Allt að áttatíu vinnuslys á mánuði 8. desember 2005 20:22
Á milli sextíu og fimm og áttatíu vinnuslys verða við Kárahnjúka í hverjum mánuði. Í þriðjungi tilfella missa menn einn dag eða fleiri úr vinnu. Yfirlæknir vinnusvæðisins telur þessa slysatíðni eðlilega miðað við aðstæður. Við sögum fyrr í vikunni frá harðsnúnum byggingaverkamönnum sem steypa tvöhundruð metra háan og snarbrattan stífluvegg í fimbulkulda og skammdegi. Þótt aðstæður þarna í mesta gljúfri landsins séu óvenju hrikalegar má segja að öll vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar teljist í hættulegri kantinum. Stórvirkar vinnuvélar eru á fleygiferð allan sólarhringinn, járnbrautarlestir þjóta fram og til baka um tugkílómetra löng jarðgöng inn að risaborum, og stöðvarhúsið iðar af lífi í viðamikilli hellahvelfingu djúpt inni í fjalli. Það er því ekki að ástæðulausu að sex sjúkrabílar eru hafðir til taks ásamt sautján manna sveit lækna, hjúkrunar- og björgunarfólks á sérstakri heilsugæslu og slysadeild Kárahnjúka. Þorsteinn Njálsson segir að þó skráning slysanna sé há þá sé henni betur sinnt á Karahnjúkum en við sambærileg verkefni áður. Hann segir að á milli sextíu og fimm og áttatíu vinnuslys verði við Kárahnjúka í hverjum mánuði, í þriðjungi þeirra missi menn einn dag eða fleiri úr vinnu. Þorsteinn segir að helsxt megi rekja slysin til hálkunnar á svæðinu og ekki síst kuldans. Einnig sé verið að vinna við stífluna þar sem þungir hlutir eru auk þess sem gangavinnan sé hættuleg vegna grjóthruns. Hann segir byggingaraðila standa vel að slysavörnum og vel sé búið að vinna í slysavörnum af hálfu byggenda. Þorsteinn segir að Kárahnjúkasvæðið jafnist á við læknishérað á landsbyggðinni. Mannfjöldinn á öllu vinnusvæðinu sé um 1900 manns og þarna sé fólk á öllum aldri. Heimsóknir á heilsugæsluna séu milli 750 og 800 á mánuði.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira