Fleiri fréttir

Aðgerðir Breta gegn Landsbanka ræddar á Evrópuþinginu

Aðgerðir breskra stjórnvalda gegn Landsbankanum í Bretlandi verða teknar til umræðu hjá Evrópuráðsþinginu. Í tilkynningu frá Alþingi segir að á fundi framkvæmdastjórnar Evrópuráðsþingsins í dag hafi verið samþykkt beiðni þingmannasendinefndar Íslands um að taka til umræðu á stjórnarnefndarfundi Evrópuráðsþingsins, sem fer fram á morgun, aðgerðir breskra stjórnvalda gagnvart íslenskum bönkum þar í landi og tilheyrandi yfirlýsingar breskra ráðamanna í fjölmiðlum.“

Orkuveitan heiðrar hugvitskonur

Í dag hlutu tvær hugvitskonur viðurkenningu Orkuveitu Reykjavíkur og KVENN, félags kvenna í nýsköpun, fyrir framlag þeirra til nýsköpunar. „Það voru þær Guðrún Guðrúnardóttir og Margrét Ragnarsdóttir, sem tóku við viðurkenningunum úr hendi Guðlaugs G. Sverrissonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur við athöfn í höfuðstöðvum fyrirtækisins," segir í tilkynningu frá OR.

Vegagerðin vill 2 + 1 veg yfir Hellisheiði

Áform um að fjármagna tvöföldun Suðurlandsvegar með einkaframkvæmd eru í algerri óvissu eftir hrun lánsfjármarkaða. Vegamálastjóri segir að vegna efnahagsástands ætti að skoða að leggja tveir plús einn veg til Hveragerðis en vill að kaflinn þaðan til Selfoss verði tveir plús tveir.

Skilaskylda sett á gjaldeyri

Það á ekki að fleyta krónunni að fullu eins og við var búist og áfram verða einhver gjaldeyrishöft. Þetta kom fram í viðtali við Björgvin G. Sigurðsson, iðnaðarráðherra í Íslandi í dag, en hann mælir fyrir frumvarpi um gjaldeyrisviðskipti á þingi í kvöld. Þá stendur einnig til að setja skilaskyldu á útflytjendur til þess að tryggja að gjaldeyrir sem fæst fyrir íslenskan varning skili sér til landsins.

Þolinmæðin á þrotum

Þolinmæði okkar er á þrotum og nú verður að stokka upp í ríkisstjórn, seðlabankanum og fjármálaeftirlitinu, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Leyniskýrslur um Drekasvæðið afhjúpaðar

Orkustofnun tilkynnti í dag að leynd hefði verði aflétt af nærri tuttugu ára gömlum rannsóknarskýrslum sem sýndu fram á olíu og gas á Drekasvæðinu. Leynd var höfð yfir skýrslunum að ósk norskra stjórnvalda en einnig vegna þess að þær voru taldar verðmæt söluvara til olíufélaga.

Tæp sextíu prósent vilja flýta kosningum

Tæp sextíu prósent landsmanna vilja kjósa til Alþingis í vetur eða í vor ef marka má skoðannakönnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir vefritið Smuguna. Um er að ræða netkönnun sem gerð var á vikutímabili 20. nóvembert til 27. nóvember. Úrtak var 1100 manns hvaðanæva að á landinu og á aldrinum 18 til 75 ára.

Dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í 8 mánaða fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni og tvo húsbrot hjá henni, sem áttu sér stað á tímabilinu janúar 2005 til mars 2006. Konan hlaut minniháttar meiðsl í árásunum.

Færeysk fiskiskip grunuð um ólöglegar veiðar

Tvö færeysk fiskiskip eru grunuð um að hafa veitt ólöglega í íslenskri lögsögu. Ákæruvaldið í Færeyjum rannsakar málið. Rökstuddur grunur er um að skipin hafi veitt innan íslenskrar lögsögu með slökkt á fjareftirlitsbúnaði sem sýnir hvar skipin eru stödd. Einnig að skipstjóri annars skipsins kastað siglingartölvu þess í sjóinn á leið í land.

Níu mánaða fangelsi fyrir að hóta og kýla lögreglumann

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms yfir 25 ára gömlum karlmanni sem rauf skilorð með því að hóta og kýla lögreglumann árið 2005. Héraðsdómur hafði áður dæmt hann í níu mánaða fangelsi sem maðurinn áfrýjaði til Hæstaréttar. Honum var einnig gert að greiða áfrýjunarkostnað og kostnað verjanda síns, um 500.000 krónur.

Þrjú og hálft ár fyrir nauðgun

Hæstiréttur staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir Gunnari Rúnari Gunnarssyni. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Gunnar í desember í fyrra fyrir tvö skjalafalsmál, umferðarlagabrot og nauðgun,

Vinstri beygja frá Bústaðavegi lögð niður

Borgarráð samþykkti í dag að loka til reynslu í sex mánuði vinstri beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut í Elliðaárdal. Breytingunni er ætlað að draga úr álagi við gatnamótin og verður á reynslutímanum kannað hvort biðraðir á annatíumum styttist.

