Fleiri fréttir

Norðmenn tilbúnir að miðla málum í deilu Íslendinga og Breta

Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, segir Norðmenn tilbúna til þess að miðla málum í deilu Íslendinga og Breta vegna Icesave-reikninganna. Þetta kom fram á blaðamannafundi hans og Geirs H. Haarde forsætisráðherra eftir fund þeirra í Ráðherrabústaðnum í dag.

Sektaðir fyrir árás í garðyrkjustöð

Héraðsdómur Suðurlands hefur sektað tvo átján ára pilta um 60 þúsund krónur hvorn fyrir að hafa í sameiningu ráðist á þriðja manninn með höggum í garðyrkjustöð í Laugarási.

Rándýrum heimilstækjum stolið úr bústöðum

Lögreglan á Selfossi leitar nú innbrotsþjófs eða -þjófa sem létu greipar sópa í tveimur sumarbústöðum og gróðrastöð í liðinni viku. Þannig var brotist inn í sumarbústað í landi Efri Reykja í Bláskógabyggð einhvern tíma frá þriðjudegi til fimmtudags og þaðan stolið heimilstækjum að verðmæti á milli 700 og 800 þúsund króna.

Tveir á slysadeild eftir bílveltu á Grafningsvegi

Tveir menn voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir umferðarslys á Grafningsvegi um tíuleytið í morgun. Mennirnir voru í pallbíl sem hafnaði utan vegar og valt við Heiðabæ í Þingvallasveit. Mennirnir eru ekki taldir alvarlega slasaðir.

Töluvert um ölvun og áflog á Ísafirði um helgina

Töluvert var um ölvun og áflog á Ísafirði um helgina og tengdist það oftast skemmtistöðum á Ísafirði. Í dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að tilkynnt ahfi verið um fjórar líkamsárásir á Ísafirði um helgina og nokkuð var um útköll vegna ölvunar í heimahúsum.

Hádegisfréttir eingöngu á Bylgjunni

Vegna fjölda fyrirspurna sem fréttastofu hafa borist símleiðis skal tekið fram að héðan í frá verða hádegisfréttir einungis fluttar á Bylgjunni en ekki á Stöð 2.

Tekin með tíu grömm af kannabis

Lögreglan á Akureyri handtók á föstudag konu á fimmtugsaldri við venjubundið eftirlit og reyndist hún vera með 10 grömm af kannabisefni í fórum sínu.

Hafnarfjarðarbær semur einnig við Greenstone

Hafnarfjarðarbær hefur bæst í hóp sveitarfélaga í landinu og ritað undir viljayfirlýsingu við Greenstone ehf. um byggingu allt að 50.000 fermetra gagnavers á lóð sveitarfélagsins.

Skotlandsmálaráðherra vill peninga frá Geir

James Murphy, Skotlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, segist ætla að gera allt sem í hans valdi stendur til að ná innistæðum Skota út af íslenskum bankareikningum. Hann kemur hingað til lands í dag þar sem hann mun funda með Geir H. Haarde.

Maðurinn með ljáinn dæmdur

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt 19 ára karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal vopnalagabrot og fjársvik.

Neyðarkallinn seldist vel þrátt fyrir kreppu

,,Við fundum ekki fyrir kreppunni heldur mikilli samstöðu. Við erum í skýjunum með stuðning þjóðarinnar," segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, um sölu á Neyðarkallinum sem fram fór um helgina.

Litlar verðbreytingar á fíkniefnum - aukin neysla vegna kreppu

Verð á fíkniefnum hefur haldist stöðugt síðastliðna þrjá mánuði, samkvæmt tölum sem birtar eru á vef SÁÁ. SÁÁ segir að ætla megi að fyrstu áhrif væntanlegrar kreppu verði aukin neysla og fallhætt hjá þeim sem hafi verið í meðferð.

Skíðasvæði Siglfirðinga opið í dag

Skíðasvæði Siglfirðinga verður opið í dag að sögn staðarhaldara. Þar verða brekkurnar opnaðar klukkan eitt og verður opið á skíðasvæðinu til klukkan fimm í dag. Suðvestan gola er á svæðinu og gott skíðafæri.

