Fleiri fréttir

Volgur bjór í Austurstræti

„Kælirinn var tekinn í burtu núna í vikunni að beiðni borgarstjórnar,“ segir Þorkell Freyr Sigurðsson, aðstoðarverslunarstjóri í Vínbúðinni í Austurstræti.

Ók á kerrur og sofnaði síðan

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var um miðnætti í fyrrinótt tilkynnt um ökumann í annarlegu ástandi. Hann var þá staddur á Langatanga í Mosfellsbæ.

Bíður fyrirtöku í Hæstarétti

Einn mannanna þriggja sem var handtekinn í verslun á Akureyri á miðvikudag var dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna líkamsárásar í vor þar sem fingur var klipptur af fórnarlambinu. Maðurinn áfrýjaði þeim dómi til Hæstaréttar sem mun að líkindum taka málið fyrir í haust.

Unglingur afplánar dóm á Kvíabryggju

Fimmtán ára síbrotadrengur mun afplána fangelsisdóm á Kvíabryggju innan um fullorðna fanga. Það brýtur í bága við mannréttindasamninga SÞ en Íslendingar hafa sett fyrirvara við þá vegna þess að hér er ekkert unglingafangelsi.

Dráp á hundi kært til lögreglu

Eigendur chihuahua-tíkur sem drepin var, af bull-mastiff-tík, við Rauðavatn fyrr í vikunni ætla að kæra drápið á henni til lögreglu.

Allar stöður eru mannaðar

Kennaralið Ísaksskóla er fullmannað segir Edda Huld Sigurðardóttir skólastjóri hans. „Hér eru allar stöður mannaðar; bæði stöður kennara, skólaliða og annarra.

Pantaði fjölda flugferða á stolin kortanúmer

Breskur karlmaður var í gær dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela kortanúmerum viðskiptavina sinna á bar í London til þess að bóka flugferðir til Íslands. Maðurinn var í gæsluvarðhaldi í viku áður en hann var dæmdur.

Sárast að missa uppáhaldshænuna

Þeim Gíslínu Magnúsdóttur og Gísla Óskarssyni, frístundabændum í Vestmannaeyjum, var illa brugðið þegar þau fóru að athuga með búfénað sinn á fimmtudagskvöld. Hundur hafði komist í hænurnar þeirra og drepið fimm.

Tveggja ára vinna skilaði árangri

„Ég er að klára að mála núna en ég byrjaði að gera upp húsið í septemberlok 2005,“ segir Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi eigandi Bergstaðastrætis 19.

Vörubíll valt í Þorlákshöfn

Vörubíll valt við hringtorgið í Þorlákshöfn rétt eftir klukkan níu í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki vitað um tildrög slyssins. Lögregla er nú á staðnum en ekki er talið að slys hafi orðið á fólki.

Miklar vonir bundnar við Lónsheiðargöng

Íbúar Suðausturlands binda miklar vonir við gerð Lónsheiðarganga en göngin yrðu mikil samgöngubót fyrir landsfjórðunginn. Með tilkomu þeirra yrði þjóðvegurinn um Hvalnes -og Þvottárskriður úr sögunni en skriðurnar teljast með hættumeiri vegköflum landsins.

Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar kallaðar út í kvöld

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaða konu sem datt af hestbaki við Árbúðir á Kalvegi um áttaleytið í kvöld. Að sögn Lögreglunnar á Selfossi er talið að konan hafi hlotið bakmeiðsl og var hún flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.

Sölsa undir sig eignir í miðborginni

Fasteignafélagið Samson Properties með Björgólfsfeðga í fararbroddi sölsar nú undir sig hverja eignina á fætur annarri í miðborginni. Hugmyndir eru uppi um verslunarmiðstöð og íbúðir á svæðum sem félagið hefur eignast, en markmiðið er að efla mannlíf og athafnalíf í miðborginni.

Discovery gerir þátt hér á landi

Mikil leynd hvílir yfir hvað 25 manna hópur frá sjónvarpsstöðinni Discovery er að gera hér á landi. Hópurinn var í dag staddur í Hringsdal í Arnarfirði og augljóslega gekk mikið á.

