðs bankans. Jónas segist skilja sáttur við bankann eftir níu ára starf. 30.12.2008 11:28
UVG vilja alþjóðlegt viðskiptabann á Ísrael „Ung vinstri græn fordæma grimmdarverk Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni og taka undir kröfu félagsins Íslands-Palestínu um að öllum stjórnmálasamskiptum Íslands við Ísraelsríkis verði hætt þar til það lætur af grimmdarverkum sínum,“ segir í ályktun Ungra vinstri grænna þar sem framferði Ísraelsmanna á Gaza er fordæmt. 30.12.2008 10:32
Búist við fjölmennasta sjósundi frá upphafi á nýársdag Á nýársdag verður opið á Ylströndinni milli kl. 11 - 13 og er nokkuð stór hópur sem stefnir að því að synda sjósund um kl. 11:20. 30.12.2008 10:30
Slysabætur og sjúkradagpeningar hækka Bætur slysatrygginga almannatrygginga og sjúkradagpeningar hækka um áramótin samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, gaf reglugerðina út í dag og hækka fjárhæðir slysatryggingabóta almannatrygginga um 9,6% frá 1. janúar 2009. 30.12.2008 09:48
Bílbelti gætu fækkað banaslysum um 20% Talið er að fækka mætti banaslysum í umferðinni um 20% og alvarlegum umferðarslysum verulega ef allir notuðu bílbelti. 30.12.2008 09:39
Framferði Ísraelsmanna mótmælt á Lækjartorgi Boðað hefur verið til útifundar til að mótmæla blóðsúthellingunum á Gaza á Lækjartorgi í dag, þriðjudaginn 30. desember klukkan fjögur. Fundurinn krefst þess að fjöldamorð Ísraelshers á Gaza verði stöðvuð og að Íslendingar slíti stjórnmálasambandi við Ísrael. 30.12.2008 09:36
Innbrot og brunar á höfuðborgarsvæðinu Töluverður erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Tilkynnt var um þrjú innbrot. Brotist var inn í Golfskálann í Garðabæ og í tvær flugeldasölur, aðra á Suðurlandsbraut og hina í Skeifunni. 30.12.2008 07:23
Vestmannaeyjahöfn full af síld Mjög mikið af síld er nú inni á höfninni í Vestmannaeyjum. Menn á vegum Hafrannsóknarstofnunar hafa verið á staðnum og tekið sýni úr síldinni til að kanna meðal annars hvort hún er sýkt eða ekki. 30.12.2008 07:22
Leiguverð stærri íbúða lækkaði á árinu Samkvæmt nýrri könnun Neytendasamtakanna hefur húsaleiga á stærri íbúðum lækkað töluvert á höfuðborgarsvæðinu í ár eða um rúmlega 18%. 30.12.2008 07:16
Ráðherra gefur út reglugerðir um hækkun styrkja og bóta Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur gefið út reglugerðir um hækkun bóta, styrkja og frítekjumarka fyrir næsta ár. 30.12.2008 07:13
Nauðgaði fósturdótturinni tvisvar til þrisvar í viku í þrjú ár Líkt og Vísir greindi frá í gærkvöldi var karlmaður um fertugt dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í gær fyrir að misnota fósturdóttur sína. Í dómnum kemur m.a fram að maðurinn hafði samræði við stúlkuna tvisvar til þrisvar sinnum í viku frá því hún var ellefu ára þar til hún var fjórtán ára gömul. Maðurinn neitaði sök allan tímann. Lögmaður mannsins býst fastlega við að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. 30.12.2008 03:00
Átta ára fangelsi fyrir að misnota fósturdóttur sína Karlmaður um fertugt var í dag dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að misnota fósturdóttur sína á þriggja ára tímabili. Manninum var einnig gert að greiða stúlkunni 3 milljónir í skaðabætur. 29.12.2008 18:16
Grunur um að fjórtán ára stúlku hafi verið nauðgað Grunur leikur á að fjórtán ára stúlkubarni hafi verið nauðgað í húsi í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kærði móðir stúlkunnar málið um miðjan desember. 29.12.2008 21:26
Silja og Ragnar Ingi íþróttamenn Hafnarfjarðar Mikið fjölmenni var á íþróttahátíð Hafnarfjarðar í íþróttahúsinu við Strandgötu í dag þar sem Silja Úlfarsdóttir frjálsíþróttakona úr FH og Ragnar Ingi Sigurðsson skylmingamaður úr FH voru krýnd Íþróttamenn Hafnarfjarðar. Þetta er í fyrsta skiptið sem "Íþróttakona og Íþróttakarl Hafnarfjarðar" eru valinn, en síðustu tuttugu og fimm árinn hefur verið valinn "Íþróttamaður Hafnarfjarða". 29.12.2008 20:52
Sprengja sex til sjö hundruð tonn af flugeldum Bardagatertur, skotkökur og risatertur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna meðal almennings og því er líklegt að víða standi tómir tertukassar á nýársdagsmorgni. Mælst er til þess að kaupendur flugelda fari sjálfir með umbúðir og aðrar skotleifar í endurvinnslustöðvar Sorpu. 29.12.2008 20:31
Stöðvið fjöldamorðin á Gazaströnd Félagið Ísland Palestína hefur boðað til útifundar vegna fjöldamorðanna á Gazaströnd á Lækjartorgi klukkan 16:00. Ögmundur Jónasson alþingismaður mun meðal annars halda ræðu á fundinum. 29.12.2008 20:26
Rolf Johansen reisir átöppunarverksmiðju á Hornafirði Í dag undirrituðu þeir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar og Atli Kristjánsson, fh. Rolf Johansen Co ehf., samning um að byggja upp starfsemi á átöppun á vatni frá Hornafirði. 29.12.2008 20:00
Þrír framkvæmdarstjórar hjá Kaupþingi láta af störfum Þrír framkvæmdastjórar Kaupþings létu af störfum í dag. Þetta staðfesti Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir. 29.12.2008 19:09
Skattalækkun fyrir meirihluta launþega Mikil hækkun persónuafsláttar, upp í rúmlega 42 þúsund krónur á mánuði, þýðir skattalækkun fyrir meginþorra launþega nú um áramótin, og það umtalsverða fyrir þá tekjulægstu. 29.12.2008 19:02
Helguvík skrefi nær Álver í Helguvík er að komast á beinu brautina á ný með endurnýjuðum samningum Norðuráls við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja í dag og fjárfestingarsamningi við stjórnvöld. 29.12.2008 18:53
Íslenskir iðnaðarmenn á unglingataxta í Danmörku Íslenskum iðnaðarmönnum býðst nú að starfa erlendis á kjörum sem teljast undirboð og eru sambærileg þeim sem pólskum og portúgölskum starfsmönnum bauðst hérlendis. Formaður Samiðnar hvetur engan til að freista gæfunnar utan landsteinanna án þess að vera með tryggt atvinnutilboð í vasanum. 29.12.2008 18:26
Nýi Glitnir lánar húsnæði til Nýsköpunar Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýi Glitnir undirrituðu í dag samning um rekstur nýs viðskiptaseturs í húsnæði Nýja Glitnis í Lækjargötu. Nýi Glitnir leggur til tvær hæðir í húsnæði bankans í Lækjargötu 12 en rekstur setursins verður í höndum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. 29.12.2008 17:23
Leiguverð fer lækkandi Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað frá því í apríl ef marka má nýja könnun sem Neytendasamtökin hafa birt á heimasíðu sinni. Í fyrsta tölublaði ársins 2008 frá því í apríl var leigumarkaðurinn kannaður og þótti mönnum þar á bæ tilvalið að endurtaka leikinn í árslok. Þar kom í ljós að allar tegundir íbúða hafa lækkað, fimm herbergja sýnu mest, eða um 18,5 prósent ef miðað er við meðalverð. 29.12.2008 16:41
