Fleiri fréttir Desembermánuður annamesti tími ársins fyrir starfsfólk kirkjugarða 9.12.2005 22:15
Sjá næstu 50 fréttir
Félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar Árni Magnússon félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn ríkinu. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna gagnrýndi ráðherran harðlega á Alþingi í dag. 9.12.2005 21:51
Eldsupptök í tauklæddum stól í stofu Rannsókn á eldsupptökum í eldsvoðanum á Ísafirði á mánudaginn var er nú lokið. Ljóst er að eldurinn kom upp í tauklæddum stól í stofu, út frá opnum eldi. Einn maður lést í eldsvoðanum en maðurinn fannst í stofunni skammt frá staðnum þar sem eldurinn kom upp. Réttarkrufning hefur farið fram og í ljóst kom að maðurinn lést af völdum reyks sem myndaðist í eldsvoðanum. 9.12.2005 17:36
Mjólkurverð breytist um áramótin Samkomulag hefur náðst um breytingar á verði mjólkur og mjólkurvara um næstu áramót. Verð til bænda hækkar um 2,9%, eða um 1,28 krónur lítrinn, og því samhliða mun heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða einnig breytast. 9.12.2005 17:34
Ekið á konu í Hafnarfirði Ekið var á fullorðna konu á bílaplaninu við Samkaup í Hafnarfirði fyrr í dag. Konan, sem er íbúi í þjónustuíbúðum aldraðra í Miðvangi, var á gangi eftir bílaplaninu þegar bíll keyrði á hana. Konan hlaut minniháttar áverka. 9.12.2005 17:10
Bandarísk stjórnvöld viðurkenna að hafa í haldi fanga sem mannréttindasamtök hafa ekki aðgang að Bandarísk stjórnvöld hafa viðurkennt að þau haldi föngum sem mannréttindasamtök fá ekki aðgang að. Rauði Krossinn fær ekki aðgang að öllum föngum sem Bandaríkjamenn hafa í haldi. Þetta viðurkenndu stjórnvöld í Washington í fyrsta skipti í gær. 9.12.2005 16:46
Dagur genginn í Samfylkinguna Dagur B. Eggertsson, hefur skráð sig í Samfylkinguna samkvæmt heimildum fréttastofu. Í samtali við fréttastofuna rétt í þessu vildi Dagur sjálfur þó ekki staðfesta þetta, en neitaði því ekki heldur. 9.12.2005 15:29
Ekki dugar að dusta af hvítflibbanum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir dóminn sem féll í gær gegn Árna Magnússyni, félagsmálaráðherra, mjög alvarlegan. Ráðherran verði að gefa greinagóð svör um hvað hann ætli að gera í framhaldinu og ekki dugi nú að dusta málið af eins og kusk á hvítflibbanum. 9.12.2005 15:18
Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði Fyrsta skóflustungan verður tekin á morgun að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir byggingu 320 íbúða sem verða í fimm til sex hæða húsum. Þá er einnig gert ráð fyrir byggingu 120 íbúða fyrir eldri borgara ásamt samkomuhúsi. 9.12.2005 15:06
Strípuðu fjallabíl og skildu eftir við Rauðavatn Bífrænir þjófar þurftu ekki langan tíma til að strípa jeppa sem þeir þeir stálu í Árbænum á þriðjudag. Flestallt nýtilegt var hreinsað úr honum á rúmum sólarhring að líkindum til þess að nýta í aðra bíla. Eigandi bílsins segir tjónið tölvuert. 9.12.2005 14:49
Vill að málið verði tekið til efnislegrar meðferðar Baugsmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi og verjendur sakborninga kröfðust þess á ný að málinu væri vísað frá og tiltóku þrjár ástæður fyrir að slíkt ætti að gera. Settur saksóknari vísaði þeim öllum á bug og sagði kominn tíma til að taka málið til efnislegrar meðferðar. 9.12.2005 14:44
Landspítalinn stóð við sinn enda samkomulagsins Landspítali – háskólasjúkrahús segist hafa staðið við sinn enda samkomulags síns við yfirlækni í æðaskurðlæknum og því hafi uppsögn hans verið réttmæt. Í yfirlýsingu spítalans segir að í starfslýsingu sem Stefán E. Matthíasson undirritaði við ráðningu í starf yfirlæknis í æðaskurðlæknum komi skýrt fram að yfirmenn Landspítala-háskólasjúkrahúss stundi ekki sjálfstæðan atvinnurekstur. 9.12.2005 14:17
Enn hálka víða Hellisheiði eystri er enn lokuð vegna flughálku og hvassviðris en einnig er varað við flughálku á Ströndum norðan Bjarnarfjarðar, á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og á Lágheiði samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Enn er hálka eða hálkublettir að einhverju marki í flestum landshlutum, - þó síst á Suðausturlandi. 9.12.2005 13:51
Réttað á ný í Baugsmálinu Þinghald hófst rétt í þessu í Baugsmálinu. Héraðsdómari boðaði tvo saksóknara í dómssal, hvort tveggja Boga Nilsson ríkissaksóknara og Sigurð Tómas Magnússon, sérstakan saksóknara, en ekki hefur fengist úr því skorið hvor þeirra fer með ákæruvald í málinu. 9.12.2005 13:29
Trúnaðarbrestur milli stjórnvalda og bótaþega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda, aldraðra og öryrkja. Umræður um öryrkjaskýrslu Stefáns Ólafssonar endurspeglaði það. Hún vildi vita á Alþingi í dag hvort forsætisráðherra vildi beita sér fyrir fimm ára áætlun í samvinnu við fulltrúa lífeyrisþega í málefnum þessara hópa. 9.12.2005 12:48
Slökkviliðið var í næstu götu Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í húsi í Faxafeni í Reykjavík en útskrifaðir skömmu síðar. Slökkviliðsmenn voru á fundi í næstu götu og því fljótir á staðinn. 9.12.2005 12:45
Snákar og byssur fundust í Kópavogi Tveir snákar, skammbyssur og töluvert af hassi var meðal þess sem lögreglan í Kópavogi fann við húsleit í bænum í nótt. Snákarnir eru yfir hálfur metri á lengd hvor, en blátt bann liggur við innflutningi þessháttar dýra bæði vegna þess að bit þeirra geta reynst hættuleg og svo geta þau borið með sér sjúkdóma, enda fara þau ekki í sóttkví, ef þeim er smyglað. 9.12.2005 12:15
Spenna um framtíðarsýn Símans Eitt stærsta viðskiptaleyndarmálið þessa dagana er, í hverju síminn ætlar að fjárfesta eftir að hann eykur hlutafé sitt um 35 milljarða króna, eins og allt stefnir í. 9.12.2005 12:01
Hlýtur að hugleiða að segja af sér Árni Magnússon hlýtur að hugleiða að segja af sér vegna dóms sem féll gegn honum í Hæstarétti í gær, sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, neitar að tjá sig frekar um málið og vísar til yfirlýsingar sem hann sendi frá sér í gær. 9.12.2005 11:53
Slapp ómeidd úr bílveltu Kona slapp óslösuð þegar bíll sem hún ók valt í hálku á Eyrarbakkavegi laust fyrir klukkan átta í morgun. Hálka er á nokkrum stöðum á Suðurlandi en að sögn lögreglu er útlit fyrir að hálkublettirnir hverfi þegar líður á daginn. 9.12.2005 11:48
Kristinn fær engin svör Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, fær ekkert svar við fyrirspurn sinni um íbúðalán banka og sparisjóða. Hann spurði meðal annars hversu mikið hver banki og sparisjóður hefði lánað gegn veði í húsnæði, hversu margir væru í viðskiptum hjá hverjum bankanna í sig og á hvaða kjörum þeir væru. 9.12.2005 11:45
Bjarni Hafþór ráðinn til KEA Bjarni Hafþór Helgason hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri KEA og hefur hann störf um áramót. Hann mun annast framkvæmdastjórn fjárfestingafélaganna Hildings og Upphafs en þau eru dótturfélög KEA. 9.12.2005 11:00
Tveir á sjúkrahús með reykeitrun Eldur kviknaði í einu Bláu húsanna svokölluðu við Faxafen í Reykjavík fyrir um klukkustund síðan og var tvennt flutt á slysadeild vegna gruns um að það væri með reykeitrun. 9.12.2005 10:33
