Fleiri fréttir Deilt um hæfi Björns Sérskipaður ríkissaksóknari í Baugsmálinu, Sigurður Tómas Magnússon, sagði í dómsal í dag að þótt ekki mætti lesa sérstaka velvild úr skrifum dómsmálaráðherra í garð Baugs, þá efaðist hann ekki um hæfi ráðherra til að hafa afskipti af málinu. Verjendur héldu hins vegar fram vanhæfi dómsmálaráðherra til að skipa Sigurð Tómas til að fara með málið í heild. 16.11.2005 21:00 Réttur samkynhneigðra jafnaður Þjóðkirkjan verður ekki þvinguð til að gefa saman samkynhneigð pör, en hins vegar verður réttur þeirra að öðru leiti jafnaður á við rétt gagnkynhneigðra, segir forsætisráðherra. 16.11.2005 20:49 Varnarviðræður í lausu lofti Varnarviðræður Íslands og Bandaríkjanna eru í lausu lofti og ekki hefur enn verið boðað til næsta samningafundar. Á fundi með blaðamönnum í dag sagði forsætisráðherra að síðasta útspil Bandaríkjamanna hafi komið á óvart og verið með öllu óviðunandi. 16.11.2005 19:30 Nýr Íslandsatlas Íslandsatlas, viðamesta kortabók yfir Ísland sem gefin hefur verið út, sýnir landið eins og enginn hefur séð það áður. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, tóku við fyrstu eintökunum að Bessastöðum í dag. Landið, allt frá hæstu tindum til annesja og eyja, er sýnt á kortum í mælikvarðanum einn á móti hundrað þúsund. Með starfrænni kortatækni eru svipbrigði landsins sýnd með ótrúlegri nákvæmni svo unnt er að skynja hæð fjalla, dýpt dala og víðaáttur öræfanna líkt og flogið væri yfir. 16.11.2005 19:30 Vinnuslys á Eskifirði Vinnuslys varð við höfnina á Eskifirði á sjötta tímanum í dag. Maður sem vann við að hífa bíl féll þrjá metra af fletinu og bæði handleggs- og fótbrotnaði. Hann var fluttur með sjúkarflugi til Akureyrar skömmu eftir slysið og er líðan hans eftir atvikum. 16.11.2005 19:13 Vinna stöðvaðist hjá Fjarðaráli Rafmagn fór af framkvæmdasvæði Fjarðaráls á Reyðarfirði í um klukkutíma nú fyrir kvöldmat. Stöðvaðist vinna á svæðinu á meðan. Rafmagn fór einnig starfmannaþorpinu en þar búa í kringum sjö hundruð manns. Rafmagnsleysið má rekja til bilunar í dreifikerfi RARIK. 16.11.2005 18:57 Tafir á fréttum Stöðvar 2 Tafir urðu á útsendingu frétta Stöðvar 2 í kvöld vegna tæknilegra vandamála í tengslum við flutninga fréttastofunnar frá Lynghálsi 5 í Skaftahlíð 24. Það fórst fyrir að breyta tengingum í línumiðstöð í gömlu höfuðstöðvum Stöðvar 2 sem varð til þess að hljóð var ekki sent út með fréttunum fyrr en 18:53. 16.11.2005 18:54 Nær fjórðungur fyrrum ráðherrar Sex fyrrum ráðherrar hafa verið skipaðir sendiherrar frá árinu 1995. Meirihluti sendiherra á þessu tímabili kemur þó úr störfum innan utanríkisþjónustunnar, eða fimmtán af 27 sendiherrum. 16.11.2005 18:07 Samtök iðnaðarins vara við starfsmannaleigum Samtök iðnaðarins ráðleggja félagsmönnum sínum fremur að ráða fólk til sín en að notast starfsmannaleigur. Varhugavert sé að nýta sér þjónustu starfsmannaleiga vegna óljósrar stöðu skattamála hjá þeim. Samtök iðnaðarins segja það ekki skipta máli þótt starfsmannaleigur ábyrgist skattgreiðslur starfsmanna þar eð skattayfirvöld telji fyrirtæki bera fulla ábyrgð á skattskilum þeirra sem fyrir þau vinna. 16.11.2005 17:31 Úrvalsvísitalan aldrei mælst hærri Úrvalsvísitalan sló enn eitt metið þegar hún hækkaði um 3,83% í viðskiptum dagsins. Hún mælist nú 4986 stig og hefur aldrei verið hærri, samkvæmt Greiningardeild Íslandsbanka. Frá ármótum hefur hún hækkað um 48,40%. Þau félög sem hækkuðu mest í dag eru Kaupþing Banki, Atorka Group, Jarðboranir og Landsbankinn. Það félag sem lækkaði mest í viðskiptum dagsins er SÍF um -2,54%. 16.11.2005 17:05 Guðrún Helgadóttir hlaut verðlaunin ár Í dag, miðvikudaginn 16. nóvember var hátíðardagskrá í sal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus-húsum í Reykjanesbæ. Þar vor afhent Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir árið 2005 og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Í ár runnu verðlaunin til Guðrúnar Helgadóttur. 16.11.2005 17:00 Alþjóðleg herferð gegn ólöglegu niðurhali Alþjóðleg samtök flytjenda og framleiðenda tónlistra hófu viðamikla herferð gegn ólöglegu niðurhali tónlistar af netinu, í gær. Fjöldi slíkra mála er rekinn fyrir dómstólum víða um heim og slík mál eru til rannsóknar á Íslandi. 16.11.2005 16:53 Íslendingur dæmdur fyrir innflutning og sölu á hassi í Finnlandi Íslendingur var í dag dæmdur í Finnlandi í eins árs og tveggja mánaða fangelsi fyrir innflutning og sölu á hassi í Finnlandi. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, var dæmdur fyrir rétti í borginni Jyväskylä í mið-Finnlandi fyrir að hafa tvisvar flutt hass til landsins frá Hollandi, samtals 5,8 kíló, og selt það í Finnlandi. 16.11.2005 13:00 Samtök eigenda sjávarjarða hyggjast stefna íslenska ríkinu 16.11.2005 12:30
Sjá næstu 50 fréttir
Deilt um hæfi Björns Sérskipaður ríkissaksóknari í Baugsmálinu, Sigurður Tómas Magnússon, sagði í dómsal í dag að þótt ekki mætti lesa sérstaka velvild úr skrifum dómsmálaráðherra í garð Baugs, þá efaðist hann ekki um hæfi ráðherra til að hafa afskipti af málinu. Verjendur héldu hins vegar fram vanhæfi dómsmálaráðherra til að skipa Sigurð Tómas til að fara með málið í heild. 16.11.2005 21:00
Réttur samkynhneigðra jafnaður Þjóðkirkjan verður ekki þvinguð til að gefa saman samkynhneigð pör, en hins vegar verður réttur þeirra að öðru leiti jafnaður á við rétt gagnkynhneigðra, segir forsætisráðherra. 16.11.2005 20:49
Varnarviðræður í lausu lofti Varnarviðræður Íslands og Bandaríkjanna eru í lausu lofti og ekki hefur enn verið boðað til næsta samningafundar. Á fundi með blaðamönnum í dag sagði forsætisráðherra að síðasta útspil Bandaríkjamanna hafi komið á óvart og verið með öllu óviðunandi. 16.11.2005 19:30
Nýr Íslandsatlas Íslandsatlas, viðamesta kortabók yfir Ísland sem gefin hefur verið út, sýnir landið eins og enginn hefur séð það áður. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, tóku við fyrstu eintökunum að Bessastöðum í dag. Landið, allt frá hæstu tindum til annesja og eyja, er sýnt á kortum í mælikvarðanum einn á móti hundrað þúsund. Með starfrænni kortatækni eru svipbrigði landsins sýnd með ótrúlegri nákvæmni svo unnt er að skynja hæð fjalla, dýpt dala og víðaáttur öræfanna líkt og flogið væri yfir. 16.11.2005 19:30
Vinnuslys á Eskifirði Vinnuslys varð við höfnina á Eskifirði á sjötta tímanum í dag. Maður sem vann við að hífa bíl féll þrjá metra af fletinu og bæði handleggs- og fótbrotnaði. Hann var fluttur með sjúkarflugi til Akureyrar skömmu eftir slysið og er líðan hans eftir atvikum. 16.11.2005 19:13
Vinna stöðvaðist hjá Fjarðaráli Rafmagn fór af framkvæmdasvæði Fjarðaráls á Reyðarfirði í um klukkutíma nú fyrir kvöldmat. Stöðvaðist vinna á svæðinu á meðan. Rafmagn fór einnig starfmannaþorpinu en þar búa í kringum sjö hundruð manns. Rafmagnsleysið má rekja til bilunar í dreifikerfi RARIK. 16.11.2005 18:57
Tafir á fréttum Stöðvar 2 Tafir urðu á útsendingu frétta Stöðvar 2 í kvöld vegna tæknilegra vandamála í tengslum við flutninga fréttastofunnar frá Lynghálsi 5 í Skaftahlíð 24. Það fórst fyrir að breyta tengingum í línumiðstöð í gömlu höfuðstöðvum Stöðvar 2 sem varð til þess að hljóð var ekki sent út með fréttunum fyrr en 18:53. 16.11.2005 18:54
Nær fjórðungur fyrrum ráðherrar Sex fyrrum ráðherrar hafa verið skipaðir sendiherrar frá árinu 1995. Meirihluti sendiherra á þessu tímabili kemur þó úr störfum innan utanríkisþjónustunnar, eða fimmtán af 27 sendiherrum. 16.11.2005 18:07
Samtök iðnaðarins vara við starfsmannaleigum Samtök iðnaðarins ráðleggja félagsmönnum sínum fremur að ráða fólk til sín en að notast starfsmannaleigur. Varhugavert sé að nýta sér þjónustu starfsmannaleiga vegna óljósrar stöðu skattamála hjá þeim. Samtök iðnaðarins segja það ekki skipta máli þótt starfsmannaleigur ábyrgist skattgreiðslur starfsmanna þar eð skattayfirvöld telji fyrirtæki bera fulla ábyrgð á skattskilum þeirra sem fyrir þau vinna. 16.11.2005 17:31
Úrvalsvísitalan aldrei mælst hærri Úrvalsvísitalan sló enn eitt metið þegar hún hækkaði um 3,83% í viðskiptum dagsins. Hún mælist nú 4986 stig og hefur aldrei verið hærri, samkvæmt Greiningardeild Íslandsbanka. Frá ármótum hefur hún hækkað um 48,40%. Þau félög sem hækkuðu mest í dag eru Kaupþing Banki, Atorka Group, Jarðboranir og Landsbankinn. Það félag sem lækkaði mest í viðskiptum dagsins er SÍF um -2,54%. 16.11.2005 17:05
Guðrún Helgadóttir hlaut verðlaunin ár Í dag, miðvikudaginn 16. nóvember var hátíðardagskrá í sal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus-húsum í Reykjanesbæ. Þar vor afhent Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir árið 2005 og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Í ár runnu verðlaunin til Guðrúnar Helgadóttur. 16.11.2005 17:00
Alþjóðleg herferð gegn ólöglegu niðurhali Alþjóðleg samtök flytjenda og framleiðenda tónlistra hófu viðamikla herferð gegn ólöglegu niðurhali tónlistar af netinu, í gær. Fjöldi slíkra mála er rekinn fyrir dómstólum víða um heim og slík mál eru til rannsóknar á Íslandi. 16.11.2005 16:53
Íslendingur dæmdur fyrir innflutning og sölu á hassi í Finnlandi Íslendingur var í dag dæmdur í Finnlandi í eins árs og tveggja mánaða fangelsi fyrir innflutning og sölu á hassi í Finnlandi. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, var dæmdur fyrir rétti í borginni Jyväskylä í mið-Finnlandi fyrir að hafa tvisvar flutt hass til landsins frá Hollandi, samtals 5,8 kíló, og selt það í Finnlandi. 16.11.2005 13:00
Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir endurskoðun samnings Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir líkt og Samiðn samning Samtaka Atvinnulífs og ASÍ frá í gær. Hann segir skiptar skoðanir vera um samningin og að eðlilegra hefði verið að kynna tillögurnar aðildarfélögum áður en skrifað var undir. 16.11.2005 12:00
Börnum úr Arnarneshreppi hafnað um leiksskólapláss á Akureyri Skólanefnd Akureyrarbæjar hefur hafnað fjórum börnum úr nágrannahreppnum, Arnarneshreppi, um leikskólavist í bænum. Oddviti hreppsins segir bagalegt að nefndin skuli hafa hafnað börnunum um leikskólavist enda hafi hún fengið þau skilboð að ekkert væri því til fyrirstöðu að þau fengju inni á leikskólum bæjarins. 16.11.2005 11:37
Hagnaður hjá Kögun Hagnaður Kögunar eftir skatta nam 434 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins sem er aukning um 91% frá sama tímabili 2004. Kögun samanstendur af Verk- og kerfisfræðistofunni hf., Kögurnesi ehf., Ax hugbúnaðarhúsi hf., Huga hf., Landsteinum Streng hf., Skýrr hf., Teymi hf. og Opnum kerfum Group Holding ehf. 16.11.2005 10:19
Aflabrestur á kolmunna Kolmunnaveiðin er hrunin og búið að leggja nokkrum öflugustu fiskiskipum flotans við bryggjur þar sem þau hafa ekki önnur verkefni. Áfallið snertir afkomu margra sjómanna, útvegsmanna og og fiksimjölsverksmiðja. 16.11.2005 10:09
Dagur íslenskrar tungu í dag Dagur íslenskrar tungu er í dag, 16. nóvember, en það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar þjóðskálds. Dagsins verður minnst með margvíslegu móti, bæði í skólum, stofnunum og fyrirtækjum. 16.11.2005 09:30
Sameinað framboð til Samfylkingar og Framsóknarflokks í Reykjanesbæ Upp úr hádegi í dag mun koma í ljós hvort verði af sameiginlegu framboði Samfylkingarmanna og Framsóknarmanna til bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. 16.11.2005 09:19
Andstaða við byggingu fiskimjölsverksmiðju á Neskaupsstað Talsverð andstaða er komin upp í bænum Leirvík á Hjaltlandi vegna áforma Síldarvinnslunnar í Neskaupstað um byggingu fiskimjölsverksmiðju í bænum, eftir því sem sjávarútvegsvefurinn skip.is greinir frá. 16.11.2005 09:15
Þekkingarnet á Austurlandi Háskólanemum á Austurlandi fjölgar um 100 % á næstu fimm árum nái áætlun starfshóps á vegum menntamálaráðuneytis fram að ganga. Starfshópurinn leggur til að stofnuð verði sjálfseignarstofnun, Þekkingarnet Austurlands, sem verði miðstöð háskólanáms, símenntunar og rannsókna í þágu atvinnulífs á svæðinu. Þekkingarnetið kæmi til með að byggja á Fræðsluneti Austurlands, auk þess að samþætta og efla það háskóla- og rannsóknarnám sem fyrir er á svæðinu. Þá yrði einnig mikil aukning í símenntun og 100 % fjölgun nema í meistara- og doktorsnámi. 16.11.2005 09:15
Bensínverð lækkar Olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og gasolíu í gær og er það 16 lækkunin á sex vikum og rúmlega sjötugasta verðbreytingin á árinu. Algengt verð á bensínlítra á sjálfsafgreiðslustöðvum er nú komið niður í u.þ.b 105 krónur. 16.11.2005 09:00
Íslensku farmennirnir verða eftir Slagorð Avion Group um íslenska sókn um allan heim á ekki við um íslenska farmenn í dag, segir starfsmaður farmanna- og varðskipasviðs Félags skipstjórnarmanna og finnst auglýsingar félagsins ekki lýsa raunveruleikanum sem blasir við íslenskum farmönnum. 16.11.2005 09:00
Úrvalsvísitalan heldur áfram að hækka Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær og fór yfir 4,800 stig, sem er enn eitt metið. Hækkun varð á flestum fyrirtækjum, en þau sem lækkuðu, lækkuðu mjög lítið. 16.11.2005 08:15
Tóku við nýju frystiskipi Eimskip tóku við nýju frystiskipi í Álasundi í Noregi í gær. Skipið er 80 metra langt og sextán metrar á breidd. Það nær mest sextán sjómílna hraða á klukkustund og getur borið 2.500 tonn á 1.800 brettum og í tæplega þrjátíu 40 feta gámum á þilfari. 16.11.2005 08:15
Verkalýðsfélag Akraness á móti Verkalýðsfélag Akraness segir ljóst að samningarnir sem SA og ASÍ undirrituðu í gær sé heldur rýr og að samningsaðilar verkafólks hafi ekki sótt viðlíka leiðréttingu kjara og aðrir hópar. 16.11.2005 08:00
Miðstjórn Samiðnar ósátt Miðstjórn Samiðnar, samband iðnfélaga, er ósátt við tillögur ríkisstjórnar og samkomulag hennar við aðila vinnumarkaðrins. Samiðn vildi frekar segja upp samningum og komast í beint samband við viðsemjendur sína. 16.11.2005 08:00
Ólafur Jóhann og Straumur Burðarás bætast í hóp hluthafa Árvakurs Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og athafnamaður, og Straumur Burðarás, undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar bætast í hóp hluthafa Árvarkurs, sem gefur út Morgunblaðið, að því er Fréttablaðið greinir frá. 16.11.2005 08:00
Miðstjórn Samiðnar ósátt við tillögur ríkissjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins Miðstjórn Samiðnar, samband iðnfélaga, er ósátt við tillögur ríkisstjórnar og samkomulag hennar við aðila vinnumarkaðarins og vildi frekar segja upp samningunum. Hún bendir á að að um 40 prósent launþega búi við kaupmáttarskerðingu á sama tíma og stórir hópar séu að fá miklar launahækkanir. 16.11.2005 07:45
Lítið meidd eftir bílveltu Kona slapp lítið meidd þegar bíll hennar valt nokkrar veltur út af veginum í Skriðdal í gærkvöldi. Hún var ein í bílnum og notaði bílbelti, þannig að hún var allann tímann skorðuð í ökumannssætið. Fljúgandi hálka var þegar slysið varð og missti konan stjórn á bílnum þótt hann hafi verið vel búinn til vetraraksturs. 16.11.2005 07:31
Skýrslu beðið vestra Enn bólar ekkert á skýrslu sem félagsvísindadeild Háskóla Íslands var falið að að gera fyrir menntamálaráðuneytið um stjórnunarhætti og samskipti innan Menntaskólans á Ísafirði. 16.11.2005 07:20
Tilkynnt um sameiginlegt framboð í dag Upp úr hádegi í dag mun koma í ljós hvort verði af sameiginlegu framboði Samfylkingarmanna og Framsóknarmanna til bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Félagsfundir beggja flokka fóru fram í gærkvöldi. 16.11.2005 07:02
Gæslan tilbúin í dómsmál Ríkið hefur ekki í huga að sækja bætur vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna nema hugsanlega fyrir stofnanir dómsmálaráðuneytisins. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir gagnaöflun vegna málsins lokið og býst við að mál verði höfðað innan skamms. 16.11.2005 07:00
Íhaldssöm stefna Sigurður Guðmundsson landlæknir segir að íslensk heilbrigðisyfirvöld reki íhaldssama stefnu gagnvart kynskiptum af ýmsum ástæðum og vilji gera kynskiptiaðgerðir frekar seint, oft ekki fyrr en við 23-25 ára aldur. 16.11.2005 06:45
Reiðubúinn að skoða málið Jón Kristjánsson heilbrigðismálaráðherra segir að málefni transgender-fólks hafi ekki komið inn á borð hjá sér en komi þau þangað verði farið yfir þau eins og önnur mál. 16.11.2005 06:45
Málið tekið til athugunar Árni Magnússon félagsmálaráðherra telur rétt að sest verði sérstaklega yfir málefni transgender-fólks í ljósi umfjöllunar Fréttablaðsins í gær. 16.11.2005 06:45
Ölvaður kjaftar frá Jón Ólafsson talaði óhindrað um íslenskt stjórnkerfi á blaðamannafundi í tilefni af útkomu bókar um ævi hans og störf. Jón segir allt í bókinni vera satt. 16.11.2005 06:30
Bensín lækkar hjá öllum Olíufélögin hafa undanfarinn sólarhring lækkað verð á bensíni og olíu. 16.11.2005 06:30
Áfallahjálp verði samræmd Stefnt er að því að koma á samræmdri áfallahjálp á landsvísu en skýrsla sem Rauði kross Íslands, Landlæknisembættið, Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Landspítali - háskólasjúkrahús og Biskupsstofa komu að var afhent landlækni í gær. 16.11.2005 06:15
Ráðmenn fengu það óþvegið Skattrannsóknarstjóri og ýmsir íslenskir ráðamenn fengu það óþvegið á blaðamannafundi þar sem Jón Ólafsson athafnamaður og Einar Kárason rithöfundur kynntu nýútkomna bók um ævi athafnamannsins og auðmannsins umdeilda frá Keflavík. 15.11.2005 22:14
Fagnaði afmæli með máttarstólpum Framsóknar Elsti framsóknarmaður heims býr í Holtsbúð í Garðabæ. Guðmundur Daðason heitir hann og fagnaði hundrað og fimm ára afmæli sínu í dag með vinum, vandamönnum og máttarstólpum Framsóknarflokksins. 15.11.2005 21:45
Jólastemmning á Akureyri Þótt nóvember sé ekki nema rétt hálfnaður, eru sumir Akureyringar komnir í jólaskap svo um munar. Bæjarstarfsmenn eru byrjaðir að skreyta miðbæinn og einstaka skreytingar eru komnar við íbúðarhús. 15.11.2005 21:39
Birkið sækir í sig veðrið víða um land Birkið, eina trjátegundin sem myndar skóga á Íslandi, hefur sótt í sig veðrið víða um land eftir því sem dregið hefur úr beit. 15.11.2005 21:15
Landsbankinn kaupir írskt verðbréfafyrirtæki Landsbanki Íslands herjar nú á Írland en bankinn keypti í morgun írska verðbréfafyrirtækið Merrion fyrir fjóra milljarða króna. Sjötíu og fimm manns vinna hjá fyrirtækinu og þeir verða fljótlega hluti af 1700 manna starfsliði Landsbankans. Fyrirtækið veltir hátt í 2 milljörðum króna á ári og hefur árlega skilað hálfum milljarði í hagnað frá því það var stofnað fyrir sex árum. 15.11.2005 21:15