Innlent

Foreldrar útlægir af golfvöllum

Guðmundur Magnússon, landsdómari í golfi, vill að reglum Golfsambands Íslands, verði breytt þannig að foreldra megi ekki vera kylfusveinar þegar börn þeirra eru að keppa. Ástæðan er skapbrestir og ofbeldishneigð foreldranna. Til átaka kom á milli aðstandenda keppenda á unglingameistaramóti á Hellu um síðustu helgi. Guðmundur segir afa eins keppandans og föður annars hafa lenti í illdeilum. "Þeir rifust heilar níu holur og ég gat ekki annað en reynt að halda þeim frá unglingunum," segir Guðmundur í viðtali við DV. Nánar er fjallað um málið í DV í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×