Bíll skorðaðist þversum á Blöndubrú Það var lán í óláni þegar ungur maður missti stjórn á bíl sínum á leið yfir brúna yfir Blöndu í Blöndudal í gærkvöldi að bíllinn skorðaðist þversum á brúnni á milli handriðanna í stað þess að fara út af öðru hvoru megin. 9.12.2005 10:30
Hellisheiði eystri lokað vegna hálku Hellisheiði eystri hefur verið lokað fyrir umferð en þar er flughált. Vegagerðin varar einnig við flughálku á Nesjavallavegi, á Ströndum norðan Bjarnarfjarðar, á Þverárfjallsvegi, Lágheiði, Mývatnsöræfum og á Öxi. 9.12.2005 09:43
Fimmtán fá ríkisborgararétt Fimmtán fá ríkisborgararétt með lögum frá Alþingi áður en þingi verður frestað fram yfir jól samkvæmt tillögu allsherjarnefndar Alþingis. 21 sótti um að fá ríkisborgararétt, orðið var við beiðni fimmtán en sex hafnað. 9.12.2005 09:15
Samþykktu samning við gæsluna Kjarasamningur skipstjórnarmanna hjá Landhelgisgæslu Íslands var samþykktur með áttatíu og einu prósentu atkvæða. Tuttugu og einn félagi í Félagi skipstjórnarmanna hafði atkvæðisrétt og greiddu allir nema einn atkvæði. 9.12.2005 09:00
Sjúkraliðar samþykkja kjarasamning Sjúkraliðar í Reykjavík hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning Sjúkraliðafélags Íslands og Reykjavíkurborgar. 28 af 57 á kjörskrá greiddu atkvæði. 27 þeirra greiddu atkvæði með samningnum en einn á móti. 9.12.2005 08:45
Tveir saksóknarar boðaðir í réttarsal Baugsmálið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í dag og hafa hvort tveggja Bogi Nilsson ríkissaksóknari og Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari verið boðaðir í þinghaldið. 9.12.2005 08:30
Lögregla fann snáka í Kópavogi Tveir stórir snákar, skammbyssur og töluvert af hassi voru meðal þess sem lögreglan í Kópavogi fann við húsleit í bænum í nótt. Hún naut meðal annars aðstoðar sérsveitarmanna frá Ríkislögreglustjóra við aðgerðina. 9.12.2005 08:15
Varað við fljúgandi hálku Vegagerðin varar við að flughált er á Þverárfjalli, Lágheiði, Mývatnsöræfum og á Hellisheiði eystri. Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum auk fleiri staða á Suðurlandi, hálka í Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði auk þess sem hálka og hálkublettir eru víða um allt norðanvert landið frá Vestfjörðum til Austurlands. 9.12.2005 07:46
Dæmdur fyrir amfetamínframleiðslu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á fimmtugsaldri í 14 mánaða fangelsi fyrir að framleiða amfetamín í Kópavogi og fyrir fleiri brot, meðal annars fyrir að hóta fólki öllu illu og að ráðast á lækni fyrr á árinu. 9.12.2005 07:45
Páll sveik öll loforð Atli Eðvaldsson, þjálfari knattspyrnuliðs Þróttar, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann greinir frá sinni hlið mála í samskiptum við Pál Einarsson, fyrrverandi fyrirliða Þróttar. Yfirlýsingin er birt í heild sinni í Fréttablaðinu í dag. Páll og Atli gátu ekki starfað saman og lauk ágreiningi þeirra með því að Páll yfirgaf félagið. 9.12.2005 07:30
Hagnaður ríkissjóðs alls 91 milljarður Tekjur ríkissjóðs nema rúmlega 408 milljörðum króna þegar tölur í fjárlögum og fjáraukalögum eru lagðar saman. Gjöldin nema 317 milljörðum. Hagnaðurinn er því 91 milljarður króna. Þar spilar sala Landssímans stærsta hlutverkið. 9.12.2005 07:00
Sigur fyrir réttarkerfið í landinu "Þetta er ekki aðeins sigur fyrir mig heldur er þetta sigur fyrir réttarkerfið í landinu vegna þess að þetta er fordæmisgefandi dómur," segir Valgerður H. Bjarnadóttir. Hæstiréttur dæmdi í gær að íslenska ríkinu bæri að greiða Valgerði sex milljjónir króna í bætur fyrir að Árni Magnússon félagsmálaráðherra skyldi hafa lagt að henni að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. 9.12.2005 06:30
