Fleiri fréttir

Loðnuskipin streyma á miðin

Loðnuskipin streyma nú á miðin undan Landeyjasandi eftir brælu og hefjast veiðar væntanlega af fullum krafti í dag.

Hagnaður hjá Bakkavör í fyrra

Matvælaframleiðslufyrirtækið Bakkavör Group hagnaðist um 2,1 milljón punda, jafngildi tæplega 409 milljóna íslenskra króna, í fyrra. Þetta er mikill viðsnúningur frá árinu áður þegar félagið tapaði 75 milljónum punda.

Funduðu með MI5-njósnara

Annie Machon, framkvæmdastjóri Samtaka löggæslustétta gegn bannhyggju, fundaði í gær með starfshópi á vegum menntamálaráðuneytisins. Hópurinn vinnur að framgangi þingsályktunartillögu sem miðar að því að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis.

Brottkast aflagt á næstu árum

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins (ESB) hafa náð samkomulagi um að brottkast á fiski verði aflagt í áföngum á tímabilinu frá janúar 2014 til ársins 2019. Samþykkt Evrópuþingsins þarf til að samkomulagið hljóti gildi en fréttaskýrendur telja það aðeins formsatriði.

Birta ábendingar frá neytendum á vefnum

"Fór í blóðprufu 28. desember 2012, þá kostaði hún 1.800 krónur, þurfti aftur í blóðprufu í gær 26. febrúar 2013 og þá kostaði hún 1.900 krónur. Ríkið að standa vörð um heilbrigðiskerfið eða hvað!“

Hefur tekist að snúa öllu á hvolf á Ítalíu

Ítalski stjórnmálaleiðtoginn Beppe Grillo tekur sér stöðu meðal fólksins gegn ráðamönnum og stjórnmálaelítunni. Hann útilokar þátttöku í stjórnarsamstarfi en reiknar með að gömlu vinstri og hægri öflin reyni að mynda breiða stjórn.

Drög að Marsferð kynnt - Óska eftir þolinmóðum geimförum

Ferðalög til Mars, næsta nágranna Jarðar, eru greinilega ekki fjarlægur möguleiki, ef marka má bandaríska auðkýfinginn Dennis Tito og hugmyndir hans. Á blaðamannafundi í dag svipti milljarðamæringurinn hulunni af fyrirtækinu The Inspiration Mars Foundation sem ætlar að senda fyrstu geim-ferðalangana til Mars árið 2018.

Sigldu yfir Skerjafjörð með 700 blaðsíðna bók

Nokkrir vaskir skátar sigldu nýverið með 700 blaðsíðna afmælisrit sitt í gúmmíbát frá Bakkavör til Bessastaða þar sem það var formlega afhent. Forsetinn sagði að líklega hefði enginn á lýðveldistíma lagt jafn mikið á sig við að koma bók til Bessastaða enda viðraði ekki sem best til sjóferða.

„Finnst það miður að sérstök lög þurfi um kynjakvóta“

"Þetta kallar ekki á neinar breytingar hjá okkur, það er meirihluta kvenna í stjórn félagsins,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair. Fyrirtækið, sem er eitt stærsta félag í Kauphöll Íslands, mun á aðalfundi sínum í mars breyta samþykktum sínum til að jafna hlut kynja í stjórn fyrirtækisins. Breytingarnar eru gerðar í samræmi við breytingar á hlutafélagalögum sem sett voru árið 2010 en breytingarnar sjálfar taka gildi 1. september.

Ótrúlegt myndband frá hrapi loftbelgsins í Egyptalandi

Ferðamaður í Egyptalandi náði ótrúlegum myndum af því þegar loftbelgur sprakk hátt yfir Dal konunganna í Egyptalandi í vikunni. Nítján manns fórust í slysinu sem átti sér stað skammt frá Lúxor. Belgurinn var í 300 metra hæð þegar eldurinn kom upp.

Íslenskt gullæði í uppsiglingu?

Það gæti reynst hagkvæmt að vinna gull úr bergi í Þormóðsdal en það er ríkara af gulli en það berg sem finnst í nágrannalöndum Íslands, segir jarðfræðingur.

Stuttur svefn ræðst á ónæmiskerfið

"Við vitum það að svefntruflanir leiða til ýmissa kvilla í líkamanum eins og sykursýki og háþrýstings,“ segir Helgi Gunnar Helgason, svefntæknifræðingur. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi þar við þáttastjórnendur um niðurstöður nýlegrar rannsóknar sem breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá í dag. Þar kemur fram að hundruðir gena í mannslíkamanum breytist við það að fá of stuttan svefn.

Vantrauststillagan enn í skoðun hjá Þór

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að vantrauststillaga á ríkisstjórnina sé enn í skoðun hjá sér. Það fari eftir því hvort að stjórnarskrármálið verði tekið fyrir á næstunni.

Vetnisdrifinn Hyundai ix35

Ætla að framleiða 1.000 eintök til prófana til ársins 2015. Það er einmitt árið sem margir bílaframleiðendur ætla fyrir alvöru að hefja sölu vetnisbíla.

Einblína á þá bolta sem eru í loftinu

Eva Einarsdóttir formaður ÍTR segist hafa sest niður með fulltrúum Skíðasambands Íslands árið 2011 vegna tillögu um byggingar skíðahúss í Úlfarsfelli.

Vill beita matvælaframleiðendur háum fjársektum

"Það var engin vara í samræmi við innihaldslýsingu, og það eitt og sér, er grafalvarlegt mál," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, um niðurstöður sýnatöku matvælastofnunar þar sem sextán matvörutegundir voru rannsakaðar.

Læstu ógnandi nemanda inni

Sex manns vikið úr starfi við grunnskóla eftir að nemandi með hníf var læstur inni í herbergi.

Segir niðurstöður rannsókna á kjötvörum öruggar

Rannsóknir á þeim sextán sýnum sem Matvælastofnun keypti og rannsakaði, voru framkvæmdar á tveimur mismunandi rannsóknarstofum að sögn Kjartans Hreinssonar, sérgreinadýralæknis hjá Matvælastofnun.

Jesus og tólf aðrir fá ríkisborgararétt

Allsherjar- og menntamálanefnd leggur til að þrettán einstaklingar fái ríkisborgararétt fyrir vorið, en 36 umsóknir um ríkisborgararétt bárust. Frumvarpi allsherjar- og menntamálanefndar til laga um veitingu ríkisborgararéttar var dreift á Alþingi í gær.

Nýr Golf GTI kynntur í Genf

Verður 220 hestöfl en eyðslan minnkar um heil 18%. Mun kosta 28.350 Evrur í Evrópu, en aðeins 23.995 dollara í Bandaríkjunum.

Kostur tekur nautaböku og lambahakkbollur úr sölu

Kostur hefur tekið Nautaböku og lambahakkbollur frá Gæðakokkum í Borgarnesi úr sölu á meðan innihaldslýsingar veita viðskiptavinum verslunarinnar ranga mynd af innihald og samsetningu matvaranna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Kostur sendi frá sér fyrir stundu og Jón Gerald Sullenberg skrifar undir.

Segist ekki kunna neinar skýringar á skorti á nautakjöti

"Ég kann ekki skýringar á þessu,“ segir Magnús Nielsson, annar af eigendum Gæðakokka í Borgarnesi, en Matvælastofnun rannsakaði tvær vörur frá fyrirtækinu og kom þá annarsvegar í ljós að Nautabaka frá fyrirtækinu, sem sögð var innihalda 30% nautahakk í fyllingu, sem átti að vera helmingur af þyngd vörunnar, innihélt ekkert kjöt (ekkert dýraprótein).

Morðinginn meðal hinna látnu

Skotárás varð í timburverksmiðju í Sviss um níuleytið í morgun og féllu þrír í árásinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er morðinginn þeirra á meðal.

