Dæmdur fyrir að meiða persónu og æru Valgerðar 8. desember 2005 22:35 Valgerður H. BjarnadóttIr, fyrrverandi framkvæmdastjórI Jafnréttisstofu MYND/KK
Félagsmálaráðherra braut meðalhófsregluna við starfslok Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Hæstiréttur dæmdi henni 6 milljónir króna í bætur. Lögmaður Valgerðar segir ástæðu þess að Hæstiréttur snýr við dómi Héraðsdóms meðal annars þá að ekki nóg með að vera dæmdur fyrir að misbeita valdi sínu heldur sé félagsmálaráðherra einnig dæmdur fyrir að meiða persónu og æru Valgerðar. Árið 2002 tók Valgerður þátt í því sem stjórnarformaður Leikfélags Akureyrar að ráða karlmann leikhússtjóra. Samhliða því starfi var hún framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Kærunefnd jafnréttismála taldi að ráðning leikhússtjórans stangaðist á við jafnréttislög. Eftir það gerði Árni Magnússon félagsmálaráðherra Valgerði ljóst að hún nyti ekki lengur trausts og í framhaldi af því sá hún sig tilknúna að segja starfi sínu lausu hjá Jafnréttisstofu. Hálfu ári síðar hnekkti Hæstiréttur niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála. Valgerður sótti rétt sinn og Hæstiréttur sneri í dag sýknudómi héraðsdóms og dæmdi félagsmálaráðherra brotlegan og skaðabótaskyldan; hann hefði getað náð tilgangi sínum með vægari úrræðum en hann beitti. Í stað brottvikningar hefði hann getað vikið Valgerði frá tímabundið, eins og hún lagði sjálf til, uns niðurstaða dómstóla lægi fyrir. Valgerður segir að félagsmálaráðherra, og allt annað fólk í valdastöðum sem veit að það hefur misbeitt valdi sínu, ætti að hugsa sinn gang, nú þegar Hæstiréttur hafi kveðið upp þann dóm að þetta sé ólöglegt - en ekki eingöngu ósiðlegt. Aðspurð hvort henni finnist eðlilegt að ráðherra íhugi jafnvel að segja af sér segist Valgerður ekki hafa nokkra skoðun á því. Það sé hans mál, en hann þurfi að hugsa sitt mál. Valgerður hyggst ekki sækja aftur um starf framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu; þeim kafla í lífi hennar sé lokið. Ástráður Haraldsson, verjandi Valgerðar, segir Hæstarétt meta sönnunarstöðuna öðruvísi en héraðsdómur og líta aðgerðir ráðherra öðrum augum. Þá spili einnig inn í að dómurinn sé óvenjulegur og fordæmisskapandi og það sé frekar hlutverk Hæstaréttar en Héraðsdóms að skapa slíkt fordæmi. Ástráður nefnir sérrstaklega í þessu sambandi að ekki nóg með að vera dæmdur fyrir að misbeita valdi sínu, heldur sé félagsmálaráðherra einnig dæmdur fyrir að meiða persónu og æru Valgerðar. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér eftir að dómurinn féll, hafa orðið fyrir vonbrigðum með dóminn, hann hafi notið lögfræðilegrar leiðsagnar við meðferð málsins, en endanleg niðurstaða sé fengin og hann óski Valgerði velfarnaðar.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira