Innlent

Verðbólgan nartar í kaupmáttinn

Launavísitala í maí hækkaði um 0,8 prósent frá því í apríl. Hækunin nemur 4,6 prósentum á ársgrundvelli. Á sama tíma hefur verðbólgan mælst 3,2 prósent. Launahækkanir hafa því rétt ríflega haldið í við verðbólguna. Kaupmáttur launa hefur hækkað um 1,35 prósent á tímabilinu. Greining KB banka segir að ætla megi að hækkun launavísitölu eigi rætur í samningsbundnum hækkunum. Sé það rétt og ekki gæti launaskriðs megi búast við að heldur dragi úr hækkun vísitölunnar á næstunni. Búast má við að verðbólga geti farið yfir þolmörk Seðlabankans sem eru fjögur prósent. Gerist það og launaskrið fylgir ekki með, þá má búast við að kaupmáttur rýrni á næstunnir. Greining KB banka segir að fara verði aftur til upphafs ársins 2002 til þess að finna jafn hægan vöxt kaupmáttar. Hækkun launa var þá töluverð, en verðbólguskot át upp kaupmátt launa á tímabilinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×