Innlent

Margar bílveltur í gærkvöld

Einn maður slasaðist og annar slapp nær ómeiddur þegar bíll þeirra valt á veginum á milli Sandgerðis og Garðs í gærkvöld. Þá viðbeinsbrotnaði maður þegar hann féll af vélhjóli sínu á Álfsnesi í Reykjavík í gærkvöld. Tveir erlendir ferðamenn sluppu með skrámur þegar bíll þeirra valt skammt frá Þjórsárbrú og aðrir tveir sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt á Sprengisandi í nótt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×