ÍTR leggur til að starfsmenn frístundaheimila fái greiddar álagsgreiðslur

Á fundi Íþrótta og tómstundaráðs í dag var samþykkt samhljóða tillaga, til samráðshóps borgarstjóra um starfsmannaeklu í grunnskólum, leikskólum, frístundaheimilum og á velferðarsviði, um að kanna möguleika á því að bregðast við manneklu á frístundaheimilum í Reykjavík með sérstökum álagsgreiðslum til starfsmanna.

Bóndi varð undir belju

Fullorðinn maður varð undir belju í dag. Atvikið átti sér stað á Svertingsstöðum við Hrútafjarðarháls í Húnaþingi vestra.

Tugir fatlaðra barna bíða eftir þjónustu

Tugir barna bíða þess að komast í lengda viðveru í Öskjuhlíðaskóla. Ástæðan er sú hversu erfitt er að ráða starfsfólk. Ragnheiður Sigmarsdóttir, formaður foreldrafélags Öskjuhlíðaskóla, segir ástandið í fyrra hafi verið erfitt fyrir marga foreldra og vonar að það endurtaki sig ekki núna.

Óheilladagur á Suðurlandi

Vörubíll valt við Eyrabakkaveg, skammt frá Litla-Hrauni, þegar verið var að sturta möl um tvöleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi var ökumaður fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi með minniháttar meiðsl.

Viðskiptaráðherra vill nýjar rafrænar verðkannanir í verslunum

Viðskiptaráðherra vill koma á fót rafrænum verðkönnunum til að stuðla að gagnsæi markaðar og virkri samkeppni. Neytendastofu hefur verið falið að vinna að framkvæmdaáætlun og á þeirri vinnu að vera lokið næsta sumar. Könnuninni er ekki ætlað að taka við af verðkönnunum Alþýðusambands Íslands heldur um viðbót að ræða að sögn viðskiptaráðherra.

Ferðasjúkur barþjónn fékk fjögurra mánaða fangelsi

Konstantin Deniss Fokin, 26 ára gamall eistneskur barþjónn, sem búsettur er í Bretlandi, var í dag dæmdur í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. Dóminn fær hann fyrir að hafa bókað níu miða til Íslands og þaðan áfram til Norðurlandanna á netinu með stolnum greiðslukortanúmerum. Fokin var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku og hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. Hann játaði brot sín bæði við yfirheyrslu og í dómi.

Margir búnir að skila Cars Sarge leikfangabílum til baka

Tugir manna hafa nú þegar skilað til baka svokölluðum Cars Sarge leikfangabílum til verslana Hagkaupa. Hagkaup innkallaði bílana á miðvikudaginn eftir að framleiðandi þeirra Mattel tilkynnti að þeir kynnu að innihalda efni sem væru hættuleg börnum.

Talningarfólk á kosninganótt hefur enn ekki fengið greitt

Talningafólk á kosninganótt í Norðvesturkjördæmi hefur enn ekki fengið greitt fyrir vinnu sína þótt þrír mánuðir séu liðnir frá síðustu alþingiskosningum. "Þetta er því miður rétt og ákaflega bagalegt," segir Ríkarður Másson sýslumaður á Sauðárkrók en hann er aðalmaður í yfirkjörstjórn kjördæmisins.

Suður-Evrópubúar oftast teknir fyrir hraðakstur

Tæplega helmingur þeirra sem stöðvaðir eru fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli eru erlendir ökumenn. Á síðustu þremur mánuðum hafa um eitt þúsund ökumenn verið teknir fyrir hraðakstur þar af um 500 útlendingar. Ítalir, Spánverjar og Frakkar keyra hraðast.

Ruslatunnur fyrir pappír í boði í borginni

Reykjavíkurborg ætlar í átak til endurvinnslu á pappír en magn dagblaða, tímarita og markpósts hefur aukist um 76 prósent á fjórum árum. Nýjum sorptunnum sérmerktum fyrir pappír verður ekið í hús í borginni eftir helgina.

Risavaxnar dráttarvélar í stað vörubíla

Risavaxnar dráttarvélar hafa leyst vörubíla af hólmi í ýmiss konar vegagerð og efnisflutningum. Verktaki viðurkennir þó að það þyki varla jafntöff að aka dráttarvél og vörubíl.

Mikill viðbúnaður vegna Menningarnætur

Slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir hafa töluverðan viðbúnað vegna Menningarnætur sem fram fer á laugardag. Lögregla mun taka sérstaklega hart á unglingadrykkju.

