Fleiri fréttir

Íslendingar óviðbúnir óvæntum hamförum

Ísland er ekki nægilega undirbúið fyrir vá sem hér gæti hugsanlega riðið yfir. Landið er þó vel í stakk búið til að takast á við þekktar hamfarir. Efla þarf samstarf vísindamanna og almannavarna og gæta að mönnun á sviði björgunar.

Sönn og sérstök sakamál

Sakamál tengd bankahruninu eru orðin allnokkur og þeim á enn eftir að fjölga. Hæpið er að áætlanir sérstaks saksóknara um að þau verði öll um garð gengin í árslok 2014 standist. Þrír hafa hlotið fangelsisdóma í hrunmálum og tugur annarra ákærður.

Igor fékk loks skó

Stærsti maður Bandaríkjanna, Igor Vovkovinskiy, hefur loks fengið sína eigin tennisskó. Igor hefur beðið eftir þessu augnabliki árum saman.

Vildi 60 milljónir evra í tóbaksmútur

Sænska munntóbaksframleiðandanum Swedish Match bauðst í fyrra að greiða 60 milljónir evra til að geta haft áhrif á væntanlega löggjöf ESB um tóbak. Greiða átti peningana í tveimur áföngum, 10 milljónir evra beint á borðið og 50 milljónir evra eftir lagabreytingu. Þetta upplýsir upplýsingastjóri Swedish Match, í viðtali við sænska blaðið Aftonbladet.

Heilastarfsemin virðist eðlileg

Pakistanska stúlkan Malala Yousufzai er á hægum batavegi á sjúkrahúsi í Bretlandi, en þangað var hún flutt eftir að hún varð fyrir skotárás í heimabæ sínum í Pakistan.

Facebook og Twitter hefta þroska barna

Þráhyggja og skortur á sjálfsstjórn eru fylgifiskar mikillar notkunar á samskiptamiðlum á borð við Facebook og Twitter. Einna helst eru það börn sem eiga í hættu á að verða fyrir langvarandi áhrifum samfélagsmiðla.

Nýr formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepp var kosinn formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á ársþingi samtakanna, sem lauk í dag á Hellu. Gunnar tekur við starfinu af Elfu Dögg Þórðardóttur, sem var formaður í tvö ár. Þingið samþykkti meðal annars að leggja Atvinnuþróunarfélag Suðurlands niður frá næstu áramótum og fær þá frá sama tímabili starfsemi sjóðsins til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Gunnlaugur Grettisson, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum var kosinn nýr varaformaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á þinginu.

Úlpumaðurinn slær hafragrautsmanninum við

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því á Facebook-síðu sinni að einn af þeirra allra bestu mönnum stoppaði ökumann fyrr í dag, en ástæða þess að lögreglan sá ástæðu til þess að hafa afskipti af ökumanninum var sú að sá hafði ekki verið með bílbelti við aksturinn.

Bankarnir byrji samt að endurreikna lánin

Bankarnir ættu strax að byrja að endurreikna öll þau lán þar sem fullnaðarkvittanir liggja fyrir og ljóst er að fólk og fyrirtæki hafa staðið í skilum með lán sín. Þetta segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. Hæstiréttur dæmdi í gær að óheimilt væri að reikna vexti afturvirkt af ólöglegum gengislánum, ef fullnaðarkvittanir lægju fyrir. Talið er að dómurinn feli í sér mikilvæg skilaboð um það hvernig bankarnir eigi að haga endurútreikningi slíkra lána.

Fimm nýir dómarar munu bætast við Héraðsdóm Reykjavíkur

Innanríkisráðuneytið auglýsir í dag lausar stöður fimm héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Tveir dómarar verða skipaðir með fast sæti við dóminn en þrír dómarar verða settir tímabundið. Gert er ráð fyrir að dómararnir hefji störf um næstu áramót. Samkvæmt upplýsingum á vef Héraðsdóms Reykjavíkur eru á þriðja tug dómara starfandi við réttinn.

Enn er leitað að Rebekku Rut

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rebekku Rut Baldvinsdóttur, 15 ára. Rebekka Rut er um 156 sentimetrar á hæð með sítt skollitað hár og grannvaxin. Samkvæmt nýjustu upplýsingum var Rebekka klædd í svartar buxur, hvítan stuttermabol og bleikan hlýrabol.

Fágætt viðtal við frænda leiðtoga Norður-Kóreu

Frændi leiðtoga Kim Jong-Un, leiðtoga Norður-Kóreu, kom fram í viðtali í Bosníu, þar sem hann stundar nám þessa stundina. Frændinn, sem heitir Kim Han-sol er sautján ára gamall og ólst meira eða minna upp í Maká og Kína. Faðir hans, Kim Jong-nam er bróðir Kim Jong-il hins alræmda einræðisherra Norður-Kóreu, sem lést í desember á síðasta ári.

Dómurinn kostar bankana tugi milljarða

Landsbankinn segir jákvætt að gengið hafi dómur sem varpi frekari ljósi á það hvernig Hæstiréttur telur að standa eigi að endurreikningi gengistryggðra lána. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í dag í tilefni af dómi Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka.

Björgunarsveitin á forsíðu símaskrárinnar

Í dag var skrifað undir samkomulag þess efnis að næsta bindi Símaskrárinnar verði helgað sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Forsíðan hefur á stundum verið heldur umdeild, meðal annars prýddi Egill Gilzenegger Einarsson forsíðuna í eitt skiptið. Þá myndskreytti Hugleikur Dagson forsíðuna um árið.

Er Stangaveiðifélagið að missa Norðurá?

Veiðifélag Norðurár hefur hafnað ósk Stangaveiðifélags Reykjavíkur um lækkun á leiguverði. Þar með er ljóst að 66 ára samstarfi þessara aðila lýkur næsta sumar. Vefsíða Skessuhorns greinir frá þessu.

Grásleppukarlar í vanda vegna evrukreppunnar

Kreppa er orðin á hrognamarkaði í heiminum og er fjórðungur allra grásleppuhrogna af síðustu vertíð hérlendis óseldur. Grásleppusjómenn vilja dregið verði úr veiðunum um þirðjung á næsta ári til að bregðast við ástandinu.

Greiðir atkvæði gegn tillögum stjórnlagaráðs

Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra, ætlar að greiða atkvæði gegn frumvarpi stjórnlagaráðs á morgun. Hann er ósáttur við ákvæði í frumvarpinu um þjóðaratkvæðagreiðslur og takmarkanir á heimildum til útlendinga um kaup á fasteignum og atvinnufyrirtækjum.

Jan Mayen-áform Noregs spennandi fyrir Íslendinga

Áform Norðmanna um að opna sinn hluta Jan Mayen-svæðisins til olíuleitar gætu haft verulega þýðingu fyrir Íslendinga, bæði vegna samningsákvæðis um fjórðungshlut Íslands, en einnig vegna nálægðar við Drekasvæðið. Norsk stjórnvöld hófu í vikunni opið umsagnarferli vegna umhverfismats við Jan Mayen en þetta er liður í þeirri stefnumörkun þeirra að opna svæðið til olíuvinnslu. Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, fylgdi þessari ákvörðun úr hlaði með yfirlýsingu um að við Jan Mayen gætu verið verulegar olíu- og gaslindir. Frestur er veittur fram í janúar til að skila inn athugasemdum en þegar umhverfismatinu lýkur hyggst ríkisstjórn Noregs leggja áætlun fyrir norska stórþingið þar sem nánar verður mælt fyrir um olíuleitina. Íslendingar hafa sérstaka ástæðu til að fylgjast grannt með hvaða stefnu Norðmenn taka því ákveði þeir að hefja olíuleit sín megin á Jan Mayen-hryggnum má telja líklegt að athygli olíuiðnaðarins muni jafnframt beinast að Drekasvæðinu, þeim hluta sem er Íslandsmegin. Þá hafa Íslendingar einnig beinna hagsmuna að gæta, hefji Norðmenn olíuleit þarna, því Jan Mayen-samkomulag þjóðanna veitir Íslendingum rétt til 25 prósenta hlutdeildar í olíuleit og vinnslu á stóru svæði Noregsmegin miðlínunnar.

Ragnar Þór býður sig fram gegn Gylfa

Ragnar Þór Ingólfsson, Stjórnarmaður VR, hefur tilkynnt kjörstjórn ASÍ að hann hyggist bjóða sig fram gegn Gylfa Arnbjörnssyni, forseta sambandsins, á fjölmennu þingi sem stendur nú yfir. Kosningin mun fara fram á milli 11:00 og 12:00 en hún verður leynileg. Um 300 fulltrúar 51. stéttarfélags eru á þinginu, þar af eru VR með flesta fulltrúa.

Um 600 manns á fundi Landsbjargar

Slysavarnafélagið Landsbjörg býst við að um 600 manns verði viðstaddir alþjóðlegu ráðstefnuna Björgun á Grand hóteli Reykjavík um helgina, en þetta er ein af stærstu ráðstefnunum í björgunargeiranum í heiminum. Í tilkynningu sem barst frá Landsbjörg í morgun segir að hátt í 60 fyrirlestrar verði fluttir á ráðstefnunni. Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, flytur opnunarfyrirlesturinn. Í honum mun Víðir fjalla um hvort Íslendingar eru undirbúnir undir hamfarir sem geta orðið og hvort hægt sé að nýta þá reynslu sem þegar hefur safnast, t.d. í eldgosum síðustu áratuga og stórum jarðskjálftum.

Efnahags- og viðskiptanefnd fundar klukkan eitt

Efnahags- og viðskiptanefnd mun funda klukkan eitt í dag til þess að fara yfir vaxtadóm Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. Dómurinn kveður á um að bankarnir megi ekki reikna vexti afturvirkt. Um leið og hann var kveðinn upp kallað Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, til fundar í henni. Þangað munu mæta fulltrúar frá Samtökum fjármálafyrirtækja og viðskiptabönkunum þremur, Umboðsmanni skuldara, Hagsmunasamtökum heimilanna, Samtökum lánþega og Borgarbyggðar. Þá mun Ása Ólafsdóttir lektor einnig verða á fundinum.

Leggjast gegn stofnun atvinnumáladeildar

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins leggst gegn tillögu borgarstjórans, Jóns Gnarr, um að stofna sameiginlega atvinnumáladeild hjá borginni. Í bókun Sjálfstæðisflokksins, sem lögð var fram á borgarráðsfundi í gær, kom fram að að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, geti ekki fallist á að það sé gert með þeim hætti sem borgarstjórinn leggur tillöguna fram.

Leyfa rækjuveiðar í Skjálfanda og Arnarfirði

Hafrannsóknarstofnun hefur lagt til að leyfilegt verði að veiða 400 tonn af rækju í Skjálfanda á þessu fiskveiðiári og 450 tonn í Arnarfirði. Hinsvegar verði áfram bann við rækjuveiðum í Ísafjarðardjúpi og Axarfirði.

Um 30 lömb drápust þegar flutningabíll valt á hliðina

Um það bil 30 lömb drápust þegar stór fjárflutningabíll valt á hliðina út af Hróarstunguvegi, milli Lagarfljóts og Jökulsár á Dal á Austurlandi í gærkvöldi, en hátt í 300 lömb voru í tengivagninum.

Lögreglan handtók hælisleitenda í Sundahöfn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók erlendan hælisleitenda á athafnasvæði Eimskips í Sundahöfn á sjötta tímanum í morgun og er hann nú vistaður í fangageymslu.