Kynbundinn launamunur er 19,5 prósent

Kynbundinn launamunur á heildarlaunum, þegar tekið hefur verið tillit til vinnutíma, starfs, menntunar, aldurs, atvinnugreinar, ábyrgðar í starfi og hvort fólk er sjálfstætt starfandi eða launþegar, er 19,5%, samkvæmt launarannsókn, sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir félagsmálaráðuneyti. Þetta kemur fram á heimasíðu Jafnréttisstofu.

Skortur á bílum til útflutnings

Svo vel hefur gengið að selja bíla á Evrópumarkað að Höfðahöllin og Diesel.is hyggjast ráðast í sérstakt markaðsátak til að fá fleiri bíla á skrá hjá sér. Hlynur Gylfason, hjá Höfðahöllinni, segir að bílarnir séu fluttir til Þýskalands en séu síðan seldir um alla Evrópu. Hann segir fyrirtækið þurfa fleiri bíla á skrá.

Opið allan sólarhringinn í Hagkaupi

Hægt verður að versla jólagjafirnar, steikina og skrautið um miðjar nætur í desember. Verslun Hagkaups í Skeifunni verður opin allan sólarhringinn frá og með deginum í dag og fram að jólum hið minnsta.

Séð og heyrt mátti ekki birta mynd af Tarantino

Alti már Gylfason blaðamaður Séð og heyrt og Birtíngur útgáfufélag ehf voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd til þess að greiða Ingu Birnu Dungal 180.000 krónur ásamt vöxtum. Einnig voru hvor um sig gert að greiða 80.000 krónur í sekt til ríkissjóðs ásamt 600.000 krónum í málskostnað.

Lýsir vanþóknun yfir leynd, spillingu og græðgi meirihlutans

Ólafur F. Magnússon, fyrrum borgarstjóri, lýsir yfir vanþóknun sinni á þeirri leynd, spillingu og græðgi sem einkenna störf borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þetta kemur fram í bókun sem Ólafur lagði fyrir í borgarráði í dag.

Strætófarþegum fjölgar í kreppunni

Merkja má fjölgun á farþegum hjá Strætó á álagstímum að undanförnu og telur Jórunn Frímannsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs. að rekja megi fjölgunina til efnahagsástandsins.

Heimdallur vill mannabreytingar í Seðlabankanum

Von er á yfirlýsingu frá stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, síðar í dag. Þar er þeim tilmælum meðal annars beint til Ríkisstjórnarinnar að mannabreytinga sé þörf í Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu.

Varað við ferðalögum til Taílands

Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum frá ferðalögum til Taílands vegna mótmæla og átaka að undanförnu. Þeim sem nú eru í landinu er ráðlagt að halda sig fjarri mótmælaðgerðum.

Allt að 2 ára fangelsi óhlýðnist fólk rannsóknarnefndinni

Það varðar allt að 2 ára fangelsi að neita að gefa upplýsingar, spilla gögnum eða gefa villandi upplýsingar fyrir rannsóknarnefnd um bankahrunið samkvæmt frumvarpi um sérstaka rannsóknarnefnd sem Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, mælti fyrir í morgun.

Á brjóstunum á leið til Bandaríkjanna

Tvær léttklæddar og föngulegar stúlkur frá bandarísku dýraverndarsamtökunum PETA eru komnar til Íslands til þess að krefjast mannúðlegrar meðferðar á dýrum og hvetja fólk til þess að klæðast ekki dýrafeldi

Ekki flatur niðurskurður í heilbrigðiskerfinu

Tveir ráðherrar fullyrtu á Alþingi í morgun að ekki yrði flatur 10 prósenta niðurskurður í heilbrigðiskerfinu, þrátt fyrir nýleg tilmæli fjármálaráðuneytis um að lækka útgjöld sem því nemur.

Útifundur ASÍ færður inn vegna veðurs

Vegna veðurs hefur fyrirhugaður útifundur ASÍ og stéttarfélaganna á höfuðborgasvæðinu verið færður inn í Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Fundurinn hefst kl. 17 eins og áður hafði verið auglýst. Ræðumenn verða Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Sigurður Bessason formaður Eflingar og Finnbjörn A. Hermannsson formaður Samiðnar. Fundarstjóri verður Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti ASÍ. Tríóið Guitar Islancio mun leika nokkur lög fyrir fundinn.

Borgin styður Alþjóðahúsið í eitt ár

Borgarráð Reykavíkur samþykkti á fundi sínum í morgun að gera þjónustusamning við Alþjóðahús til eins árs. Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar hefur verið falið að sjá um samningsgerðina af hálfu borgarinnar.

