Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Magalenti á Siglufjarðarflugvelli Dornier flugvél Íslandsflugs, TF-ELH, með tvo flugmenn innanborðs magalenti á flugvellinum á Siglufirði í kvöld. Mennina sakaði ekki. 23.6.2004 00:01
Hótaði að myrða mig segir tengdó "Hann hótaði mér morði, og litla barnabarni mínu mánaðargömlu líka," segir María G. Andrésdóttir, tengdamóðir Fannars Magga Birgissonar, sem stendur nágrannastríði í Jórufelli 12. 23.6.2004 00:01
Framlengja samstarfssamning Össur hf. og Íþróttasamband Fatlaðra (ÍF) hafa framlengt samstarfssamning sinn sem er til fjögurra ára. Um er að ræða fjárhagslegan styrk sem er ætlaður til styrktar ÍF meðal annars við undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008. 23.6.2004 00:01
Veitir 200 manns atvinnu Bandaríski stálpípuframleiðandinn IPT hefur tilkynnt bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ að fyrirtækið sé á lokastigum í samningum við stóran evrópskan banka um að leiða lánsfjármögnun stálpípuverksmiðju í Helguvík. Um verður að ræða atvinnu fyrir nær 200 manns. 23.6.2004 00:01
Tekinn með hass Karlmaður á átjánda ári var handtekinn af lögreglunni á Ísafirði með tæplega 60 grömm af kannabisefnum í gærmorgun. Hann var að koma með áætlunarvél frá Reykjavík. 23.6.2004 00:01
Framkvæmdir hefjast í haust Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að sveitarfélagið greiði fimmtán prósent kostnaðar við uppbyggingu hjúkrunardeildar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Búist er við að framkvæmdir hefjist í haust og taki um tvö ár. 23.6.2004 00:01
Fimmtungur ætlar að skila auðu Fimmtungur kjósenda ætlar að skila auðu í forsetakosningunum næstkomandi laugardag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag. Níu af hverjum tíu þeirra sem taka afstöðu ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Ungar sjálfstæðiskonur hvetja kjósendur til að skila auðu. 23.6.2004 00:01
Vilja aðstöðu fyrir hjólabretti Tveir hjólabrettadrengir, þeir Birkir Kristján Guðmundsson og Daníel Kristjánsson, gengu á fund bæjarstjórans á Seltjarnarnesi á dögunum og afhentu honum undirskriftalista til stuðnings hugmynd þeirra um hjólabrettasvæði á Seltjarnarnesi. 23.6.2004 00:01
Fannst við rætur Heklu Belgísk kona sem saknað hafði verið frá því á þriðjudagskvöld fannst heil á húfi snemma í gærmorgun við rætur Heklu. 23.6.2004 00:01
Allir nýnemar fá skólavist Fjöldi grunnskólanemenda sem sótti um framhaldsskólavist næsta vetur kom menntamálaráðuneytinu í opna skjöldu. Allt að 98% árgangsins sótti um sem er meiri ásókn en búist var við. Samkvæmt tölum hagstofunnar er það um 5-7% aukning frá árinu 2002, auk þess sem tæplega 500 fleiri skipa þennan árgang en þann síðasta. 23.6.2004 00:01
Létti við dómsorðið "Það var ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið. Ég vissi að ég hafði ekki gert neitt rangt og það var léttir að dómurinn hafi séð það líka," segir Auður Harpa Andrésdóttir, sem var sýknuð af ákæru á hendur henni í Landssímamálinu, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, og verða málsvarnarlaun verjanda hennar greidd úr ríkissjóði. 23.6.2004 00:01
Lægri vextir á nýjum íbúðabréfum Lægri vextir og frjálsara val þegar kemur að greiðslutíma lána eru meðal kosta nýrra íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs sem taka við að húsbréfunum um næstu mánaðamót. 23.6.2004 00:01
Fjögurra og hálfs árs fangelsi Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir um 261 milljónar króna frádrátt í starfi. 23.6.2004 00:01
Dómurinn einsdæmi Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu. 23.6.2004 00:01
Ólafur getur vel við unað Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, telur það ekki vera áhyggjuefni fyrir Ólaf Ragnar Grímsson þótt hlutfall auðra seðla verði hátt í forsetakosningunum á laugardaginn kemur. 23.6.2004 00:01
Ráðherrar á faraldsfæti Níu af tólf ráðherrum ríkisstjórnarinnar eru erlendis eða á leið til útlanda fyrir helgina. Ráðherrar fara auðvitað í sín sumarfrí einsog aðrir landsmenn en óvenju margir eru fjarverandi þessa dagana. 23.6.2004 00:01
Blessun yfir samruna "Þetta kemur okkur ekki á óvart í sjálfu sér, en við erum þó mjög ánægðir með þessa niðurstöðu," sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, um þá niðurstöðu samkeppnisráðs, að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa af samruna Fréttar við Norðurljós. 23.6.2004 00:01
