Innlent

Handtekinn með 60 g af kannabis

Snemma í morgun handtók lögreglan á Ísafirði karlmann á átjánda ári og fann í fórum hans tæplega 60 grömm af kannabisefnum. Maðurinn var handtekinn á Ísafjarðarflugvelli en hann var að koma með áætlunarvél frá Reykjavík. Hann sagðist hafa ætlað efnið til eigin neyslu.  Lögreglan yfirheyrði manninn en sleppti honum að því loknu. Ekki er talið að aðrir tengist málinu. Hinn handtekni hefur ekki áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála en hins vegar legið undir grun. Mál mannsins mun fljótlega verða afhent lögreglustjóra til refsimeðferðar, að því er segir á lögregluvefnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×