Fleiri fréttir

Eldri maður barinn og rændur

Karlmaður á sjötugsaldri var fluttur á slysadeild eftir að tveir menn réðust á hann og rændu hann í Vesturbænum í gærkvöldi. Maðurinn var á göngu nærri gatnamótum Hringbrautar og Suðurgötu þegar mennirnir réðust á hann, börðu hann í jörðina og létu höggin dynja á honum.

Árið 2006 eitt mesta framkvæmdaár Íslandssögunnar

Útlit er fyrir að árið 2006 verði eitt mesta framkvæmdaár sögunnar á vegum hins opinbera þar sem gert er ráð fyrir framkvæmdum fyrir um áttatíu milljarða á árinu. Þá horfa verktakar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð fram á áframhaldandi gósentíð miðað við áætlaðar framkvæmdir á næstu árum.

Börn stöðvuð við drykkju

Keflavíkurlögreglan batt enda á unglingagleðskap í Vogunum í nótt þar sem sex ungmenni á fjórtánda og fimmtánda aldursári höfðu neytt áfengis.

Dagbækur prins ekki gefnar út í bili

Karl Bretaprins vann hálfan sigur í máli sem hann höfðaði á hendur blaðinu Mail on Sunday en blaðið hafði komið höndum yfir einkadagbækur prinsins og birt brot úr þeim þar sem prinsinn kallaði stjórnmálamenn í Hong Kong "afdankaðar gamlar vaxdúkkur."

Mekka mýrarboltans í Tungudal

Tungudalur við Skutulsfjörð verður hugsanlega Mekka mýrarboltaiðkunar á Íslandi ef tillaga umhverfisnefndar Ísafjarðarbæjar hlýtur náð fyrir augum bæjarstjórnar. Þetta kemur fram á vefsvæði Bæjarins besta.

Ný föt, sami skátinn

Árlegt skátaþing var sett í kvöld og það stendur alla helgina. Yfirskrift þingsins er "Ný dagskrá, nýir tímar" og verða meðal annars kynntir nýir skátabúningar, merki og önnur ytri einkenni.

Tvítyngi er mannauður

Tvítyngd börn eru ekki vesen í skólakerfinu, heldur mannauður til framtíðar sem við verðum að hlúa að. Þetta kom fram á ráðstefnu um tvítyngi og móðurmálskennslu í Háskóla Íslands í dag.

Bush styður lokun herstöðvarinnar

Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu nú síðdegis greindi Scott McClellan, talsmaður Bandaríkjaforseta, frá því að Bush væri sammála ráðleggingum landvarnaráðuneytisins um lokun herstöðvarinnar.

Nælonstúlkur á barmi heimsfrægðar

Íslenska stúlknabandið Nælon rambar nú á barmi heimsfrægðar, en Nælonstúlkur verða upphitunarband fyrir strákana í Westlife á tónleikaferðalagi um Bretland.

Efla þarf Landhelgisgæsluna

Fyrir utan þær spurningar sem hafa vaknað varðandi varnarmál Íslands, atvinnumál á Suðurnesjum og rekstur Keflavíkurflugvallar er ljóst að gangskör þarf að gera hjá Landhelgisgæslunni. Ríkisstjórnin er í viðbragðsstöðu, segir forsætisráðherra, og ljóst að kaupa þarf nýjar þyrlur og stórefla björgunarsveitir.

Flugmálastjórn kæmist af án ratsjárkerfis hersins

Það ylli verulegri röskun og vandræðum við flugumferðarstjórn, ef ratsjárkerfi hersins hér á landi yrði lagt niður. Framtíð kerfisins er meðal þess sem rætt verður í viðræðum Bandaríkjanna og Íslands um framtíð varnarsamningsins.