Enn margir á biðlista Tæplega 150 unglingar eru enn á skrá eftir atvinnu hjá Vinnumiðlun ungs fólks í Reykjavík þrátt fyrir að langt sé liðið á sumar en alls sóttu rúmlega 2.700 unglingar um í vor. 23.6.2004 00:01
Fasteignamat hækkar um milljónir Fasteignamat íbúða og íbúðalóða í Fjarðabyggð mun hækka um 25% frá og með 1. september næstkomandi, um tæpa tvo milljarða króna. Þetta er niðurstaða endurmats sem Fasteignamat ríkisins hefur gert og byggist á kaupsamningum síðustu missera í sveitarfélaginu. 23.6.2004 00:01
Þyngsti dómur í fjársvikamáli "Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu. 23.6.2004 00:01
Ákvörðun um skólagjöld pólitísk Deildarforsetar við Háskóla Íslands segja skólann ekki hafa fjármagn til að kenna öllum þeim nemendum sem sækja nám við skólann. Eigi að setja skólagjöld við Háskólann sé það hins vegar pólitísk ákvörðun og ekki rétt að þvinga skólann til að eiga frumkvæði að slíkri gjaldtöku. 23.6.2004 00:01
Húsfyllir á tónleikum Deep Purple Mikill mannfjöldi sótti tónleika hljómsveitarinnar Deep Purple í Laugardalshöll í kvöld og varð lögregla vör við talsverða ölvun á svæðinu enda var selt áfengi á tónleikunum. Gerðu gestir góðan róm að gömlu hetjunum sem flestir eru komnir vel yfir miðjan aldur en tóku engu að síður góða spretti á sviðinu. 23.6.2004 00:01
Of snemmt að afskrifa loðnuna "Það er allt of snemmt að afskrifa loðnustofninn í ár, það eru engar sérstakar breytingar sem gefa í skyn að eitthvað annað hafi gerst í ár en gerðist með árganginn í hitteðfyrra," segir Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnuninni. 22.6.2004 00:01
Óvíst að matarverð myndi lækka "Þegar reiknaður er út svokallaður markaðsstuðningur OECD má ekki draga þá ályktun að þessi sparnaður skilaði sér í matarinnkaupum fólks á Íslandi ef landið yrði opnað upp á gátt fyrir erlendum innflutningi og styrkjum til bænda hætt," segir Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. 22.6.2004 00:01
35 þúsund kjósa í fyrsta sinn Hagstofan hefur gefið út kjörskrárstofn vegna forsetakjörsins næstkomandi laugardag. Alls eru 213.553 kjósendur á kjörskrá samkvæmt stofninum, 107.119 konur og 106.434 karlar. Sveitarfélög semja endanlega kjörskrá upp úr kjörskrárstofni Hagstofunnar. 22.6.2004 00:01
Þurfa að viðhalda kosningarétti Íslendingar búsettir erlendis halda kosningarétti sínum í átta ár, en eftir það þarf að viðhalda honum með því að skrá sig sérstaklega á kjörskrá og gildir skráningin í fjögur ár. 22.6.2004 00:01
Hlýjast í gær Hitinn náði 20,3 gráðum í Reykjavík í gær sem er hæsti hiti í borginni í tvö ár. 22.6.2004 00:01
Ekki síðustu ótíðindin Um tuttugu manns verður sagt upp um mánaðarmótin hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þeir bætast í hóp þeirra 126 sem sagt hefur verið upp frá 1. október vegna hagræðingar í rekstri Bandaríkjaflota. 22.6.2004 00:01
Fiskiskip undanþegin frá reglum Fiskiskip verða undanþegin nýjum reglum um hafna- og siglingavernd gegn hryðjuverkum, sem taka gildi um næstu mánaðamót. Það verður því engin röskun á löndun íslenskra fiskiskipa í útlöndum eða á löndunum erlendra skipa hér á landi þegar reglurnar taka gildi. 22.6.2004 00:01
Stal bíl þriggja ferðakvenna Ölvaður maður, sem ekki átti fyrir leigubíl og var á gangi eftir Sæbrautinni í nótt, taldi sig hafa verið bænheyrðan þegar hann gekk fram á mannlausan bíl í gangi við listaverkið Sólfarið, sté upp í hann og ók á brott. Þremur erlendum ferðakonum, sem höfðu numið staðar við Sólfarið til að njóta þar veðurblíðunnar, var hinsvegar illa brugðið. 22.6.2004 00:01
Árshækkun launavísitölu er 4,6% Launavísitala í maí 2004 er 249,5 stig og hækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði. Á einu ári hefur launavísitalan hækkað um 4,6%. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í júlí 2004, er 5457 stig. 22.6.2004 00:01
Feministar gagnrýna orðalag Feministafélag Íslands gerir athugasemd við fréttaflutning fjölmiðla af eiturlyfjasmygli ungrar konu sem kom til landsins með 5000 e-töflur. Í ályktun frá Heilbrigðishóp félagsins segir að fjölskylduhagir eða ástand konunnar komi málinu ekki við enda væri yfirleitt ekki minnst á hjúskaparstöðu eða barnafjölda karlkyns afbrotamanna í fréttum. 22.6.2004 00:01
Allir helstu hálendisvegir færir Allir helstu hálendisvegir eru orðnir færir og er það mun fyrr en oftast hefur verið. Snjóa leysti óvenju snemma og frost fór líka fyrr úr jörðu en venjulega þannig að ekki er lengur hætta á aurbleytu. Enn er þó ófær Gæsavatnaleið í Öskju, en fært er að Öskju norðanmegin. Þá er svæði norðan Langjökuls enn lokað, en þar eru einungis fáfarnir slóðar. 22.6.2004 00:01
Grænfriðungar á Ísafirði Nýjasta skip Grænfriðunga, Esperanza, kom til Ísafjarðar í morgun. Hrefnuveiðar Íslendinga í vísindaskyni eru ein ástæða komu Grænfirðunga hingað. Þá ætla þeir að vekja athygli landsmanna á baráttumálum vegna mengunar sjávar og loftlagsbreytinga. 22.6.2004 00:01
Stefnt að reglulegum siglingum Áhafnir á fjórtán sportbátum eru þegar búnar að skrá sig í hópsiglingu frá Ísafirði yfir til Grænlands eftir mánuð og er stefnt að reglulegum siglingum þangað í framtíðinni. Siglingaleiðin er 220 mílur og er ákvörðunarstaðurinn Miki fjörður á Austurströndinni. 22.6.2004 00:01
Kjör verða ljós um mánaðamót Það skýrist um næstu mánaðamót hver kjör verða á hinum nýju peningalánum Íbúðalánasjóðs, sem eiga að leysa húsbréf af hólmi. Grunnvextir eiga þá að liggja fyrir en síðan leggur stofnunin álag á þá, en ekki er ákveðið hversu mikið það verður. Þá hefur sjóðurinn kynnt skiptiútboð vegna breytinga á húsbréfum yfir í íbúðalán, fyrir þá sem eiga húsbréf, og segir greiningardeild KB banka að stofnunin bjóði hagstæð skiptikjör. 22.6.2004 00:01
Óvenjuleg loðnuvertíð Fimm stór fiskiskip halda til loðnuleitar í dag og á morgun og Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson bætist svo við á föstudag. Í venjulegu árferði væri sumarvertíðin komin í fullan gang. Við eðlilegar aðstæður hefði vertíðin hafist fyrir þremur dögum, en lítið sem ekkert hefur fundist af loðnu þrátt fyrir mikla leit. 22.6.2004 00:01
Tveimur vísað úr landi Tveimur af þeim þremur Palestínumönnum, sem voru í gæsluvarðhaldi eftir að þeir komu til landsins með fölsuð skilríki, var vísað úr landi í morgun. Þriðja manninum verður vísað úr landi í fyrramálið. Talsmaður þeirra gagnrýnir málsmeðferðina harðlega. 22.6.2004 00:01
Þjónusta í borginni endurskipulögð Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ráðast í gagngera endurskipulagningu á þjónustu borgarinnar með það fyrir augum að greiða leiðir borgarbúa að henni. Meðal annars verða stofnaðar fimm þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar. Kostnaður vegna breytinganna nemur um 200 milljónum króna. 22.6.2004 00:01
Vilja Hringbraut í opinn stokk Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, segir tillögu Samtaka um betri byggð, um að setja Hringbraut í opinn stokk, skynsamlega og telur ástæðu til að fara betur ofan í hana. Hann vill meðal annars láta meta hvort raunhæft sé að laga tillöguna að framkvæmdunum við Hringbraut. 22.6.2004 00:01
1000 umsækjendum vísað frá Meira en helmingi umsækjenda Kennaraháskólans verður vísað frá í ár. Nær 1900 umsóknir bárust en rúmlega 900 fá inngöngu í skólann. 685 í grunndeild og 218 í framhaldsdeild. 22.6.2004 00:01
Akrafell í flota Samskipa Samskip hafa bætt við skipi á siglingaleiðinni milli Íslands, Færeyja og meginlands Evrópu. Verður félagið framvegis með viðkomu vikulega á Reyðarfirði og í Klakksvík í Færeyjum í stað hálfsmánaðarlega áður. 22.6.2004 00:01
Eitt brýnasta hagsmunamálið Þingflokkur Samfylkingarinnar telur það eitt brýnasta hagsmunamál fyrir íslenskar fjölskyldur að ráðist verði í nauðsynlegar stjórnvaldsaðgerðir til að lækka matarverð og bendir á hve þungt slíkar breytingar muni vega fyrir ferðamannaþjónustu í landinu. 22.6.2004 00:01
Stofnun gegn spillingu Dómsmálaráðherrar Norðurlanda eru sammála um að herða baráttuna gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi á borð við peningaþvætti, verslun með fólk og fíkniefnasmygl, en slík glæpastarfsemi hefur aukist umtalsvert undanfarin ár og þykir mjög ógnandi. 22.6.2004 00:01
Metþátttaka í Nordisk Panorama Tæplega 450 stutt- og heimildarmyndir bárust í keppni Nordisk Panorama kvikmyndahátíðarinnar, og er það metþátttaka. Fjöldi íslenskra mynda sem sendar voru inn var einnig meiri en nokkru sinni fyrr eða um 40. 22.6.2004 00:01