Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ljóst í febrúar að vellinum yrði lokað Bandaríkjastjórn ætlar ekki að verja neinu fé til herstöðvarinnar í Keflavík frá 1. október á þessu ári. Samkvæmt heimildum NFS var þetta vitað strax í byrjun febrúar - og var ástæðan fyrir fundi samninganefnda Íslands og Bandaríkjanna í þeim mánuði. 20.3.2006 18:57
Fá ekki linsur til að víkka sjónsvið barna án augasteina Hálft stöðugildi og þrjár milljónir króna í stofnkostnað er allt sem þarf til að bæta verulega lífsgæði um þrjátíu augasteinslausra einstaklinga hér á landi. Íslenska ríkið hefur ekki treyst sér til þess að veita þeim sambærilega þjónustu við þá, sem er annarsstaðar á Norðurlöndunum, en þar býðst þeim að fá linsur í stað þykkra gleraugna, sem takmarka sjónsvið þeirra. 20.3.2006 18:57
Samstarf sem hljómar vel FL Group og Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að FL Group mun styrkja hljómsveitina um 40 milljónir íslenskra króna. Verða þær reiddar af hendi á næstu fjórum árum. 20.3.2006 18:54
Heimili öldruðum sæmandi Kópavogsbær og Hrafnistuheimilin hafa samið um byggingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða sem byggja á þeirri hugmyndafræði að fólk haldi mannlegri reisn, þrátt fyrir háan aldur eða bága heilsu. Heimilisfólkið heldur tekjum sínum og greiðir sjálft hefðbundin útgjöld en hið opinbera fyrir hjúkrun og aðhlynningu. 20.3.2006 18:52
Orkuveita Reykjavíkur tilbúin að útvega orku í Helguvík Álversframkvæmdir gætu hafist í Helguvík þegar á næsta ári. Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur hefur tilkynnt forsætisráðherra að Orkuveitan geti komið að orkusölu til stóriðju á Suðurnesjum mun fyrr en áður var talið. 20.3.2006 18:41
Alcoa segist ekki framleiða hergögn Alcoa hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða Andra Snæs Magnasonar í fréttum NFS í gærkvöld. Þar hafna forsvarsmenn fyrirtækisins því að það sé í hergagnaframleiðslu en viðurkenna að þeir framleiði einstaka hluti úr áli sem notaðir séu við smíði Tomahawk-flugskeyta. 20.3.2006 18:16
Faldi fíkniefni undir mælaborði bíls Þrjú kíló af hassi og tæplega 47 grömm af kókaíni fundust við tollaeftirlit við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þan sjöunda þessa mánaðar. Fíkniefnin voru falin í rörbúti inn undir mælaborði bíls og í tveimur slökkvitækjum. Ökumaðurinn, sem er pólskur, kom í ferjuna í Danmörku og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. mars næstkomandi. 20.3.2006 17:45
Sjávarútvegsráðherra heimsækir Bretland Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra heimsækir Humberside-svæðið í Bretlandi á morgun og hinn þar sem hann sér starfsemi íslenskra fyrirtækja þar, fiskmarkaði, hittir kaupendur íslenskra sjávarafurða og á fund með borgarstjórum bæði Grimsby og Hull. 20.3.2006 17:30
Hæstiréttur myndi líklega snúa við niðurstöðu Baugsmálsins Hæstiréttur mun líklega snúa við niðurstöðu Héraðsdóms í Baugsmálinu, ef málinu verður áfrýjað. Þetta segir dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. 20.3.2006 17:19
Ráðherrar sagðir pukrast Stjórnarliðar voru sakaðir um pukur á Alþingi í dag vegna umræðu um brotthvarf varnarliðsins. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar, sagði þá hafa hannað atburðarásina á miðvikudag þegar tilkynnt var um ákvörðun Bandaríkjamanna að kalla herinn á brott. Því neitaði forsætisráðherra. 20.3.2006 17:08
Spáir því að vðskiptahalli minnki um helming Greiningardeild KB banka býst við að viðskiptahallinn við útlönd dragist saman um nærri helming á milli ára og nemi um 100 milljörðum króna á þessu ári. 20.3.2006 17:02
Fundi Bush og Scheffers lokið Fundi Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra Atlandshafsbandalagsins, með Bush Bandaríkjaforseta er lokið í Hvíta húsinu í Washington. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna var meðal annars á dagskrá fundarins. Forsetinn og framkvæmdastjórinn minntust hins vegar ekkert á Ísland, þegar þeir hittu blaðamenn að fundinum loknum. 20.3.2006 17:00
Hóteluppbygging geti skapað á annað hundrað störf Sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum eru einhuga um að taka á þeim málum sem upp koma í framhaldi af því varnarliðið dregur mikið úr starfsemi sinni á næstu mánuðum með tilheyrandi uppsögnum. Bæjarstjórinn í Grindavík bendir á að hægt sé að ráðast í byggingu hótels við Bláa lóðin sem skapað geti á annað hundrað störf. 20.3.2006 16:21
Tók á móti undirskriftalistum vegna hágæsluherbergis Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra tók í dag á móti undirskriftalista þar sem hún var hvött til að tryggja rekstur svokallaðs hágæsluherbergis á Barnaspítala Hringsins. 20.3.2006 15:30
Heimasíða héraðsdóma opnuð Dómstólaráð hefur opnað heimasíðu þar sem framvegis verður hægt að nálgast á einum stað dagskrár allra héraðsdómstóla í landinu og flesta dóma og úrskurði sem kveðnir eru upp hjá dómstólunum. 20.3.2006 15:05
Fundur stendur yfir Fundur Jaap de Hoop Scheaffer, framkvæmdastjóra Atlandshafsbandalagsins, með Bush Bandaríkjaforseta stendur nú yfir í Hvíta húsinu í Washington. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna er meðal annars á dagskrá á fundinum. 20.3.2006 15:01
Ræðu ráðherra breytt eftir á? Andri Snær Magnason rithöfundur segir að ræðu sem iðnaðarráðherra hafi flutt á Iðnþingi á síðasta ári hafi verið breytt eftir á á heimasíðu ráðuneytisins. Aðstoðarmaður ráðherra vísar þessu á bug. 20.3.2006 14:35
FL Group styrkir Sinfóníuna FL Group ætlar að styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 10 milljónir króna á ári, næstu fjögur árin. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi FL Group og Sinfóníunnar í hádeginu. 20.3.2006 14:15
Boðar til fundar stuttu fyrir fund forsætisráðherra Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ boðar til almenns fundar um atvinnumál í dag, þremur klukkustundum á undan forsætisráðherra. 20.3.2006 12:04
Atkvæðagreiðsla um sameiningu Hafin er atkvæðagreiðsla um sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna, sem yrði aðili að Alþýðusambandi Íslands, en ekki Samiðn. 20.3.2006 12:03
Fagna hugmynd forsætisráðherra Sameiginlegur fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Atvinnuráðs sambandsins fagnar þeirri hugmynd forsætisráðherra að skipuð verði samráðsnefnd ríkis og sveitarstjórnar á Suðurnesjum sem vinni að viðbrögðum við brotthvarfi flugsveita varnarliðsins frá Keflavíkurflugvelli. 20.3.2006 11:30
Hægt á íslensku víkingaskipunum Verulega hefur hægt á íslensku víkingaskipunum en þau virðast þó ekki hafa orðið fyrir varanlegu tjóni, segir meðal annars í ítarlegri grein breska blaðsins Sunday Telegraph um íslenskt efnahagslíf, og birt var í gær. 20.3.2006 10:45
Sjúkraflugum fjölgar Rúmlega ellefu hundruð manns voru fluttir með sjúkraflugi til og frá Reykjavíkruflugvelli í fyrra, sem er fjölgun um fjögur hundruð frá árinu áður. Þetta kom fram í svari samgönguráðhera við fyrirspurn á Alþingi. Þar kemur einnig fram að miklar sveiflur eru í þessum flutningum milli ára og var óvenju mikið um sjúkraflug í fyrra. Lang flestir sjúklingar, sem fluttir eru til Reykjavíkur, eru lagðir inn á Landsspítalann. 20.3.2006 10:43
