Innlent

Sprengju kastað inn á vinnumarkaðinn

Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara segir að síminn hafi vart stöðvað á skrifstofu félagsins. Leikskólakennara séu mjög ósáttir og vilji leiðréttingu sinna kjara.
Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara segir að síminn hafi vart stöðvað á skrifstofu félagsins. Leikskólakennara séu mjög ósáttir og vilji leiðréttingu sinna kjara.

Mikil ólga er meðal leikskólakennara vegna nýs kjarasamnings Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Samkvæmt samningnum eru ófaglærðir deildarstjórar á leikskólum með hærri laun en faglærðir.

Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segist þegar hafa óskað eftir viðræðum við launanefnd sveitarfélaga. Brýnt sé að leysa málið strax fyrir áramót. "Auðvitað er það fagnaðarefni að búið sé að semja við þennan hóp og kjör hans bætt enda hefur mikil mannekla verið á leikskólunum," segir Björg. "Það sem kemur hins vegar á óvart, og er í raun alveg ótrúlegt, er að ófaglærðir deildarstjórar skuli vera með hærri laun en faglærðir. Það er í raun óhætt að segja að með þessu hafi sprengju verið kastað inn á vinnumarkaðinn. Ég vil trúa því að um yfirsjón hjá samninganefndunum hafi verið að ræða en þetta er vant fólk og því erfitt að meta það svo."

Leikskólabörn að leik

Björg segir að síminn hafi vart stoppað á skrifstofu Félags leikskólakennara síðan þetta varð ljóst. "Leikskólakennarar eru eðlilega mjög reiðir. Þeim finnst, sem eðlilegt er, að með þessu sé verið að sýna menntun kennara lítilsvirðingu." Tæpt ár er síðan kjarasamningur leikskólakennara var undirritaður. Í bókun með samningnum kemur fram að hægt sé að óska viðræðna um endurskoðun hans ef breytingar verði á launum annarra starfsmanna leikskóla sem sinna sambærilegum störfum og leikskólakennarar og áhrif hafa á launaviðmiðun í kjarasamningum þeirra. Björg segir að launanefnd sveitarfélaga komi saman í næstu viku. "Ég reikna með því að þá verði tekin ákvörðun um að hefja viðræður við okkur." Félag grunnskólakennara og Skólastjórafélag Íslands sendu í gær frá sér sams konar ósk um endurskoðun á gildandi kjarasamningi með tilvísun í bókun sem honum fylgir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×