Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grýtti glasi í bíl og gisti í klefa Þrír ölvaðir menn voru látnir gista fangageymslur lögreglunnar á Suðurnesjum í fyrrinótt. Einn þeirra hafði grýtt glasi í bíl. Hann gat ekki greint frá nafni sínu og hafði engin skilríki meðferðis. 20.8.2007 04:00
Dreifing gesta í miðborginni bar árangur Lögregla og aðstandendur menningarnætur eru sammála um að dreifing gesta um borgina með tónleikum á Miklatúni hafi haft góð áhrif. Engin stórmál komu upp þrátt fyrir mikinn mannfjölda og talsverða ölvun. 20.8.2007 03:30
Rússar vilja sanna styrk sinn Kalda stríðið tilheyrir fortíðinni, þótt Rússar haldi fast í gamla stórveldisdrauma, að sögn Þórs Whitehead sagnfræðings. Rússar sendu á dögunum fjórtán orrustuþotur til eftirlitsflugferða á Atlantshafi og yfir Kyrrahaf og er það í fyrsta skipti í fimmtán ár sem slíkar ferðir eru farnar. 20.8.2007 03:15
Segja borgina brjóta lög „Okkur finnst óeðlilegt að borgin komi inn á markaðinn og ætli sér ekki að lúta sömu reglum og aðrir,“ segir Elías Ólafsson, stjórnarformaður Gámaþjónustunnar. 20.8.2007 02:45
Sigraðist á bandaríska kerfinu „Um leið og ég lendi ætla ég að fara að leiði ömmu minnar. Draumur hennar var að fá mig heim til Íslands en hún lést áður en sá draumur varð að veruleika,“ segir Aron Pálmi Ágústsson. 20.8.2007 02:15
Orð borgarstjóra oftúlkuð Orð Vilhjálms Vilhjálmssonar borgarstjóra voru oftúlkuð þegar sagt var frá því í fjölmiðlum að borgarstjóri vildi vínbúð ÁTVR burt úr Austurstrætinu. Þetta segir Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðarmaður borgarstjóra. 20.8.2007 02:00
Ölvaður undir stýri úti á sjó Lögregla stöðvaði siglingu tveggja báta utan við Reykjavíkurhöfn um miðnæturbil aðfaranótt sunnudags. Hvorugur skipstjórinn gat framvísað haffærisskírteini. Þá var annar þeirra, sem sigldi seglskútu, undir áhrifum áfengis. 20.8.2007 01:00
Handtekinn vegna hótana í Hafnarfirði „Þetta var voðalegur hasar og við vissum ekkert hvað gekk á þegar lögreglan kom brunandi inn götuna,“ segir íbúi við Miðvang í Hafnarfirði sem fylgdist með handtöku út um gluggann hjá sér um miðjan dag á föstudag. 20.8.2007 01:00
Íslenskir útrásarvíkingar í aldanna rás Íslenskir útrásarvíkingar gefa svipaða ímynd af landi og þjóð og birtist af víkingum í kennslubókum á síðustu öld. Rannsókn sem Kristín Loftsdóttir hefur gert sýnir að kennslubækur hafi verið mjög karllægar. . 19.8.2007 19:10
Í framtíðinni stingum við bílnum í samband Í framtíðinni verður kannski hægt að stinga bílnum í samband í bílskúrnum og hlaða hann þar. Þá er að koma markaðinn bíll sem gengur fyrir vínanda. 19.8.2007 19:05
Örtröð og barátta um leigubíla í miðborginni í nótt Öngþveiti ríkti í miðborginni á tímabili í nótt og engan leigubíl var að fá vegna mikils mannfjölda á götunum. Talið er að allt að fimmtán þúsund manns hafi reynt að ná leigubíl nánast samtímis í nótt. Stelpurnar á Hreyfli-Bæjarleiðum höfðu ekki undan og þær fengu bæði hótanir og bónorð í nótt. 19.8.2007 18:41
Lifandi líffæragjafar á Íslandi bera mikinn kostnað af gjöf sinni Lifandi líffæragjafar á Íslandi geta orðið fyrir miklum fjárhagslegum skakkaföllum því þeir þurfa að taka á sig stærstan hlutann af allri launaskerðingu vegna aðgerða sem þeir gangast undir. Réttur lifandi nýrnagjafa er mjög óljós á Íslandi segir Runólfur Pálsson, yfirlæknir á Landspítalanum. 19.8.2007 18:29
Unglingar gera oft strætó að blóraböggli þegar þeir koma of seint heim Unglingar gera Strætó gjarnan að blóraböggli þegar þeir koma of seint heim til sín á kvöldin, segir forstjóri Strætó. Hann segir ekki sé rétt að bílstjóri Strætó hafi ekki hleypt unglingum inn í vagninn á tveimur biðstöðvum í röð eins og þeir fullyrtu í fréttum Stöðvar 2 í vikunni. 19.8.2007 18:26
Konan komin um borð í þyrluna TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið frá Víti í Öskju þar sem kona slasaðist á baki. Konan varð fyrir grjóthruni og missti hún meðvitund um tíma. Björgunarsveitarmenn frá Landsbjörgu konunni til hjálpar en erfiðar aðstæður voru á slysstað. 19.8.2007 16:03
Tuttugu krakkar fluttir í athvarf í nótt Lögregla þurfti að flytja rúmlega tuttugu unglinga í sérstakt athvarf á Menningarnótt. Þetta mun vera svipaður f´jöldi og í fyrra. Foreldrum krakkana var gert að sækja þau en að sögn lögreglu var ástand sumra barnanna mjög slæmt sökum ölvunar. 19.8.2007 13:57
Tekinn drukkinn undir stýri - utan við Reykjavíkurhöfn Siglingar tveggja báta voru stöðvaðar utan við Reykjavíkurhöfn um miðnætti í gær. Engin haffærisskírteini voru til staðar að sögn lögreglu, en skipstjóri annars bátsins var jafnframt undir áhrifum áfengis. Þá voru tólf ölvaðir ökumenn teknir á þurru landi. 19.8.2007 13:08
Nokkrar ábendingar borist vegna Þjóðverja Lögregla hefur fengið nokkrar hringingar í kjölfar þess að lýst var eftir tveimur þýskum ferðamönnum í gær. Verið er að kanna þær vísbendingar en enn er allt á huldu um afdrif mannana. 19.8.2007 11:45
Nóg að gera hjá lögreglu í Keflavík Töluverður erill var hjá lögreglunnni í Keflavík fram undir morgun. Þrír gistu fangageymslur þar vegna ölvunar og óspekta. Þá voru fjórir teknir vegna ölvunar við akstur í umdæmi lögreglunnar á Reykjanesi. 19.8.2007 11:20
Brjálað að gera á leigubílastöðvum Gríðarlega mikið hefur verið að gera á leigubílastöðvunum í Reykjavík í heilan sólarhring að sögn starfsmanns á afgreiðsluborði Hreyfils-Bæjarleiða. Leigubílstjórar náðu með engum hætti að svara eftirspurn á menningarnótt og fram á morgun. 19.8.2007 11:16
30 þúsund á Miklatúni - fjölmenni í miðborginni Mikið fjölmenni var í bænum í gærkvöld og nótt vegna menningarnætur og segir lögregla fjöldann svipaðan á síðustu ár. Mannfjöldinn dreifðist hins vegar á stærra svæði og voru til að mynda um 30 þúsund manns á tónleikunum á Miklatúni þegar mest var. 19.8.2007 09:59
Hestamaður slasaðist í Skagafirði Hestamaður féll af baki við Ábæ í Skagafirði um kvöldmatarleytið í gær. Björgunarsveitirnar Skagfirðingasveit og Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð voru kallaðar út til að aðstoða við flutning mannsins. Að sögn læknis á sjúkrahúsinu á Akureyri er maðurinn á leið í rannsókn á næstu mínútum. 19.8.2007 09:55
Milljón en ekki 400 þúsund tonn árlega „Ég skil ekki af hverju Ólafur Egilsson notar ekki hærri tölur. Það væri ærlegra tel ég,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Árni telur þá tölu sem kom fram í Fréttablaðinu í gær of lága en þar segir að útblástur koldíoxíðs vegna olíuhreinsunarstöðvar á Vestfjörðum verði um 400 þúsund tonn af útblæstri á hverju ári. 19.8.2007 05:45
