Dómur fallinn í Landssímamálinu 23. júní 2004 00:01
Dómur féll í Landssímamálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 14. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssímans og höfuðpaurinn í málinu, var dæmdur í óskilorðsbundið fjögurra og hálfs árs fangelsi. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson voru dæmdir í óskilsorðsbundið tveggja ára fangelsi hvor. Ragnar Orri Benediktsson var dæmdur í óskilorðsbundið 8 mánaða fangelsi. Stúlka sem tengdist málinu var sýknuð af ákæru. Skaðabótakröfu Landssímans var vísað frá dómi á þeim forsendum að hún þurfi aðra og frekari umfjöllun. Sveinbjörn var dæmdur fyrir fjárdrátt upp á 261 milljón króna úr sjóðum Landssímans. Brotin áttu sér stað frá maí 1999 til maí 2003. Árni Þór, sem er fyrrverandi sjónvarpsstjóri SkjásEins, og Kristján Ragnar, sem er fyrrverandi fjármálastjóri sjónvarpsstöðvarinnar og bróðir Sveinbjörns, hlutu dóm fyrir hylmingu, móttöku og ráðstöfun á annað hundrað milljóna frá Sveinbirni á árunum 1999-2001. Ákæran byggði meðal annars á því að Árna og Kristjáni hafi báðum verið kunnugt um að Sveinbjörn hafi með refsiverðum hætti komist yfir fjármunina hjá Landssímanum. Ragnar Orri hlaut dóm fyrir hylmingu sem meðal annars fólst í viðtöku og notkun á mánaðarlegum greiðslum frá júlí 2001 til júní 2002. Árni Þór, Kristján og Ragnar Orri lýstu allir yfir sakleysi sínu en í niðurstöðu dómsins segir að þegar litið er til gagna málsins, og því sem fram kom í meðferð þess, fái framburður þeirra engan veginn staðist. Sveinbjörn játaði hins vegar sök.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira