Fleiri fréttir

Grænfriðungur féll fyrir Ísafirði

Skip Grænfriðunga, Esperansa, yfirgaf Ísafjörð í gærkvöld og hélt áleiðis til Húsavíkur. Haraldur Tryggvason, sem kominn er af hvalföngurum, fylgdi skipinu úr höfn á gúmmíbáti sínum með fána Grænfriðunga blaktandi við hún.

Hvannadalshnúkur lækkar

Hvannadalshnúkur hefur lækkað um átta metra samkvæmt nýrri mælingu Jöklarannsóknafélags Íslands. Hann mælist nú 2111 metra yfir sjó en hefur hingað til verið skráður 2119 metrar.

Siglingaþekking í andaslitrunum?

Siglingaþekking Íslendinga virðist vera í andaslitrunum. Í maí síðastliðnum var skrifað undir nýjan kjarasamning skipstjórnarmanna á kaupskipum og við atkvæðagreiðslu um samninginn kom í ljós að hugsanlega er um að ræða næst síðasta kjarasamning sem gerður er fyrir þessa atvinnugrein.

Bókhald Landssímans var í ólestri

Bókhald Landssímans var í ólestri, reikningar ekki skráðir fyrr en við greiðslu og margir óstemmdir biðreikningar. Þetta sagði Sveinbjörn Kristjánsson fyrir dómi en í gær fékk hann þungan fangelsisdóm vegna Landssímamálsins.

Aftaka á íslenskri vefsíðu

Myndband sem sýnir uppreisnarmenn í Írak taka gísl af lífi með hrottafengnum hætti var að finna á einni vinsælustu vefsíðu íslenskra unglinga í dag. Umboðsmaður barna gerði athugasemd til lögreglu sem fór fram á að myndbandið yrði fjarlægt.

Samræði við 13 ára stúlku

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag ungan pilt fyrir að hafa haft samræði við þrettán ára stúlku. Pilturinn var fimmtán ára þegar hann framdi brotið.

Sverðið þunga fær að rísa

Borgarráð hefur gefið leyfi fyrir því að risastóru víkingasverði verði komið fyrir á hringtorginu við Þjóðminjasafnið í hálft ár til að kynna opnun safnsins. Snorri Már Skúlason, kynningarstjóri safnsins, segir vonbrigði að leyfið sé einungis tímabundið.

Áhorf á fréttir Stöðvar 2 eykst

Áhorf á fréttir Stöðvar 2 jókst um tæp 50% á tveimur mánuðum í vor. Á því tímabili var fréttatíminn fluttur fram um hálftíma, til klukkan 18:30. Dagbókarkönnun Gallups fyrir maímánuð leiðir þetta í ljós.

Verkefnisstjórn skipuð

Borgarráð hefur samþykkt að skipa verkefnisstjórn þriggja aðila til að fara með öll málefni tengd menningarminjum í Aðalstræti.

500 skotum verður eytt

Kafarar og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa á síðustu tveimur dögum fundið rúmlega 500 skotfæri í flaki El Grillo, sem liggur á botni Seyðisfjarðar.

Meiri eyðsla

Neysluútgjöld heimilanna hækkuðu um helming frá árinu 1995 sé miðað við meðaltal áranna þriggja 2000-2002. Hækkunin er hlutfallslega mest í síma- og póstkostnað vegna mikillar fjölgunar gsm-símanotkunar síðustu ár.

Golfklúbbi mismunað

Starfsmannaráð Ríkisspítalanna hefur á þriðju milljón króna í tekjur ár hvert af Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í formi 50 árskorta sem renna til ráðsins. Framkvæmdastjóri golfklúbbsins segir klúbbinn ekki sitja við sama borð og önnur íþróttafélög.

Foreldrar útlægir af golfvöllum

Guðmundur Magnússon, landsdómari í golfi, vill að reglum Golfsambands Íslands, verði breytt þannig að foreldrar megi ekki vera kylfusveinar þegar börn þeirra eru að keppa. Ástæðan er skapbrestir og ofbeldishneigð foreldranna.

Íbúar í miðbænum ósáttir

Íbúar við Bergstaðastræti og Spítalastíg í Reykjavík eru ósáttir við fyrirhugaða nýbyggingu sem verður mun hærri en flest íbúðahús á svæðinu. Þeir vilja að skipulagsyfirvöld borgarinnar lengi frest sem íbúar hafa til að gera athugasemdir við deiliskipulag.

Villtar kanínur rannsakaðar

Kanínur í Öskjuhlíðinni voru tæplega sextíu í fyrrasumar. Þær geta fjölgað sér hratt og gotið þremur til fimm ungum í einu á fimm mánaða tímabili frá mars til september. Meðgöngutími kanína er 28-33 dagar, segir í framvinduskýrslu sem unnin var fyrir Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur í fyrrasumar.

Ný stjórnarskrá breytir engu

"Það er rangt í þessari frétt að ný stjórnarskrá Evrópusambandsins geri Íslendingum og Norðmönnum ókleift að ganga í sambandið," segir Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum ESB, vegna fréttar norska blaðsins Fiskaren.

Öryggisreglur Kárahnjúka hertar

Búist er við tugþúsundum ferðamanna að Kárahnjúkum í sumar. Öryggisreglur hafa verið hertar en brögð hafa verið að því að ferðamenn fari inn á bannsvæði.

Fyrsta fataverslunin

Fyrsta fataverslunin í Súðavík var opnuð á miðvikudaginn í síðustu viku. Laufey Friðriksdóttir og Genka Jordanovic standa að rekstrinum. Þær hafa flutt inn barnaföt frá Búlgaríu í eitt og hálft ár en ákváðu að opna verslun og samnýta húsnæði með hárgreiðslustofu Laufeyjar.

Hverfisgötu lokað við Hlemm

Nýjar hugmyndir Reykjavíkurborgar í skipulagsmálum gera ráð fyrir að Hverfisgötu verði lokað milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Skipulags- og byggingarnefnd hefur samþykkt að unnin verði tillaga að nýju deiliskipulagi svæðisins og stendur hagsmunaaðilakynning yfir.

Gagnagrunnur gegn barnaníðingum

"Þetta verkefni snýr að því að efla samstarf milli frjálsra félagasamtaka og lögreglu í hverju landi og búa til gagnagrunn á netinu," sagði Hrönn Þormóðsdóttir hjá Barnaheill.

Samkeppni í bensínverði virk

Verð á bensínlítra er rúmlega níu krónum dýrara á hvern lítra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Brynhildur Pétursdóttir, starfsmaður Neytendasamtakanna, segir forsendu lágs bensínverðs vera að tvær sjálfsafreiðslustöðvar frá sitt hvoru fyrirtækinu séu til staðar.

Þjónustan hvíli á þremur stoðum

Á fundi borgarráðs voru lagðar fram tillögur að stofnun fimm þjónustumiðstöðva í hverfum borgarinnar, stofnun sérstaks símavers og um stóraukna rafræna stjórnsýslu.

Verðbólgan nartar í kaupmáttinn

Launavísitala í maí hækkaði um 0,8 prósent frá því í apríl. Hækunin nemur 4,6 prósentum á ársgrundvelli. Á sama tíma hefur verðbólgan mælst 3,2 prósent. Launahækkanir hafa því rétt ríflega haldið í við verðbólguna. Kaupmáttur launa hefur hækkað um 1,35 prósent á tímabilinu.

Enn stímir Landspítalinn framúr

Bráðabirgðauppgjör Landspítala háskólasjúkrahúss eftir fyrstu fimm mánuði ársins sýnir 99.5 m.kr. umfram fjárheimildir tímabilsins eða 0,9%. Þetta kemur fram í stjórnunarupplýsingum spítalans fyrir tímabilið janúar til maí.

Tveir fyrir dóm vegna bankaráns

Tuttugu og eins árs maður játaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hafa framið vopnað bankarán í úitibúi Búnaðarbanka Íslands að Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember í fyrra.

Mannslát á Þingeyri

Banaslys varð á Þingeyri í gærkvöld þegar maður á áttræðisaldri drukknaði þar í höfninni. Engin vitni voru að slysinu en menn, sem áttu leið framhjá laust fyrir klukkan sjö í gærvköld, sáu manninn á floti í höfninni.

Kona finnst við Heklu

Fjölmennt björgunarlið frá Hellu, Hvolsvelli og víðar, með aðstoð björgunarhunda, fundu belgíska ferðakonu heila á húfi við Heklurætur laust fyrir klukkan sex í morgun. Hún varð viðskila við ferðafélaga sinn í Hekluhlíðum í gærkvöld og hófst leit um klukkan 22.

Þyrla sækir konu í Landmannalaugar

Erlend ferðakona meiddist á fæti í Landmannalaugum í gærkvöld og þar sem hún þjáðist, og vegurinn að slysstað er vondur, óskaði læknir á vettvangi eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Margar bílveltur í gærkvöld

Einn maður slasaðist og annar slapp nær ómeiddur þegar bíll þeirra valt á veginum á milli Sandgerðis og Garðs í gærkvöld.

Dómur í Landssímamálinu í dag

Dómur fellur í Landssímamálinu, einu stærsta fjársvikamáli sem upp hefur komist hér á landi, í Héraðdómi Reykjavíkur klukkan 14 í dag. Einn sakborninganna, Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssímans, hefur játaði um 260 milljóna króna fjárdrátt.

Banaslys á Þingeyri

Banaslys varð á Þingeyri í gærkvöld þegar Guðmundur Friðgeir Magnússon, 77 ára að aldri, til heimilis að Brekkugötu 2, drukknaði þar í höfninni. Engin vitni voru að slysinu en menn, sem áttu leið framhjá laust fyrir klukkan sjö í gærkvöld, sáu hann á floti í höfninni.

Eldisþorskur eftirsóttari

Erlendir fiskkaupendur greiða hærra verð fyrir íslenskan eldisþorsk en villta þorskinn samkvæmt reynslu Brims fiskeldis við Eyjafjörð. Að vísu er um mjög lítið magn að ræða sem slátrað er hjá Brimi, eða 1,5-4 tonn á viku, en viðtökur lofa góðu.

Þrýstingur í stað þvingana

Bandarísk stjórnvöld ætla ekki að beita Íslendinga viðskiptaþvingunum þrátt fyrir að Bandaríkjaþing hafi lýst áhyggjum af hvalveiðum Íslendinga í vísindaskyni í gær. Þess í stað stendur til að beita pólitískum þrýstingi.

Tilboðin langt undir áætlun

Tilboð í tengivirki fyrir Landsvirkjun í Fljótsdal eru langt undir kostnaðaráætlun en þau voru opnuð í gær. Aðeins tveir verktakar buðu í verkið, Fosskraft rúmar 473 milljónir króna og Keflavíkurverktakar röskar 457 milljónir króna.

Ófullnægjandi upplýsingar á Netinu

Verulega skortir á að upplýsingar þeirra sem selja vöru og þjónustu á Netinu séu fullnægjandi. Þetta er niðurstaða Samkeppnisstofnunar sem nýverið kannaði um 10 þúsund íslenskar vefsíður og gerði athugasemdir við fjórðung þeirra.

Félag bókagerðarmanna samþykkir

Félag bókagerðarmanna hefur samþykkt nýja kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins, samkvæmt talningu atkvæða í gærkvöld. Tæplega tólf hundruð voru á kjörskrá en aðeins um það bil fjórðungur greiddi atkvæði. Af þeim var yfirgnæfandi meirihluti fylgjandi samningnum.

Dómur fallinn í Landssímamálinu

Dómur féll í Landssímamálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 14. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssímans og höfuðpaurinn í málinu, var dæmdur í óskilorðsbundið fjögurra og hálfs árs fangelsi.

Stálpípuverksmiðja í Helguvík

Gert er ráð fyrir að hafist verði handa við byggingu stálpípuverksmiðju í Helguvík innan fjögurra til fimm mánaða. Bandaríski stálpípuframleiðandinn International Pipe and tube er á lokastigum fjármögnunar vegna byggingar verksmiðjunnar.

Sýning tileinkuð íslenska hestinum

Ljósmynda- og minjasýning, tileinkuð íslenska hestinum, verður opnuð á Hellu á morgun. Myndirnar eru úr bókinni Íslenski hesturinn, stærsta yfirlitsriti sem út hefur komið um íslenska hestinn.

Árni Þór áfrýjar dómnum

Árni Þór Vigfússon, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Skjás Eins, mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Landssímamálinu svokallaða sem kveðinn var upp síðdegis, að sögn lögmanns hans, Gests Jónssonar.

Kaldaljós fær verðlaun í Slóvakíu

Hilmar Oddsson hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Art Film Festival fyrir bestu leikstjórn fyrir kvikmyndina Kaldaljós í Slóvakíu í gærkvöld.

Hrefnuskip bönnuð í Grundarfirði

Hafnarstjórn Grundarfjarðar hefur bannað komu hrefnuveiðiskipa til Grundarfjarðar að því er fram kemur á vestfirska fréttavefnum, Bæjarins besta. Höfnin hefur verið markaðssett sem spennandi viðkomustaður skemmtiferðaskipa og koma hrefnuveiðiskipa í höfnina virðist ekki talin samræmast þeirri markaðssetningu.

„Afsturlunarte“ á Jónsmessunótt

Jónsmessunótt er í nótt. Af því tilefni munu einhverjir velta sér naktir upp úr dögg en fleira stendur til boða. Til dæmis verður Miðnætur- og Ólympíuhlaup í Laugardalnum klukkan 21 í kvöld og líkt og undanfarin ár munu kynngimagnaðir atburðir eiga sér stað í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Handtekinn með 60 g af kannabis

Snemma í morgun handtók lögreglan á Ísafirði karlmann á átjánda ári og fann í fórum hans tæplega 60 grömm af kannabisefnum. Maðurinn var handtekinn á Ísafjarðarflugvelli en hann var að koma með áætlunarvél frá Reykjavík.

Dalvíkingur í dollarasmygli

Dalvíkingur á fertugsaldri hefur undanfarið rúmt ár tapað fjórum milljónum eftir að hann reyndi að aðstoða Nígeríumann og Suður-Afríkana við að ná 20 milljón dollurum út af bankareikningi og koma þeim undan til Kanada.

Sjá næstu 50 fréttir