Lítill fugl velti þungu hlassi Bíll fór út af veginum í Hrútafirði snemma í gærmorgun og valt. Einn farþegi var í bílnum ásamt ökumanni og sluppu þeir báðir án teljandi meiðsla. Bifreiðin er þó talin gjörónýt eftir veltuna. 19.8.2007 05:00
Hótaði að smita bílstjóra af lifrarbólgu Maður sem ákærður er fyrir hótanir, líkamsárásir, þjófnað og eignaspjöll sagðist fyrir dómi nær ekkert muna eftir atvikunum. Aðalmeðferð í máli mannsins, sem er 22 ára, fór fram í á miðvikudag í Héraðsdómi Reykjavíkur. 19.8.2007 05:00
Fjölskylduhátíð í sól og blíðu Danskir dagar fara nú fram í fjórtánda skipti í Stykkishólmi um helgina. Á milli sex til sjö þúsund gestir hafa lagt leið sína á fjölskylduhátíðina. Hverfahátíðir, grillveislur og skrúðganga voru í boði fyrir gesti svo fátt eitt sé nefnt. 19.8.2007 03:45
Pólitísk sátt um aflþynnuverksmiðju Pólitísk samstaða er um aflþynnuverksmiðju á Akureyri. Ekki þarf að virkja vegna verksmiðjunnar en hún gæti hins vegar flýtt virkjunarframkvæmdum vegna annarra verkefna. 19.8.2007 03:30
Guttar kveiktu í bílhræjum Eldur kom upp í bílhræjum á ruslahaugum við Selfoss um klukkan tíu á föstudagskvöld. Slökkvilið var sent á staðinn og var búið að slökkva í sex bifreiðum um klukkustund síðar. Mikinn reyk lagði frá haugunum, sem eru rétt við bæinn. 19.8.2007 03:00
Steiktur pitsukassi á eldavél Slökkvilið var kallað út í íbúð í Skarphéðinsgötu um klukkan ellefu í gærmorgun vegna reyks sem steig úr húsinu. Reykskynjari í íbúðinni var einnig í gangi. 19.8.2007 01:00
Líkamsárás á Skólavörðustíg Nokkrir menn réðust á einn mann á Skólavörðustíg rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Maðurinn var fluttur á slysadeild með sár á andliti og höndum. Árásarmennirnir voru handteknir stuttu síðar. 18.8.2007 22:37
Kona festi bíl sinn í á - þyrla kom á staðinn og bjargaði henni Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið í Jökulheima til þess að aðstoða við björgun. Bíll festist í á á svæðinu og samkvæmt uppýsingum lögreglu á Hvolsvelli er kona föst um borð. 18.8.2007 20:14
Óttast um lífríki Arnarfjarðar Ballest úr olíuflutningaskipum og gróður sem sest á botn þeirra gæti skaðað lífríki Arnarfjarðar að mati Jóns Þórðarsonar, útgerðarmanns á Bíldudal. 18.8.2007 18:57
Aron Pálmi laus úr prísund sinni Aron Pálmi Ágústsson losnaði í dag úr viðjum bandaríska fangelsiskerfisins, rúmum tíu árum eftir að hann var sakfelldur fyrir kynferðisafbrot, þá þrettán ára að aldri. 18.8.2007 18:55
Óþarfi að búa til rússagrýlu Utanríkisráðherra telur ekki ástæðu til að magna upp rússagrýlu vegna rússnesku herflugvélanna sem flugu hringferð um landið í gær. Óljóst er hvort vélunum var fylgt eftir á för sinni og ráðherra gat ekki svarað hve nálægt þær voru ströndum Íslands. Hernaðarandstæðingar segja að flug sem þetta gæti orðið tíðara í framtíðinni. 18.8.2007 18:51
Fær ekki stuðning fyrir fatlaðan son sinn frá Tryggingastofnun Faðir níu ára drengs sem lamaðist neðan mittis í umferðarslysi fær engan opinberan stuðning til að kaupa á hjálpartækjum fyrir drenginn til að nota á sínu heimili. Hann segist upplifa sig gagnvart kerfinu eins og hann sé ekki til. 18.8.2007 18:35
Menningarvöfflur ruku upp í gesti og gangandi í Þingholtunum Ungur íbúi í Þingholtunum bakaði fleiri hundruð vöfflur í dag og bauð gestum og gangandi ásamt rjúkandi kaffi sem hann hellti upp á. Allt var þetta gert í nafni menningarinnar. 18.8.2007 18:33
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfarenda, konu, á gatnamótum Sundlaugarvegar og Hrísateigs um klukkan tvö í dag. Þegar lögregla kom á staðinn var konan með meðvitund og var hún flutt á slysadeild til aðhlynningar. Ekki hafa fengist nánari fréttir af líðan konunnar. 18.8.2007 17:05
Ekki heimsmet, en Íslandsmet Tilraun til að setja heimsmet í hvísluleik í í garði Listasafns Einars Jónssonar á menningarnótt mistókst í dag en aðeins 600 manns hvísluðust á. Tæplega ellefu hundruð hefði þurft til að slá metið. Þá brenglaðist setningin sem hvíslað var í meðförum þátttakenda, en hún byrjaði sem -heimsmet í reykjavík - en þegar yfir lauk hafði það breyst í - er þetta komið. 18.8.2007 16:56
Lýst eftir þýskum ferðamönnum Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir tveimur þýskum ferðamönnum, þeim Matthias Hinz og Thomas Grundt. Þeir hugðust ferðast um Ísland og meðal annars fara í ísklifur og fjallgöngur í nágrenni Skaftafells og Vatnajökuls. Ekkert hefur spurst til þeirra í þrjár vikur. 18.8.2007 16:25
Fjör í Latabæjarhlaupi Latabæjarhlaupið vakti mikla kátínu á meðal þeirra fjölmörgu krakka sem hlupu kílómeters langa brautina í dag. Hlaupið fór fram fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands og eins og sjá má á myndinni voru það ánægðir krakkar sem komu í mark að loknu hlaupi. 18.8.2007 15:38
Samskip áfrýja dómi um bætur vegna missis framfæranda Samskip hafa áfrýjað dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 15. maí síðastliðinn en þá var fyrirtækinu gert að greiða ekkju skipverja sem fórst með Dísarfellinu árið 1997 tæpar tvær milljónir króna í bætur vegna missis framfæranda. 18.8.2007 14:19
Menningarnótt gengin í garð Menningarnótt Reykjavíkurborgar hófst með formlegum hætti í Norræna húsinu núna klukkan eitt. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson setti hátíðina formlega en að lokinni setningu koma Lay Low og Eivör Pálsdóttir fram. Lögregla er með mikinn viðbúnað vegna hátíðarinnar og verður götum í miðbænum lokað fyrir bílaumferð. 18.8.2007 12:42
Rússar í hringferð um landið Rússnesku sprengjuflugvélarnar sem flugu inn í íslenskt flugumsjónarsvæði í gær flugu inn í eftirlitssvæðið norð austur af Íslandi, fyrst í vesturátt og beygðu svo til suðurs milli Íslands og Grænlands og fóru hringferð um landið. 18.8.2007 12:04
Flugi Rússa mótmælt Samtök hernaðarandstæðinga á Íslandi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem flugi rússneskra herflugvéla í grennd við landið er mótmælt harðlega. samtökin segja flug á borð við þetta skapa hættu og tilgangurinn sé enginn. Þá eru íslensk stjórnvöld gagnrýnd fyrir að hafa átt frumkvæði að heræfingunum hér á landi á dögunum. 18.8.2007 11:02
12 þúsund manns á hlaupum um borgina Um tólf þúsund manns hlaupa nú mislangar vegalengdir í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis og hafa þáttakendur aldrei verið fleiri. Fjölgun er á þáttakendum í öllum vegalengdum og segir Svava Oddný Ásgeirsdóttir, starfsmaður hlaupsins, að allt hafi gengið eins og best sé á kosið. 18.8.2007 10:46
Kuml finnst í Arnarfirði Kuml fannst í Arnarfirði seint í gær. Hópur kvikmyndagerðarmanna frá sjónvarpsstöðinni Discovery voru í Hringsdal við gerð leikinnar heimildarmyndar ásamt íslenskum fornleifafræðingum þegar þeir grófu sig óvænt niður á kuml við hlið þess sem fannst í fyrra. 18.8.2007 10:14