Bandaríkin brutu varnarsamninginn segir formaður Samfylkingarinnar

Einhliða ákvörðun bandarískra stjórnvalda um framkvæmd varnarsamningsins jafngildir broti á honum, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Hún vill nýta sérstakt ákvæði og fá Nató til að meta hvort samningurinn hafi enn raunverulegt varnargildi fyrir Ísland.

Dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann

Tímamótadómur féll í Héraðsdómi Austurlands í dag þegar maður var dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann. Var sakborningurinn dæmdur til að greiða þrjátíu þúsund krónur í sekt fyrir athæfið.

Aldrei fleiri byggingar jafnaðar við jörðu en í fyrra

Aldrei hafa fleiri byggingar verið jafnaðar við jörðu í Reykjavík en í fyrra og hefur niðurrif bygginga í borginni aukist jafnt og þétt frá árinu 2001. Þetta kemur fram í erindi sem Erpur Snær Hansen hjá Menungarvörnum Reykjavíkur flytur á ráðstefnunni Verk og vit á morgun.

Verður þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtækið ef af kaupum verður

Actavis Group gæti orðið þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi innan nokkurra mánaða ef óformlegu tilboði félagsins í króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA verður tekið. Velta Actavis myndi aukast um 70 prósent og starfsmönnum fjölga um ríflega helming við kaupin.

SUS ályktar um varnarsamstarfið

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna skorar á íslensk stjórnvöld að hvika hvergi frá þeirri stefnu sinni að tryggja varnir Íslands, þrátt fyrir einhliða breytingar af hálfu Bandaríkjastjórnar á varnarsamstarfi ríkjanna.

Óvissa um samninga Eflingar og Orkuveitunnar

Kjarasamningar Orkuveitu Reykjavíkur og Eflingar hafa verið lausir í rúma þrjá mánuði. Ekki er útlit fyrir að samningar náist í bráð þrátt fyrir að staðan sé í sjálfu sér auðveld að sögn Sigurðar Bessasonar, formaður Eflingar. Starfsmenn Eflingar hjá Orkuveitu Reykjavíkur eru orðnir ansi óþreyjufullir eftir að samningar náist.

Nýr sendiherra Íslands í Lettlandi

Hannes Heimisson, sendiherra, afhenti í gær Vaira Vike-Freiberga, forseta Lettlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Lettlandi með aðsetur í Helsinki. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Riga.

Spá aukinni verðbólgu

Greiningardeild KBbanka spáir 0,75% hækkun á vísitölu neysluverðs í apríl sem mun leiða til þess að 12 mánaða verðbólga fer úr 4,5% í 5% ef spáin gengur eftir. Þetta kemur fram í hálffimmfréttum bankans í dag. Vísitalan hækkaði um 0,2% í apríl í fyrra.

300 milljónir til Barnaspítala Hringsins

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Jóhannes Jónsson, faðir hans, og dóttir hans, Kristín Jóhannesdóttir, hafa gefið Barnaspítala Hringsins 300 milljóna króna styrk sem verður notaður til að auka hágæsluþjónustu á spítalanum. Styrkurinn er til næstu 5 ára, 60 milljónir ár hvert. Tilkynnt var um styrkveitinguna á Barnaspítalanum í dag og var Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, viðstödd. Hágæsluþjónusta á Barnaspítalanum verður starfrækt í nánu samstarfi við gjörgæsludeild Landspítala háskólasjúkrahúss. Allra veikustu börn munu þó áfram þurfa vistun á gjörgæsludeild spítalans. Fjallað var um vanda hágæsluþjónustu á Barnaspítalanum í fréttaskýringaþættinum Kompás á NFS í vikunni.

Tekjur af varnarliðinu minnka

Tekjur Íslendinga af varnarliðinu í Keflavík hafa farið hraðminnkandi á síðustu árum. Þær eru nú innan við 1% af vergri landsframleiðslu, og voru um 8 milljarðar í fyrra.