Rætt um rannsóknarnefnd Alþingis

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, mælti í morgun fyrir frumvarpi um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna. Frumvarpið er lagt fram af forseta Alþingis og formönnum allra stjórnmálaflokka sem eiga þar sæti.

Guðlaugur og Ögmundur svara spurningum í spreng

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Ögmundur Jónasson þingflokksformaður VG munu svara spurningum í spreng á almennum stjórnmálafundi í Öskju í Vatnsmýrinni í kvöld.

Örlög SkjásEins eru nú í höndum stjórnvalda

Skjánum mun takast að endursemja við birgja um greiðslur og sýningarrétt og spara þannig umtalsverðar fjárhæðir. Þá hafa yfir 55 þúsund Íslendingar undirritað áskorun til menntamálaráðherra og ríkisstjórnar Íslands um að leiðrétta ójafnt samkeppnisumhverfi einkarekinna sjónvarpsstöðva. Verða Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra afhentar þessar undirskriftir við fyrsta tækifæri.

Skortir konur í utanríkisþjónustuna

Það er of mikið af sendiherrum í eldri kantinum starfandi í utanríkisþjónustunni. Yngra fólk þarf að fá aukin framgang þar. Auk þess þarf að fjölga konum.

Verslunarmiðstöð í Vestmannaeyjum

Í morgun klukkan 10:00 opnaði verslunin Flamingó í nýju húsnæði en verslunin hefur verið rekin svo árum skiptir að Heiðarvegi 6.

Íslendingarnir enn fastir í Bangkok

Íslendingarnir sem lentu í hrakningum í Taílandi vegna mótmælaaðgerða gegn ríkisstjórn landsins sitja enn fastir þar. Holberg Masson, einn Íslendinganna, sagði í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í morgun að það yrði ekki flogið í dag en hugsanlega á morgun.

Segir hina ,,ábyrgu" vantreysta þjóðinni fyrir kosningum

,,Þau hin ábyrgu telja að engir flokkar nema Samfylking og Sjálfstæðisflokkur geti fundið lausn á vanda þjóðarinnar. Það kemur kannski ekki á óvart að allt þetta fólk sem telur sig svo ábyrgt er annað hvorhvort í Samfylkingunni eða Sjálfstæðisflokknum og sæmilega miðaldra," segir Valgerður Bjarnadóttir í grein í Morgunblaðinu í dag bætir við að hún sé í Samfylkingunni, sæmilega miðaldra og telji sig ekki vera óábyrga.

Vísitala framleiðsluverðs hækkar á milli mánaða

Vísitala framleiðsluverðs í október 2008 var 186,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 12,7% frá september. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 226,0 stig, sem er hækkun um 20,3% (vísitöluáhrif 6,5%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 249,1 stig, hækkaði um 14,7% (4,1%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 3,4% frá september (0,6%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 6,3% (1,5%).

Hækkun og lækkun hjá ÁTVR

Verðbreyting, sem er að meðaltali 4,38% til hækkunar, tekur gildi í Vínbúðunum í dag. Verð breytist á 1023 tegundum af þeim 1706 tegundum áfengis sem eru í boði í Vínbúðunum, 160 tegundir lækka í verði, 863 hækka en verð verður áfram óbreytt á 683 tegundum.

Togari á leið í brotajárn sökk

Gamall 250 tonna togari, sem síðast hét Guðrún Björg, sökk í nótt þegar togarinn Gréta, sem áður hét Margrét, var að draga hana mannlausa til Aberdeen í Skotlandi, þar sem hún átti að fara í brotajárn.

Hvassviðri og snjókoma á Vestfjörðum

Hvassviðri hefur verið á Vestfjörðum í nótt og nokkuð snjóaði á norðanverðum fjörðunum. Þar er farið að draga í skafla og er verið að ryðja helstu götur á Ísafirði.

Handtekinn eftir innbrot í bíla

Lögreglan á Akureyri handtók í nótt sautján ára pilt, eftir að hann hafði farið inn í nokkra ólæsta bíla í leit að verðmætum.

Draugasíld?

Íslenska vorgotssíldin virðist vera gengin aftur, eftir að ekkert hefur veiðst af henni hér við land í mörg ár og sjómenn voru búnir að afskrifa hana með öllu.

Rúmlega hundrað sagt upp og verslunum lokað hjá Húsasmiðjunni

Húsasmiðjan hefur sagt upp rúmlega 100 starfsmönnum sínum og ákveðið hefur verið að loka tveimur verslunum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundum í kvöld. Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjunnar segir ástandið á byggingavörumarkaði afar slæmt og að það eigi eftir að versna enn frekar. Hann segist þó vongóður um að Húsasmiðjan standi þetta af sér.

Frumvarpi um rannsóknarnefnd dreift á þingi

Frumvarp til laga um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna hefur verið dreift til þingmanna. Forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, mun flytja frumvarpið á morgun en flutningsmenn þess eru formenn allra flokka á Alþingi.

Sjá næstu 50 fréttir