Tvær flugeldasýningar í kvöld Höfuðborgarbúum er boðið upp á tvær stórar flugeldasýningar í kvöld. Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu verða með sýningu við Perluna klukkan 19:00 og Björgunarsveit Hafnarfjarðar verður við Hafnarfjarðarhöfn með sýningu í tilefni af 100 ára afmælis Hafnarfjarðarbæjar á árinu. 29.12.2008 15:39
Konur algengara slúðurefni en karlar Konur eru umfjöllunarefni í 22,5% frétta sem birtast á fréttavefjunum mbl.is og visir.is en karlar í 77,5%. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar Kristínar Ásu Einarsdóttur, sem skrifaði BA ritgerð í félagsfræði um kynjahlutfall og birtingarmyndir kynjanna í vefmiðlum. 29.12.2008 15:22
Vill afnema leynd á orkuverði til Norðuráls Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur afgreiddi í dag samning á orkusölu til Norðuráls vegna álvers í Helguvík. Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi VG, í stjórninni vill að verðið á orkunni verði gert opinbert, en tillage þess efnis var felld á stjórnafundinum í morgun. Svandís yfirgaf þá fundinn eftir að hafa lagt fram bókun um málið. 29.12.2008 15:13
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um jólin Tuttugu prósent fleiri erlendir ferðamenn voru hér á landi um jólin nú en í fyrra samkvæmt tölum Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin reikna þó með að heldur færri ferðamenn verði á landinu yfir áramótin en voru í fyrra. Um 3300 manns eiga bókaða gistingu á hótelum og gistiheimilum í Reykjavík um áramótin. Í fyrra dvöldu 3600 ferðamenn á gististöðum yfir áramótin, en það var metár hvað varðar fjölda ferðamanna. 29.12.2008 14:07
Auðveldara að flokka sorpið í framtíðinni Grenndargámakerfi SORPU hefur verið breytt á þann veg að flokkun sorps hefur verið gerð auðveldari. Frá áramótum verður blái gámurinn nýttur undir pappír og pappírsumbúðir og sá græni undir plastumbúðir. 29.12.2008 13:37
Skip frá Samskipum í vandræðum í Rotterdam Hvassafell, leiguskip Samskipa, lenti í erfiðleikum í höfninni í Rotterdam í Hollandi í gær þegar verið var að afferma skipið. Kom í ljós að talsverður sjór hafði komist í eina lest skipsins þar sem meðal annars voru gámar sem innihalda efnið „Aluminium Dross", sem við snertingu við vatn hvarfast og veldur þá hita og jafnvel íkveikju. 29.12.2008 13:20
Gott flugeldaveður um mestallt land „Það viðrar vel til sprenginga. Og þá sérstaklega á útrásarvíkingum,“ segir Sigurður „Stormur“ Ragnarson veðurfræðingur. Hann býst við fyrirtaks flugeldaveðri á gamlárskvöld, hæglætisveðri og léttskýjuðu með hita í kringum frostmark. 29.12.2008 13:18
Halldór Ásgrímsson á gjörgæsludeild Halldóri Ásgrímssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Þar hefur hann verið í tæpa viku. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis er Halldór á batavegi en hann veiktist af lungnabólgu fyrr í mánuðinum. 29.12.2008 12:17
Persónuafsláttur hækkar verulega Persónuafsláttur hækkar nú um áramótin um rúmlega átta þúsund krónur á mánuði og fer í liðlega 42 þúsund krónur. 29.12.2008 12:07
Stika tugi kílómetra gönguleiða í Mosfellsbæ Tæpir sjötíu kílómetrar gönguleiða verða á næstu misserum stikaðir í nágrenni Mosfellsbæjar, auk þess sem upplýsingaskilti og nestisskýli verða sett upp. Mosfellsbær og skátafélagið Mosverjar hafa undirritað samning um að hinir síðarnefndu annist stikunina og skipulagningu. 29.12.2008 12:03