Slökkviliðsmenn álykta

Starfsmenn slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli telja brottför Varnarliðsins kalla á breytingar og meiriháttar uppstokkun á rekstri og stjórnsýslu Keflavíkurflugvallar, svo og öllum flugrekstrar og flugöryggismálum Íslands. Þetta kemur fram í ályktun sem almennur félagsfundur starfsmanna slökkviliðsins sendi frá sér í morgun.

Samt hægt að tengjast evrunni

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, telur hægt að tengjast evrunni og grípur til varna fyrir Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra.

Tveggja krónu afsláttur af eldsneyti

Atlantsolía og FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, undirrita í dag samning um afslátt af eldsneyti og veitir samningurinn félögum FÍB tveggja krónu afslátt af eldsneyti. Með samningnum skuldbindur Atlantsolía sig til að veita engum öðrum en félögum FÍB jafnmikinn afslátt. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá FÍB þá mun afslátturinn gera það að verkum að félagsmenn geta sparað samanlagt um 80 milljónir króna í eldsneytiskaupum. Athygli vekur að samningurinn er undirritaður nú en í gær hækkuðu stóru olíufélögin bensínverðið hjá sér.

Bréf til Bandaríkjamanna sent

Íslensk stjórnvöld hafa ritað bandarískum stjórnvöldum bréf og spurt hvaða viðbúnað þau ætli að hafa hér á landi til að tryggja varnir landsins eftir að herþoturnar fjórar og þyrlur hersins fara af landi brott. Hann vill ekki svara því hvaða lágmarksviðbúnaður sé ásættanlegur fyrir íslensk stjórnvöld.

Skoða greiningar með gagnrýnisaugum

Hlutabréf í Kauphöll Íslands hafa stigið hægt upp á við í vikunni eftir að hafa fallið um nær 4% á mánudaginn var. Forstjóri Glitnis segir mikilvægt að fjölmiðlar skoði þær greiningar sem fram koma á fjármálamarkaðnum með gagngrýnisaugum.

Nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð

Helstu nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og kynning á skipulagsmálum sveitarfélaga er meðal þess sem sjá má á sýningunni Verk og vit 2006 sem opnuð var í nýju sýningarhöllinni í gær. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi.

Útilokað að taka upp evru án aðildar að ESB

Richard Wright, umsjónarmaður samskipta Evrópusambandsins við Ísland, segir útilokað að taka upp evruna án þess að ganga í Evrópusambandið. Hann segir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið virka vel og að hann geti enst eins lengi og aðildarríkin telji hann fullnægjandi.

Stóru olíufélögin hækka bensínverð

Stóru olíufélögin og flest dótturfélaga þeirra hækkuðu bensínverð í gær og er algengt verð á sjálfsafgreiðslustöðvum tæpar 115 krónur. Orkan og Atlantsolía hækkuðu ekki og er lítrinn þar um þremur krónum ódýrari.

Eldur í Guðmundi VE

Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í aftari frystilest Guðmundar VE í skipasmíðastöð í Póllandi í gærkvöldi. Skipið er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja Lengja átti skipið og voru framkvæmdir við það að hefjast þegar eldurinn kviknaði.

Reyndu að stinga lögreglu af

Tveir karlmenn á ósksráðum fjórhjólum reyndu í gærkvöldi að stinga lögregluna af þegar hún sá til þeirra suður í Sandgerði. Annar hvarf á fullri ferð út í náttmyrkrið en hinn náði ekki fullu valdi á hjólinu eftir að hafa farið í loftköstum yfir hraðahindrun, og náði lögreglan að króa hann af. Grunur leikur á hver hinn er, og verður rætt við hann í dag.

Hækka verð á bensíni

Stóru olíufélögin og flest dótturfélaga þeirra hækkuðu bensínverð í gær og er algengt verð á sjálfsafgreiðslustöðvum tæpar 115 krónur. Orkan og Atlantsolía hækkuðu ekki og er lítrinn þar um það bil þremur krónum ódýrari. Hækkunin er meðal annars rakin til þess að krónan hefur lækkað og dollarinn hækkað á móti, en olíuvörur eru keyptar í dollurum.