Leikkonan sem lék Emmanuelle er látin

Hollenska leikkonan Sylvia Kristel er látin, sextug að aldri. Hún varð þekkt í kvikmyndasögunni fyrir hlutverk sitt sem Emmanuelle í samnefndum léttbláum kvikmyndum á áttunda áratug síðustu aldar.

Hreppsnefnd skorar á Strax að lækka verðið

„Verðlagið er svakalegt,“ segir Ragnar Magnússon, oddviti í hreppsnefnd Hrunamannahrepps, sem skorað hefur á verslunina Strax að lækka vöruverð og hafa lengur opið á veturna.

Þak sett á innheimtukostnað

Reglugerð um þann kostnað sem lögmenn mega innheimta af skuldurum er nú til umsagnar hjá Lögmannafélagi Íslands. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að samkvæmt lögum yrði hlustað á sjónarmið félagsins, en ráðuneytið væri ekki skuldbundið til að fara eftir þeim.

Reyna greiningu á kúaveiru á Keldum

Sýni sem tekin voru á 40 kúabúum á Austurlandi vegna smitandi barkabólgu voru öll neikvæð að undanskildu endurteknu sýni á Egilsstaðabúinu, þar sem sýkingin greindist upphaflega, og úr einum grip á bænum Fljótsbakka sem einnig er á Fljótsdalshéraði. Gripurinn var gefinn frá Egilsstaðabúinu í febrúar. Eðli sýkingarinnar, eða stofn veirunnar, liggur ekki fyrir enn en á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum er unnið að því að rækta veiruna til greiningar.

Skjalasafnið fyllir 8.000 öskjur

Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS) afhendir Þjóðskjalasafni Íslands skjalasafn sitt til varðveislu í dag. Safnið er gríðarmikið vöxtum og geymir frumheimildir um merkilegan kafla í sögu 20. aldar á Íslandi.

Þriðji aðili fær aldrei upplýsingar

Kínverska fjarskiptatæknifyrirtækið Huawei tekur öryggismál afar alvarlega, að því er fram kemur í yfirlýsingu Kenneths Fredriksen, aðstoðarsvæðisforstjóra Huawei í Mið- og Austur-Evrópu auk Norðurlanda.

Kambódíubúar syrgja Sihanuk

Jarðneskar leifar Norodoms Sihanouk, fyrrverandi konungs Kambódíu, voru í gær fluttar heim til Kambódíu frá Kína þar sem hann lést á mánudaginn. Sihanouk hafði dvalið í Kína frá því í janúar, þar sem hann gekkst undir læknismeðferð. Sihanouk ríkti í Kambódíu á árunum 1941 til 1955 og síðan aftur frá 1993 til 2004, en þá tók sonur hans, Norodom Sihamoni, við tigninni.

Mikilvægt fólk fær ekki að fara frá Kúbu

Íbúar á Kúbu geta brátt ferðast úr landi án þess að þurfa að fá sérstaka brottfararheimild frá stjórnvöldum og greiða fyrir háa upphæð. Kúbustjórn tilkynnti um þetta í ríkisdagblaðinu Granma og sagði nýja fyrirkomulagið taka gildi 14. janúar.

Hundruð manna mótmæla

Jafnt kaþólskir íbúar Norður-Írlands sem mótmælendur tóku þátt í mótmælum í Belfast í gær gegn fyrstu fóstureyðingarstofunni sem opnuð er á Írlandi.

Hollande og Merkel greinir á um leiðir

Ágreiningur milli Angelu Merkel Þýskalandskanslara og François Hollande Frakklandsforseta setur svip sinn á tveggja daga leiðtogafund Evrópusambandsins, sem hófst í Brussel í gær.

Tímamótareikistjörnufundur

Evrópskir stjörnufræðingar hafa fundið reikistjörnu, álíka massamikla og jörðina, á braut um stjörnu í Alfa Centauri-kerfinu, sem er nálægasta stjörnukerfi við jörðina, í um 4,3 ljósára fjarlægð. Þetta kemur fram á Stjörnufræðivefnum.

Sjá næstu 50 fréttir