Innlent

Segir Fiskistofu brjóta persónuverndarlög með njósnum

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Fiskistofa gæti verið að brjóta persónuverndarlög með því að vakta fólk leynilega segir lögfræðingur en bíll með falinni myndavél hefur staðið við Njarðvíkurhöfn og myndað hafnarsvæðið.

Bíllinn hefur verið á ferli um hafnarsvæðið undanfarna daga að sögn hafnarstarfsmanna sem fréttastofa ræddi við í dag. Það var hins vegar ekki fyrr en síðdegis í gær sem Víkurfréttir vöktu athygli á málinu og þá hafði þessi bílaleigubíll staðið allan daginn við hafnarsvæðið en myndavélin var falin í afturglugga hans.

Eyþór Björnsson fiskistofustjóri sagði í samtali við fréttastofu í dag að Fiskistofa notaði ýmsar aðferðir við eftirlit, svo sem myndavélar, bíllinn hafi staðið þarna við höfnina frá morgni til kvölds í gær og tilefnið hafi verið rannsóknarvinna en það er hlutverk Fiskistofu að fylgjast meðal annars með hvort menn séu að landa framhjá vigt.

Lögmaður hjá LEX segir að í fljótu bragði gæti þarna verið um brot á persónuverndarlögum að ræða.

„Þá virðist sem svo að hér hafi átt sér stað vöktun sem fari fram með leynd og samkvæmt lögum um persónuvernd er slík vöktun óheimil nema að í algjörum undantekningartilvikum sem slíkt er heimilt," segir Ingvi Snær Einarsson, héraðsdómslögmaður.

Hann segir að í raun þurfi einhver sem komi fram á myndbandinu að kvarta til Persónuverndar svo að málið fari lengra en Fiskistofustjóri segir vöktunina beinast að ákveðnum aðila tengt ákveðinni rannsókn og einungis í stuttan tíma.

„Mér finnst frekar ólíklegt að menn geti komist hjá lögum um meðferð persónuupplýsinga með því að beita þessu með einhverjum hætti, það er, að sinna eftirliti í stutta stund."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×