Innlent

Tilboðin langt undir áætlun

Tilboð í tengivirki fyrir Landsvirkjun í Fljótsdal eru langt undir kostnaðaráætlun en þau voru opnuð í gær. Aðeins tveir verktakar buðu í verkið, Fosskraft rúmar 473 milljónir króna og Keflavíkurverktakar röskar 457 milljónir króna. Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var hins vegar röskar 680 milljónir eða rúmum tvö hundruð og tíu milljónum hærri en hærra tilboðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×