Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðbygging á koppinn <font size="2">A</font>ftur er kominn skriður á undirbúning að viðbyggingu við Menntaskólann á Egilsstöðum, að því er fram kemur á vef Austur-Héraðs. Skipað hefur verið í nýja byggingarnefnd, en málið sigldi í strand síðasta vetur þegar upp kom ágreiningur milli heimasveitarfélaga Menntaskólans og ríkisins um skiptingu kostnaðar. 17.9.2004 00:01
Þetta er ekki deila ríkisins Forsætisráðherra segir ekki koma til greina að ríkið hlaupi undir bagga með sveitarfélögum til að mæta kröfum kennara. "Þetta er ekki okkar deila," segir Halldór Ásgrímsson. 17.9.2004 00:01
Gunnlaugur nýtur trausts ráðherra Menntamálaráðherra segist bera fyllsta traust til formanns útvarpsráðs og segist trúa því að hann hafi ekki komið nálægt kaupum Símans í Skjá einum. Ráðherra segir það ekki skarast að formaðurinn gegni einnig trúnaðarstörfum í viðskiptalífinu og komi þannig að slíkum viðskiptum. 17.9.2004 00:01
Ætandi klórgas á Kársnesið Fyrirtækið Mjöll-Frigg hefur sótt um starfsleyfi fyrir klórgasframleiðslu fyrirtækisins í Vesturvör í Kópavogi. Ekki er talin mikil hætta á slysi við framleiðsluna, en á hinn bóginn gætu afleiðingar slíks óhapps orðið miklar. Baðströndin í Nauthólsvík og Kársnesskóli er í innan við kílómetra fjarlægð frá fyrirhugðu framleiðslustæði. 17.9.2004 00:01
Ekkert svigrúm til launahækkana Sveitarfélögin hafa einfaldlega ekki svigrúm til að greiða 30 til 35 prósenta hækkun á launakostnaði kennara, segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra. "Í því felst ekki neinn dómur um hvort það er réttlát lausn fyrir kennara eða ekki," segir Guðmundur. 17.9.2004 00:01
Sorphirðugjöld hækka um þriðjung Sorphirðugjöld eiga samkvæmt landsáætlun að endurspegla raunkostnað við sorphirðuna. Nefnd borgarinnar leggur til hækkun og um leið afslátt til fólks sem sættir sig við stopulli sorphirðu. 17.9.2004 00:01
Fá úrræði fyrir börn "Mér finnst útlitið ekki bjart," segir Erla Hermannsdóttir, starfsmaður Barnaheilla og móðir tveggja stúlkna á grunnskólaaldri. "Ég hræðist að ef verður af verkfalli kennara þá verði það langt," segir Erla. 17.9.2004 00:01
Mótmæltu kennaraverkfalli Fámennur hópur mótmælti því að börnum verði úthýst úr grunnskólum landsins verði af verkfalli kennara. Anna María Proppé, framkvæmdastjóri Heimili og skóla - landssamtaka foreldra, segir börn eiga lagalegan rétt til að ganga í skóla. 17.9.2004 00:01
Kanadískir sjóliðar á Íslandi Sjö fyrrverandi sjóliðar, úr kanadíska flotanum, sem var bjargað úr sjávarháska, fyrir 60 árum, heimsóttu höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar í dag. Tundurspillir sjóliðanna fórst í Viðey í aftakaveðri árið 1944. 17.9.2004 00:01
Eldri nemendur bíða enn Enn er óljóst hvort tekst að útvega öllum sem vilja, pláss í framhaldsskólum. Menntamálaráðherra segir enn ekki ljóst hversu margir bíða eftir skólaplássi, sem er það sama og hún sagði í síðasta mánuði. 17.9.2004 00:01
Stórhýsi og verslunarmiðstöð Framkvæmdir við 4.800 fermetra verslunarmiðstöð og tvö tíu hæða fjölbýlishús eru að hefjast á Akranesi. Byggingarnar munu rísa á svokölluðum Miðbæjarreit við Stillholt og var fyrsta skóflustungan tekin í fyrradag. Þá voru einnig undirritaðir samningar milli Akraneskaupstaðar og Skagatorgs, sem er eigandi lóðarinnar, um framkvæmdirnar. 17.9.2004 00:01
Myndi valda óþarfa þenslu Mjög óskynsamlegt væri hjá ríkinu að ráðast í framkvæmdir við Sundabraut á næsta ári að sögn Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskólans. 17.9.2004 00:01
Undrast vinnubrögð tollayfirvalda Móðir sextán ára gamallar stúlku undrast mjög vinnubrögð tollayfirvalda í Leifsstöð. Stúlkan, sem var að koma með flugi frá Stansted-flugvelli í London á miðvikudagskvöldið, gleymdi svörtum Adidas-bakpoka með verðmætum í á færibandinu í tollinum. Þegar stúlkan uppgötvaði það og hugðist nálgast bakpokann, hafði hann verið afhentur óviðkomandi. 17.9.2004 00:01
Játar að hafa framið vopnað rán Tæplega þrítugur maður játaði að hafa rænt Landsbankann við Gullinbrú með öxi að vopni 21. maí síðastliðinn, þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í maí vegna almannahagsmuna en hefur verið í lausagæslu síðan rannsókn málsins lauk. 17.9.2004 00:01
Áfram í gæsluvarðhaldi Tæplega fertugur maður hefur verið úrskurðaður, í áframhaldandi gæsluvarðhald en hann var tekinn með eitt kíló af amfetamíni og eitt kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli í lok maí. 17.9.2004 00:01
Mikið af LSD fannst í pósti Maður um þrítugt var handtekinn í gær í tengslum við mikið magn af LSD sem fannst í póstsendingu frá Hollandi. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, vill ekki gefa upp um hversu mikið magn hafi verið að ræða, en segir það hafa verið mjög mikið. 17.9.2004 00:01
Hass fannst í þvagi barna Hassefni fundust í þvagi tveggja tólf ára barna á Akureyri. Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóladeildar Akureyrarbæjar, segir að ekki sé vitað til þess að áður hafi slík efni fundist í þvagi svo ungra barna í bænum. 17.9.2004 00:01
Eiríkur og Stefán Már hæfastir Tveir umsækjendur, þeir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson, eru sagðir hæfastir í starf hæstaréttardómara að mati Hæstaréttar samkvæmt heimildum Fréttablaðsins og að því er fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gær. 17.9.2004 00:01
Forsendur kjarasamninga að bresta Verðbólgan er stöðugt yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Verkalýðsforystan útilokar ekki uppsögn samninga. Formaður Starfsgreinasambandsins hefur þungar áhyggjur af samningamálum kennara. </font /></b /> 17.9.2004 00:01
Hættuleg fjárplógsstarfsemi "Þetta er gagnslaus en hættuleg fjárplógsstarfsemi af verstu tegund," segir landlæknir um "orkunámskeið" sem haldið er hér á landi nú um helgina. Það eru tveir Bretar sem halda námskeiðið, Lynda og Stephen Kane. Þau selja einnig ráðleggingar og orkuegg. </font /></b /> 17.9.2004 00:01
Lögreglukærur ganga á víxl Lögmaður Hundaræktarinnar í Dalsmynni fór í gær fram á lögreglurannsókn á meintum brotum gegn búinu og eigendum þess. Lengi hefur staðið styr um búið, meðal annars vegna stærðar þess. Er svo komið að kærur til lögreglu eru farnar að ganga á víxl. 17.9.2004 00:01
Hefði viljað sjá margt öðruvísi Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra segist ekki hafa skipt um skoðun varðandi lögmæti Íraksstríðsins þrátt fyrir að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi kveðið upp úr um að stríðið hafi verið ólögmætt. Hann segir fortíðina hins vegar ekki skipta máli lengur og hvetur menn að horfa til framtíðar varðandi Írak. 17.9.2004 00:01
Þjóðleikhúsráð mælir með sex Þjóðleikhúsráð mælir með sex umsækjendum um starf þjóðleikhússtjóra en ráðinu ber, lögum samkvæmt, að veita menntamálaráðherra umsögn um umsækjendur. Þeir sem koma til greina að mati ráðsins eru: Árni Ibsen, Hafliði Arngrímsson, Kjartan Ragnarsson, Kristín Jóhannesdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir. 17.9.2004 00:01