Fimmtungur á ónýtum dekkjum

Fimmtungur bíla sem kom á tjónaskoðunarstöð VÍS var á dekkjum sem voru of slitin til að hægt væri að aka á þeim. Dýpt mynstursins var innan við 1,6 millimetrar. 101 bíll kom í tjónaskoðunarstöð VÍS fyrstu átta vikur ársins. Þar af reyndust 13% á sumardekkjum, 28% á negldum dekkjum og 59% á vetrar- eða heilsársdekkjum.

Njósnabíll við Njarðvíkurhöfn

Bíll með falinni myndavél hefur undanfarna daga staðið við Njarðvíkurhöfn. Bíllinn er á vegum Fiskistofu samkvæmt upplýsingum frá lögreglu til að fylgjast með löndun í höfninni.

Ekkert nautakjöt í nautabökum Gæðakokka

Rannsókn Matvælastofnunar á kjötinnihaldi 16 íslenskra matvara sýnir að Gæðakokkar í Borgarnesi hafa framleitt og markaðssett tvær vörur sem sagðar eru innihalda nautakjöt en niðurstöður rannsóknarinnar sýna að svo er ekki. Engin vara sem skoðuð var í rannsókninni uppfyllti allar kröfur um merkingar. Þetta kemur fram á heimasíðu stofnunarinnar.

Fær tæpar tvær milljónir í bætur vegna gæsluvarðhalds og farbanns

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið í dag til þess að greiða konu rétt tæplega tvær milljónir króna í bætur vegna gæsluvarðhalds og farbanns sem konan þurfti að þola eftir að hún var handtekin ásamt annarri konu við komuna hingað til lands með Norrænu í júní árið 2010.

Vissu af viðvörun almannavarna þegar þeir óku að Landmannalaugum

"Hann vissi af veðurspá og vatnavöxtum, en það var ekkert af veðrinu þennan dag,“ segir Björn Hróarsson, eigandi ferðafyrirtækisins Extreme Iceland, en ökumaður fyrirtækisins komst í hann krappan í fyrradag þegar hann festi bíl sinn í straumharðri á nærri Landmannalaugum.

Brjóstaskorur bannaðar á unglingaballi

"Við höfum ekki fengið neinar athugasemdir við þetta, fólk er almennt séð mjög ánægt með þetta," segir Björg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Hið árlega Samfés-ball verður haldið á föstudaginn í Laugardalshöll þar sem yfir 4500 unglingar koma saman víðsvegar að af landinu.

Ekki vitað hvað orsakaði truflun í lokaaðflugi

Eitt af þremur vökvaaflskerfum flugvélar Icelandair bilaði þegar flugvélin hóf lækkun á flugi inn til Keflavíkurflugvallar í gærkvöldi. Unnið var eftir gátlista þegar þetta atvik kom upp.

Okawa elst í heimi - "Ég er rosalega ánægð"

Japanska konan Misao Okawa var í gær útnefnd elsta kona í heimi en hún er 114 ára gömul. Japanir eiga nú bæði elstu konu og elsta karl í heimi, samkvæmt heimsmetabók Guinness.

Russell Crowe ræddi Íslandsdvöl við Jay Leno

Íslandsvinurinn Russell Crowe varð upprifinn yfir fegurð Íslands þegar hann var hér við tökur á myndinni Noah í sumar. Hann segir þó að það hafi verið erfitt að búa hérna. Þetta sagði hann í samtali við spjallþáttastjórnandann Jay Leno þegar hann ræddi við hann í gærkvöld. "Ísland er erfiður staður að búa á. Þegar sumarið er gott, þýðir það að það hafa verið fleiri en 10 sólardagar. Og veðrið getur breyst í einni svipan,“ sagði Crowe.

Lést eftir hákarlaárás

47 ára karlmaður beið bana undan ströndum borgarinnar Auckland á Nýja Sjálandi eftir að hákarl réðist á hann.

Sjá næstu 50 fréttir