Sprengju kastað inn á vinnumarkaðinn Formaður Félags leikskólakennara segir að sprengju hafi verið kastað inn á vinnumarkaðinn. Samkvæmt nýjum kjarasamningi Reykjavíkurborgar eru ófaglærðir deildarstjórar á leikskólum með hærri laun en faglærðir. 9.12.2005 06:00
Ekki útkljáð hver sækir málið Þeir átta ákæruliðir Baugsmálsins sem enn eru fyrir dómstólum verða teknir fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ekki er útkljáð hver sé rétt skipaður og bær saksóknari varðandi ákæruliðina átta og hefur dómari boðað bæði Boga Nilsson ríkissaksóknara og Sigurð Tómas Magnússon til þinghaldsins í dag. 9.12.2005 05:45
Alfreð víst treystandi Forkólfar framsóknarfélaganna í Reykjavík fagna því að Alfreð Þorsteinssyni, borgarfulltrúa flokksins, hafi verið falið að stýra byggingu nýs sjúkrahúss í Reykjavík. Í ályktun þess efnis segir að Alfreð hafi stýrt uppbyggingu Orkuveitu Reykjavíkur af miklum myndarbrag og gert hana að einu öflugasta fyrirtæki landsins. 9.12.2005 05:00
Kaupir hluti í Woolworths Baugur Group hefur fest kaup á tæpum þremur prósentum í bresku verslunarkeðjunni Woolworths. Samkvæmt heimildum eru þessi kaup ólík mörgum kaupum Baugs á breska markaðnum að því leyti að ekki er ætlunin að komast til áhrifa innan fyrirtækisins. 9.12.2005 05:00
Hlutur Tryggva aftur í hérað Hæstiréttur vísaði í gær sex ára fangelsisdómi yfir Tryggva Lárussyni aftur heim í hérað. Hæstiréttur fjallaði þarna um hlut Tryggva og Óla Hauks Valtýssonar í svokölluðu Dettifossmáli. Við sama tækifæri var sex og hálfs árs fangelsisdómur yfir Óla Hauki mildaður og verður fjögur ár. 9.12.2005 04:45
Krabbameinsleit stór þáttur í að draga úr leghálskrabbameini Leghálskrabbameinsleit er stærsti þátturinn í að draga úr tíðni leghálskrabbameins. Bólusetning kvenna mun ekki koma í veg fyrir nauðsyn þess að konur mæti til leitar. 8.12.2005 22:49
Dæmdur fyrir að meiða persónu og æru Valgerðar Lögmaður Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, segir ástæðu þess að Hæstiréttur snýr við dómi Héraðsdóms m. a. þá að ekki nóg með að vera dæmdur fyrir að misbeita valdi sínu, heldur sé félagsmálaráðherra einnig dæmdur fyrir að meiða persónu og æru Valgerðar. Það sé fordæmisskapandi og það sé frekar hlutverk Hæstaréttar en Héraðsdóms að skapa slíkt fordæmi. 8.12.2005 22:35
Bíll lenti þversum á Blöndubrú innri Lögreglan á Blönduósi vinnur nú að því að fjarlægja fólksbíl sem liggur þvert á Blöndubrú innri eftir að ökumaður missti stjórn á bíl sínum. Slysið átti sér stað um níu leytið í kvöld og var ungt par í bílnum og eru þau bæði ómeidd. Blöndubrú innri er í Blöndudal og að sögn lögreglu er flughálka á vegum þar. Um fólksbíl er að ræða og er hann mikið skemmdur en sem fyrr segir liggur bíllinn þversum á brúnni og lokar alveg fyrir umferð. 8.12.2005 22:04
Allt að áttatíu vinnuslys á mánuði Á milli sextíu og fimm og áttatíu vinnuslys verða við Kárahnjúka í hverjum mánuði. Í þriðjungi tilfella missa menn einn dag eða fleiri úr vinnu. Yfirlæknir vinnusvæðisins telur þessa slysatíðni eðlilega miðað við aðstæður. 8.12.2005 20:22
Félagsmálaráðherra fagnar því að málinu sé lokið Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist, í tilefni dóms Hæstaréttar í dag þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða Valgerði H. Bjarnadóttur sex milljónir króna í skaðabætur, fagna því að málinu sé lokið. Hann dragi þó ekki dul á að þessi niðurstaða Hæstaréttar valdi sér vonbrigðum. Í dóminum segir m.a. að félagsmálaráðherra hafi brotið meðalhófsregluna við starfslok Valgerðar sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. 8.12.2005 20:07