Krakar í skólann án kennara Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir að grunnskólabörn ættu að geta gengið í skóla þrátt fyrir verkfall kennara. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir orð Ara ætluð til að verja láglaunastefnu sem sé Samtökunum í hag. 16.9.2004 00:01
Styrkur að hafa Davíð með Halldór Ásgrímsson, nýr forsætisráðherra, segir það styrk fyrir ríkisstjórnina að hafa Davíð Oddsson innanborðs. Hann segir skattalækkanir, einkavæðingu og varnarmál mikilvægustu málefnin en ekkert liggi á nýju fjölmiðlafrumvarpi. </font /></b /> 16.9.2004 00:01
Næstminnsta fylgi forystuflokks Aðeins eitt dæmi er um að forystuflokkur í ríkisstjórn hafi haft jafn lítið fylgi og Framsóknarflokkurinn hefur nú þegar hann tekur við forystu í ríkisstjórn. B-listi Framsóknarflokksins fékk 17,7% í síðustu kosningunum vorið 2003. Sami flokkur var í stjórnarforystu 1978 með 16.9% á bakvið sig. 16.9.2004 00:01
Nýjar aðferðir við greiningu riðu Yfirdýralæknisembættið tekur í næsta mánuði upp nýjar aðferðir í baráttunni við sauðfjárriðu. Beitt verður nýrri aðferð við sýnatöku í sláturhúsi og sýnin send fyrst í stað til útlanda til frekari greiningar. Á næsta ári er svo vonast til að sinna megi greiningunni hér heima líka. 16.9.2004 00:01
Þak fauk af hótelinu í Freysnesi Þak af 300 fermetra byggingu fauk í heilu lagi af álmu á hótelinu í Freysnesi í morgun og lenti á tengibyggingu, annari álmu og bílum. Um það bil 30 manns gistu á hótelinu í nótt og rigndi glerbrotum og braki yfir gestina, sem flestir voru sofandi, en engan sakaði. Þykir það með ólíkindum miðað við hvernig umhorfs er á svæðinu. 16.9.2004 00:01
Kajakmennirnir hætt komnir Kajakleiðangursmenn Blindrafélagsins og tveir grænlenskir björgunarmenn þeirra voru hætt komnir síðdegis í gær þegar bátur þeirra bilaði og rak upp í brimgarð við klettótta strönd Vestur-Grænlands og brotnaði þar í spón. 16.9.2004 00:01
Töluvert tjón á Hvolsvelli Töluvert tjón varð á Hvolsvelli og á bæjum þar í grennd í miklu hvassviðri sem geisað hefur víða á suður- og suðvesturlandi í nótt. Á bænum Velli var maður í hættu þegar þak fauk í heilu lagi af gömlu mannlausu íbúðarhúsi og lenti á öðru íbúðarhúsi þar sem maðurinn stóð við glugga. 16.9.2004 00:01
Vaxandi líkur á verkfalli Vaxandi líkur eru á að boðað kennaraverkfall í grunnskólum komi til framkvæmdar á mánudag. Lítið sem ekkert miðaði í samkomulagsátt á samningafundinum í gær, að sögn deilenda, og ekkert er í spilunum sem bendir til afgerandi breytinga á gangi mála. 16.9.2004 00:01
Bátur missti vélarafl Færeyskur línubátur, sem missti vélarafl undan Meðallandssandi á Suðurströndinni undir kvöld í gær og tók að reka til lands, er enn á svipuðum slóðum og eru skipverjar að draga línuna. Þeir létu vita af biluninni en þegar íslenskt skip kom að þeim nokkru síðar var aðstoð afþökkuð og var þá annað færeyskt skip komið á vettvang. 16.9.2004 00:01
Fundur um rjúpuna í kvöld Skotveiðifélag Íslands stendur fyrir fundi um rjúpuna í Norræna húsinu í kvöld klukkan átta. Dr. Ólafur K. Nielsen mun þar kynna nýja skýrslu Náttúrufræðistofnunar og Ólafur Karvel Pálsson fiskifræðingur leggur ítarspurningar fyrir Dr. Ólaf. 16.9.2004 00:01
Veginum lokað vegna skriðufalla Þjóðveginum á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs hefur verið lokað vegna skriðufalla úr Þvottár- og Hvalnesskriðum. Að sögn Vegagerðarmanna eru þetta talsvert miklar skriður og mikill vatnsagi og eðja eru á vettvangi þannig að ekki er hægt að hefjast handa við hreinsun eins og stendur. Enginn bíll varð fyrir skriðunum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna veginn í ný. 16.9.2004 00:01
Ferðamanna leitað á Heklusvæðinu Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaður út til að leita að fjórum frönskum ferðamönnum á Heklusvæðinu. Um er að ræða tvenn eldri hjón. Fólkið skráði sig inn á Hótel Rangá síðdegis í gær og hélt svo í leiðangur. 16.9.2004 00:01
Mótmæli við Þjóðarbókhlöðuna Stúdentaráð Háskóla Íslands efnir til mótmælastöðu fyrir framan Þjóðarbókhlöðuna klukkan sjö í kvöld. Tilgangurinn er að mótmæla skertum afgreiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar en ekki hefur fengist fé í ár líkt og áður til að greiða kostnað við kvöld- og helgaropnun safnsins. 16.9.2004 00:01
Tugmilljóna tjón í Freysnesi Tugmilljóna tjón varð þegar þak fauk af 300 fermetra álmu hótelsins í Freysnesi í Skaftafelli í morgun og lenti á tengibyggingu, annarri álmu og bílum. Engan sakaði í hamförunum. 16.9.2004 00:01
Evrópsk samgönguvika hefst Evrópsk samgönguvika var sett í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Hérlendis taka öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þátt í verkefninu auk Ísafjarðarkaupstaðar en alls taka um 350 borgir vítt og breytt um Evrópu virkan þátt í samgönguvikunni. 16.9.2004 00:01
Málum fjölgar hjá Jafnréttisstofu Árið 2003 var viðburðaríkt hjá Jafnréttisstofu samkvæmt ársskýrslu stofnunarinnar. Um mitt árið hætti Valgerður H. Bjarnadóttir sem framkvæmdastjóri og við starfinu tók tímabundið Ingibjörg Broddadóttir, deildastjóri í félagsmálaráðuneytinu. Frá og með 1. nóvember var Margrét María Sigurðardóttir ráðin til starfans. 16.9.2004 00:01
Ferðamennirnir komnir í leitirnar Frönsku ferðamennirnir fjórir sem leit hófst að á Suðurlandi í morgun eru komnir fram heilir á húfi. Þeir komu inn á Hótel Rangá laust eftir klukkan eitt í dag í fylgd með öðrum erlendum ferðamönnum sem höfðu tekið þá upp í bíla sína og skilað þeim á hótelið, þaðan sem Frakkarnir ætluðu að skreppa í stuttan bíltúr í gær. 16.9.2004 00:01
Innilokaður en hefur það gott Trausti Davíð Karlsson, sem situr nú einn í heiminum í bíl sínum, innilokaður á milli aur- og grjótskriða í Vattarnesskriðum á milli Hafnar og Djúpavogs, segist í viðtali við fréttastofuna hafa það gott í einverunni en sé sárlega farinn að sakna kaffisopa. 16.9.2004 00:01
Albert og Illugi fylgja Davíð Albert Jónsson, sem verið hefur skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og sérlegur ráðgjafi Davíðs Oddssonar, einkum í landvörnum, flyst með Davíð í utanríkisráðuneytið og hefur jafnframt verið skipaður sendiherra frá 15. september. 16.9.2004 00:01
Atlantsolíustöð í Reykjavík? Atlantsolía mun væntanlega opna bensínstöð í Reykjavík innan tíðar eftir að Borgarráð staðfesti skipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir sjálfsafgreiðslustöð við Sprengisand við Bústaðaveg. Atlantsolía var búin að fá fyrirheit um lóðina ef breytingin yrði staðfest. 16.9.2004 00:01
Í kappi við veturinn Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells á Akureyri undirbúa af kappi jarðgangagerð fyrir veturinn. 16.9.2004 00:01
Í kappi við veturinn Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells á Akureyri undirbúa af kappi jarðgangagerð fyrir veturinn. 16.9.2004 00:01