Intrum innheimtir fyrir Borgarbókasafnið Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur samið við innheimtufyrirtækið Intrum um að hafa uppi á þeim sem láta undir höfuð leggjast að skila bókasafnsbókum. Bókasafnsbækur má hafa að láni í mánuð en tíu króna dagsektir bætast ofan á ef farið er fram yfir þann tíma. 20.3.2006 09:45
Áfengi í vörslu lögreglu Allt áfengi af barnum á veitingahúsinu Kaffi Láru á Seyðisfirði, hefur verið í vörslu lögreglu síðan á föstudagskvöld og vistað í læstum fangaklefa, að fyrirmælum sýslumanns. 20.3.2006 09:30
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki Samherja í Grimsby Nýtt fiskvinnslufyrirtæki í eigu Samherja, mun taka til starfa í Grimsby í Bretlandi á næstunni og á það að heita Ice Fresh Seafood. Aukast þá enn umsvif íslendinga á Humbersvæðinu í Bretlandi, en talið er að þar búi nú um 200 íslendingar sem hafi fjölda Breta í vinnu. 20.3.2006 09:15
Ökumaður ölvaður Vitni telja það mildi að ekki hlaust stór slys af, þegar ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Kringlumýrarbraut á níunda tímanum í gærkvöldi. Bíllinn lenti utan í vegriði á milli akbrautanna og braut það niður á að minnstakosti tuttugu metra kafla uns hann nam staðar, stór skemmdur. Ökumaður tók þá til fótanna, en lögreglumenn hlupu hann uppi. Kalla þurfti á slökkvilið til að hreinsa olíu og bensín úr bílnum, á vettvangi. 20.3.2006 09:13
Pálmi Haraldsson kaupir Hekla Travel Pálmi Haraldsson, sem á sínum tíma keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi FL Group, hefur keypt dönsku ferðaskrifstofuna Hekla Travel. 20.3.2006 09:00
Hagvöxtur 5,5% á síðasta ári Hagvöxtur hér á landi var 5,5% á síðasta ári. Frá þessu er greint í vefriti fjármálaráðuneytisins í morgun en tekið er fram að talan geti breyst þegar Hagstofan fær frekari gögn til að vinna úr. 20.3.2006 08:30
Meiddist á hrygg eftir vélsleðaslys Kona meiddist á hrygg þegar hún datt af vélsleða uppi á Langjökli síðdegis í gær. Samferðafólk hennar kallaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og tókst áhöfn hennar að lenda á jöklinum, þrátt fyrir vont skyggni. Flogið var með konuna á slysadeild Landsspítalans og reyndist hún minna meidd en óttast var. Eftir rannsóknir og aðhlynningu fékk hún að fara heim. 20.3.2006 07:38
Flugmálastjórn í stríð við flugumferðarstjóra Yfirmenn Flugmálastjórnar eru komnir í stríð við starfsmenn sína, segir formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Þeir eru mjög ósáttir við nýtt vaktakerfi sem var tekið upp, þrátt fyrir að svipuðu vaktakerfi hafi verið hafnað í kjarasamningum. 19.3.2006 19:00
Tillögur um tækifæri eftir brottför hersins Ný tækifæri felast í brottför hersins sagði forsætisráðherra, áður en hann og utanríkisráðherra funduðu með bæjarstjóra Reykjanesbæjar um tillögur um aðgerðir til að efla atvinnustarfsemi í ljósi breyttrar stöðu. Málið skekur nú byggðina pólitískt. Forsætisráðherra vonar að staða varnarsamningsins skýrist á morgun eftir fund framkvæmdastjóra NATO og Bandaríkjaforseta. Fundinum lauk rétt fyrir fréttir Ákveðið var að skipa starfshóp, að tillögu forsætisráðherra, sem í verða fjórir frá ríkinu og þrír frá sveitarfélögunum. 19.3.2006 18:52