Reyndu að smygla inn kjöti, tóbaki og áfengi

Smygl fannst um borð í Dettifossi í Grundartangahöfn í fyrrinótt og hafa nokkrir skipverjar viðurkennt að hafa átt það. Þeir ætluðu að smygla áfengi, munntóbaki og nautakjöti. Þetta er í annað skiptið á fjórum mánuðum sem smygl finnst í Dettifossi í Grundartangahöfn og fyrir nokkrum dögum fannst töluvert af áfengi og sígarettum í öðru flutningaskipi þar.

Aurbleyta á malarvegum

Aurbleyta er nú sumstaðar orðin á malarvegum vegna hlýinda og þungatakmaraknir eru víðasthvar á hringveginum og ýmsum útvegum. Í hlákunni í gær hrundi smávegis af grjóti niður á Óshlíðarveginn til Bolungarvíkur en olli ekki tjóni og snjóflóð lokaði veginum yfir Dynjandisheiði í gærmorgun, en það er líka rakið til hlýindanna.

Lögðu hald á 4 kíló af hassi

Fimm manns voru úrskurðaðir í gærluvarðhald í gærkvöldi eftir víðtæka og sameiginlega aðgerð lögreglunnar í Kópavogi, Hafnarfirði, fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík, tollgæslunnar og sérsveitar Ríkislögregustjóra, á höfuðborgarsvæðinu í gær. Gerð var húsleit í fjórum íbúðum og tveimur iðnaðarhúsum vegna gruns um stórfellt fíkniefnamisferli og var lagt hald á rösklega fjögur kíló af hassi og hátt í hálft kíló af anfetamíni. Alls voru tólf handteknir en sjö voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum.

Norræn samkeppni í stað samvinnu

Norræn samvinna vék fyrir norrænni samkeppni í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld þar sem Magnus Carlsen tryggði sér sigur á Glitnismótinu í hraðskák. Norska undrabarnið lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum.

Stórsýning byggingariðnaðar í sýningarhöll

Helstu nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og kynning á skipulagsmálum sveitarfélaga er meðal þess sem sjá má á sýningunni Verk og vit 2006 sem opnuð var í nýju sýningarhöllinni í dag. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi.

Magnus Carlsen sigraði á Glitnismótinu

Norska undrabarnið Magnus Carlsen gerði sér lítið fyrir og sigraði á Glitnismótinu í hraðskák sem lauk fyrir stundu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Magnús lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum tvö núll en Hannes Hlífar rann út á tíma í seinni skákinni.

Hannes Hlífar í undanúrslit á Glitnismótinu

Glitnismótinu í hraðskák, sem nú fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur er senn að ljúka en eftir eru tvær skákir í átta manna úrslitum. Hannes Hlífar Stefánsson komst í undanúrslit fyrir nokkrum mínútum þegar hann lagði Tatíönu Vasilevich í spennandi viðureign þá er heimsmeistarinn í hraðskák, Indverjinn Vishy Anand, einnig kominn í undanúrslit.

Björn segi af sér vegna Baugsmáls

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var í dag hvattur til þess á Alþingi að axla pólitíska ábyrgð á Baugsmálinu. Stjórnarandstæðingar mæltust til þess að hann segði af sér í framhaldi af dómi Héraðsdóms í gær.

Handritin heim frá Svíþjóð?

Ákvörðun sænska þjóðfræðisafnsins um að skila indíanaflokki merkum forngrip, vekur upp spurningu sem snertir Íslendinga. Í sænskum söfnum eru nefnilega varðveitt einhver merkustu handrit sem rituð voru á Íslandi í fornöld, meðal annars skinnhandrit af Snorra-Eddu frá því um þrettánhundruð og handrit af Konungasögum.

Sjá næstu 50 fréttir