Mikilvægt fólk fær ekki að fara frá Kúbu 19. október 2012 06:00 Kúbumönnum verður gert auðveldara að heimsækja ættingja og vini erlendis. nordicphotos/AFP
Íbúar á Kúbu geta brátt ferðast úr landi án þess að þurfa að fá sérstaka brottfararheimild frá stjórnvöldum og greiða fyrir háa upphæð. Kúbustjórn tilkynnti um þetta í ríkisdagblaðinu Granma og sagði nýja fyrirkomulagið taka gildi 14. janúar. Þá fá þeir sem fara úr landi heimild til að dvelja í tvö ár í útlandinu, en áður höfðu þeir ellefu mánaða frest til að snúa aftur áður en þeir yrðu sviptir ríkisborgararétti á Kúbu. Þá var einnig skýrt frá því að ríkið áskildi sér áfram rétt til þess að „verja sig gegn íhlutunar- og niðurrifsáformum Bandaríkjastjórnar og bandamanna hennar. Af þeim sökum verða áfram í gildi þær ráðstafanir sem miða að því að vernda þann mannauð sem byltingin skapaði gegn hæfileikaþjófnaði voldugra ríkja.“ Þarna er átt við reglur um að læknar, vísindamenn, hermenn og aðrir sem teljast sérlega mikilvægir einstaklingar í samfélaginu fái ekki fararleyfi, þrátt fyrir nýju reglurnar. Breytingarnar eru sagðar gerðar til þess að koma betur til móts við Kúbumenn, sem fluttir eru af landi brott. Um milljón Kúbumenn búa í Bandaríkjunum og nokkur hundruð þúsund í Evrópuríkjum. - gb
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira