Innlent

Mannslát á Þingeyri

Banaslys varð á Þingeyri í gærkvöld þegar maður á áttræðisaldri drukknaði þar í höfninni. Engin vitni voru að slysinu en menn, sem áttu leið framhjá laust fyrir klukkan sjö í gærvköld, sáu manninn á floti í höfninni. Þeir kölluðu á lögreglu og lækni og náðu manninum á land. Lífgunartilraunir báru ekki árangur. Ekki er vitað hvernig slysið varð en maðurinn hafði landað úr báti sínum skömmu áður en hann fannst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×