Innlent

Verkefnisstjórn skipuð

Borgarráð hefur samþykkt að skipa verkefnisstjórn þriggja aðila til að fara með öll málefni tengd menningarminjum í Aðalstræti. Hlutverk verkefnisstjórnar verður að sjá til þess að byggingaframkvæmdir við minjaskála þann er reisa á í tengslum við nýtt hótel í Aðalstræti taki mið af sýningu fornminja og geri skálann þannig úr garði að nýting hans verði sem allra best. Skal stjórnin enn fremur skila borgarráði skýrslu fyrir áramót og skulu liggja þar fyrir allar helstu upplýsingar og kostnaðaráætlun. Ljúka á byggingu minjaskálans vorið 2005.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×