Innlent

Banaslys á Þingeyri

Banaslys varð á Þingeyri í gærkvöld þegar Guðmundur Friðgeir Magnússon, 77 ára að aldri, til heimilis að Brekkugötu 2, drukknaði þar í höfninni. Engin vitni voru að slysinu en menn, sem áttu leið framhjá laust fyrir klukkan sjö í gærkvöld, sáu hann á floti í höfninni. Þeir kölluðu á lögreglu og lækni og náðu honum á land en lífgunartilraunir báru ekki árangur. Ekki er vitað hvernig slysið varð en Guðmundur Friðgeir hafði landað úr báti sínum skömmu áður en hann fannst og hafði fært bátinn að annarri bryggju, líklega til að taka olíu. Hugsanlegt er talið að hann hafi fallið fyrir borð eða hann hafi fallið úr stiga utan á bryggjunni. Lögreglan á Ísafirði rannsakar málið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×