Skjálftavirkni eykst við Upptyppinga á ný

Skjálftavirkni hefur tekið sig upp á nýjan leik við Upptyppinga. Frekar rólegt hefur verið á svæðinu að undanförnu en um kvöldmatarleytið í fyrradag byrjaði ný hrina sem enn stendur yfir.

Vandamál hversu margar stofnanir fari fram úr fjárheimildum

Fjármálaráðherra segir það vandamál hvað margar stofnanir fari fram úr fjárheimildum, en þeim hafi þó fækkað á undanförnum árum. Ríkisendurskoðun gagnrýnir í nýlegri skýrslu að framúrkeyrsla stofnana sé meira og minna látin óátalin.

Mikil fjölgun umsókna skýrir meðal annars lengri biðlista

Á annað þúsund börn á aldrinum 6-9 ára eru nú á biðlista hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur eftir vistun á frístundaheimili í vetur. Erfiðlega gengur að fá starfsfólk á heimilin og þá hefur umsóknum um vistun fjölgað mikið milli ára.

Auðveldara að fá rokkstjörnu en smíðakennara í kennslu

."Við erum nánast með fullmannað í stöður hjá okkur og ástandið því nokkuð gott. Það sem okkur skortir eru tveir smíðakennarar. En í þessari þennslu sem er núna í byggingariðnaðinum er auðveldara að fá rokkstjörnu í heimsókn en smíðakennara í kennslu," segir Kristín Jónasdóttir grunnskólafulltrúi á Ísafirði

Á slysadeild eftir bruna

Tveir voru fluttir á slysadeild þegar heitavatnsleiðsla sprakk í gamla Morgunblaðshúsinu, sem nú hýsir Háskólann í Reykjavík, á ellefta tímanum í morgun. Mennirnir hlutu brunasár þegar þeir reyndu að stöðva heitavatnslekann. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu lak heitt vatn á 40 fermetra svæði í húsinu og urðu nokkrar skemmdir á innanstokksmunum.

Óska eftir þyrluflugpalli í Hafnarfirði

Norðurflug hefur óskað eftir því við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að fá að reisa þyrluflugpall í bænum með tilheyrandi aðstöðu. Norðurflug hefur nú þrjár þyrlur í rekstri og hyggst tvöfalda þann flugflota.

Vínbúðir í viðbragsstöðu

Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs ÁTVR, segir að forsvarsmenn ÁTVR hafi fundað með borgaryfirvöldum vegna hugmynda borgarráðs um að loka Vínbúðinni í Austurstræti. Hann segir að borgaryfirvöldum verði kynnt afstaða ÁTVR áður en hún verður upplýst í fjölmiðlum.

Þrír Sýrlendingar og Líbani sækja um hæli

Fjórar manneskjur leituðu í gærdag til lögreglunnar á Egilsstöðum og óskuðu eftir hæli hér á landi. Að sögn Lárusar Bjarnasonar, sýslumanns á Seyðisfirði, kom fólkið til landsins frá Noregi með Norrænu. Samkvæmt skilríkjum er um að ræða þrjá Sýrlendinga, móður með tvö börn, og einn Líbana sem er sambýlismaður hennar.

Skólabækurnar misdýrar eftir verslunum

Í verðkönnum sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi í sjö bókaverslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag kom í ljós að mikill verðmunur er á milli verslana þegar kemur að námsbókum. Rúmlega 80 prósenta munur var á hæsta og lægsta verði á nýjum bókum og munurinn var enn meiri þegar kemur að notuðum bókum, eða 111,1 prósent.

Leikskólar í sókn

Á fundi leikskólaráðs Reykjavíkurborgar í gær var ákveðið að greiða tímabundin viðbótarlaun til leikskólakennara til þess að bregðast við þeirri manneklu sem nú steðjar að leikskólum í höfuðborginni. En hvað þýðir þetta og er þetta nóg?

Áskorunin hljóðar upp á óbreytt ástand

Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir að áskorun sem samþykkt var á fjölmennum fundi í Salnum í gærkvöldi hafi komið sér afskaplega mikið á óvart. Að hans mati hljóðar áskorunin upp á að gera einfaldlega ekki neitt á svæðinu. Hann segir að samtökum um betri byggð á Kársnesi sé greinilega einnig sama um hvort hægt sé að halda störfum í bæjarfélaginu. Hún hljómar upp á að gera ekki neitt.

Sjá næstu 50 fréttir