Slasaðist alvarlega í bílveltu Karlmaður um tvítugt slasaðist alvarlega í bílveltu í Fossvogi nú síðdegis. Maðurinn, sem var ökumaður bifreiðarinnar, gekkst undir aðgerð vegna brjóstholsáverka. Hann fer í aðgerð vegna tveggja brotinna hryggjarliða í kvöld eða á morgun en er ekki í lífshættu. 19.3.2006 18:30
Slasaðist í bílveltu Umferðarslys varð á Kringlumýrarbrautinni, við göngubrúnna í Fossvogi nú síðdegis. Að því er næst verður komist var bifreið ekið á ljósastaur eða brúarstólpa svo hún valt. 19.3.2006 16:37
Stöðvaður á tvöföldum hámarkshraða Lögreglan á Húsavík stöðvaði ungan ökumann á mikilli hraðferð í nótt. Mest mældist bíll piltsins á eitt hundrað áttatíu og eins kílómetra hraða, rétt norðan við Húsavík. 19.3.2006 14:56
Kokkar berjast Kokkar frá fjórum heimsálfum reyna að slá hverjum öðrum við í matargerðarlist og búist er við harðri keppni í uppvaski á sýningunni Matur 2006 sem haldin verður undir lok mánaðarins. 19.3.2006 14:40
Varnarmálin rædd á morgun Jaap de Hoop Schaeffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins mun á morgun hitta George Bush Bandaríkjaforseta þar sem varnir Íslands verða til umræðu. 19.3.2006 12:45
Sér ekkert athugavert við ritstjórnina Oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík sér ekkert athugavert við framferði ritstjóra Framsóknarvefsíðunnar Hriflu, sem neitaði að birta pistil borgarfulltrúa flokksins um lýðræði á vefsíðunni. 19.3.2006 12:17
Líkamsárás á Laugaveginum í morgun Tveir menn um tvítugt réðust á mann frá Marokkó á Laugaveginum í morgun. Tildrög árásarinnar liggja ekki fyrir. 19.3.2006 11:56
Hálka víða fyrir norðan og austan Hálka, hálkublettir og éljagangur er víða á Norðaustur- og Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Aðrir þjóðvegir landsins eru nokkuð greiðfærir en mjög víða gilda þungatakmarkanir. 19.3.2006 11:30
Þrír teknir við ölvunarakstur Þrír voru teknir ölvaðir við akstur í umdæmi Keflavíkurlögreglunnar í nótt og í morgun. Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna smávægilegri umferðarlagabrota. 19.3.2006 10:15
Blandar flokkspólitík í uppsagnir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ furða sig á því að fyrsti fundur forsætisráðherra um málefni starfsmanna varnarliðsins eftir að herinn tilkynnti að hann hefði sig á brott verði haldinn á kosningaskrifstofu A-listans. 19.3.2006 10:05
Tveir gistu fangageymslur Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt vegna ölvunar og óláta. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur og tveir fyrir að keyra réttindalausir, báðir eru aðeins sextán ára og virtist liggja meira á að setjast undir stýri en svo að þeir gætu beðið eftir að fá bílpróf. 19.3.2006 10:03
Tekinn tvisvar á ellefu mínútum Nítján ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á hálftíma á Akureyri. Allir voru á 50 kílómetra hraða eða meira þar sem er 30 kílómetra hámarkshraði. Einn þeirra sem lögreglan tók fyrir of hraðan akstur var stöðvaður aftur ellefu mínútum síðar og þá fyrir að tala í síma undir stýri. 18.3.2006 17:37
Mikill sinueldur Mikill og þykkur reykur steig upp er bændur brenndu sinu í Eyjafjarðarsveit, sunnan við Akueyrarflugvöll í dag. Flug raskaðist ekki og er það að þakka hagstæðri vindátt. Bændur hafa leyfi til að brenna sinu fyrir fuglavarpið og nýta þeir sér það grimmt samkvæmt einum heimildamanni NFS að norðan. Þá segir Akureyrarlögreglan það hafa gerst, oftar en einu sinni, að flug hafi raskast vegna reyks, og biður hún bændur um að brenna sinu þegar vindátt er hagstæð og reyk leggi ekki yfir Akueyri eða flugvöllinn þar í bæ. 18.3.2006 17:30