Innlent

Nýr formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepp var kosinn formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á ársþingi samtakanna, sem lauk í dag á Hellu. Gunnar tekur við starfinu af Elfu Dögg Þórðardóttur, sem var formaður í tvö ár. Þingið samþykkti meðal annars að leggja Atvinnuþróunarfélag Suðurlands niður frá næstu áramótum og fær þá frá sama tímabili starfsemi sjóðsins til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Gunnlaugur Grettisson, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum var kosinn nýr varaformaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á þinginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×