Lífeyrissjóðslán verði fryst

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða skipaði um miðjan október starfshóp til að fjalla um greiðsluvanda sjóðfélaga og tillögur til úrbóta. Hópurinn hefur lokið störfum og skilaði fyrir helgi tillögum sem meðal annars miða að því að frysta lán hjá sjóðsfélögum í sex mánuði til að byrja með. Stjórn Landssamtakanna hefur samþykkt tillögurnar og ákveðið að gera þær að sínum. Þær hafa nú verið sendar til hlutaðeigandi lífeyrissjóða til umfjöllunar.

Missti stýrið úti á hafi

Stýrið datt af níu tonna fiskibáti þegar hann var staddur sjö sjómílur austur af Raufarhöfn í nótt. Við það varð báturinn stjórnlaus og kölluðu skipverjar eftir aðstoð.

Enn einn bílabruninn

Eldur kviknaði í mannlausum nýlegum fólksbíl við smábátahöfnina í Hafnarfirði á tólfta tímanum í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á vettvang.

Rjúpnaskyttan fannst heil á húfi

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vesturlandi fundu nú fyrir miðnætti rjúpnaskyttu sem leitað var á Beilárheiði við Langavatn á Mýrum.

Ungir jafnaðarmenn hafna alfarið norsku krónunni

Ungir jafnaðarmenn telja hugmyndir um upptöku norskra krónu fráleitar. Skemmst er að minnast orða Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, sem telur að þessi hugmynd gangi ekki.

Leit stendur yfir að rjúpnaskyttu á Beilárheiði

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Akranesi, Borgarnesi, Varmalandi og Reykholti hafa verið kallaðar út til leitar að rjúpnaskyttu sem saknað er á Beilárheiði við Langavatn á Mýrum.

Slökkvistarfinu lokið í Hafnarfirði

Slökkvistarfinu við Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði er lokið en þar kviknaði í tveimur bátum fyrr í kvöld. Báðir stóðu þeir á þurru landi við bátasmiðjuna.

Alcan heldur sínu striki með breytingar í Straumsvík

Alcan heldur sínu striki við áformaðar breytingar á álverinu í Straumsvík, sem kalla á umfangsmiklar virkjunarframkvæmdir við Búðarháls þegar á næsta ári. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Þingflokksformenn ósamstíga um Davíðs-bókun

Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar eru mjög ósamstíga í áliti sínu á frétt um bókun ráðherra Samfylkingarinnar í ríkisstjórn um að Davíð Oddsson seðlabankastjóri sé á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins og starfi ekki í þeirra umboði.

Björk er nýsköpunarverkefni í anda finnsku leiðarinnar

Söngkonan Björk er nýsköpunarverkefni í anda finnsku leiðarinnar að mati Stefáns Ólafssonar prófessors við Háskóla Íslands. Þetta kom fram í viðtali við Stefán í Silfri Egils þar sem hann útskýrði hvernig Finnar unnu sig út úr mikilli kreppu í upphafi tíunda áratugarins á síðustu öld.

Umfjöllun um Ísland á forsíðu New York Times

Umfjöllun um Ísland er aðalfréttin á netsíðu bandaríska stórblaðsins The Newv York Times í dag. Fyrirsögnin hljóðar svo: Ísland að sökkva í skuldir kennir Bretlandi um vandræðin".

Landsvirkjun ræðir ekki við aðra en Alcoa um orkuna á NA-landi

Landsvirkjun hyggst ekki að sinni ræða við aðra aðila en Alcoa um nýtingu orkunnar á Norðausturlandi, þótt viljayfirlýsing fyrirtækjanna hafi runnið út í gær. Viljayfirlýsing Alcoa við ríkisstjórn Íslands og Norðurþing um álver á Bakka rennur út eftir ellefu mánuði.

Félag í eigu Jóns Ásgeirs kaupir alla fjölmiðla 365

Stjórn 365 samþykkti á stjórnarfundi í gær að selja alla fjölmiðla út úr fyrirtækinu til félags í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Með í kaupunum fylgir 36,5% hlutur í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Sjá næstu 50 fréttir