Hverfisgötu lokað við Hlemm 24. júní 2004 00:01
Nýjar hugmyndir Reykjavíkurborgar í skipulagsmálum gera ráð fyrir að Hverfisgötu verði lokað milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Skipulags- og byggingarnefnd hefur samþykkt að unnin verði tillaga að nýju deiliskipulagi svæðisins og stendur hagsmunaaðilakynning yfir. "Það á að taka í notkun nýtt leiðakerfi fyrir almenningsvagna á öllu höfuðborgarsvæðinu og Strætó bs. hefur óskað eftir að koma fyrir á Hlemmi nýrri og stækkaðri aðalstöð og biðstöð fyrir almenningsvagna," segir Jóhannes S. Kjarval arkitekt, sem hefur umsjón með skipulagsmálum miðborgarinnar. Umsvif strætisvagna á Hlemmi aukast verulega við breytingarnar að sögn Jóhannesar en gert er ráð fyrir að Hlemmur verði endastöð sex stofnleiða. "Í breytingunum felst meðal annars að lokað verður fyrir almenna umferð fyrir framan lögreglustöðina á Hverfisgötu," segir Jóhannes. Þar er áætlað að almenningsvagnar komist fyrir í götustæðinu. Þá er gert ráð fyrir að Laugavegurinn verði tengdur beint í gegnum Hlemmsvæðið að sögn Jóhannesar. "Til að svara þessari breytingu á umferðarkerfinu er einnig gert ráð fyrir fleiri breytingum í næsta nágrenni sem verið er að vinna að," bætir Jóhannes við. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, framkvæmdastjóra Strætós bs., er líklegt að útfærð verði einhvers konar biðstöð eða viðkomustaður á göturýminu framan við lögreglustöðina. Engar breytingar á húsinu við Hlemm liggja hins vegar fyrir í augnablikinu. "Húsið verður þarna áfram fyrst um sinn í óbreyttri mynd," segir Ásgeir. "Hins vegar munum við væntanlega í tengslum við þessa breytingu á umferðarskipulagi á svæðinu gera einhvers konar skoðun á því hvernig hentugast sé að leysa okkar þarfir þar." Áformað er að vinna tillögu að deiliskipulagi á næstu vikum og er gert ráð fyrir að hún verði auglýst lögformlega á tímabilinu frá 7. júlí til ágústloka, að því er fram kemur í auglýsingu frá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira