Innlent

Umfjöllun um Ísland á forsíðu New York Times

Umfjöllun um Ísland er aðalfréttin á netsíðu bandaríska stórblaðsins The New York Times í dag. Fyrirsögnin hljóðar svo: Ísland að sökkva í skuldir kennir Bretlandi um vandræðin".

Fréttin hefst á því að segja að enginn sé í vafa um að efnahagserfiðleikar Íslands eru landsmönnum sjálfum um að kenna. Hinsvegar geti meira legið þar þarna að baki. Allavega telji ríkisstjórn landsins, íbúar þess og nokkrir þar fyrir utan að þótt staða sé slæm hafi Bretar gert hana enn verri.

Síðan er rætt um beitingu bresku stjórnarinnar á hryðjuverklögum sínum gegn íslensku bönkunum og rætt við ýmsa um stöðuna þar á meðal Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur umhverfisráðherra, Jón Daníelsson hagfræðing, Andrés Magnússon blaðamann og Sverrir H. Gunnlaugsson sendiherra Íslands í London.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×