Jan Mayen-áform Noregs spennandi fyrir Íslendinga Kristján Már Unnarsson skrifar 19. október 2012 11:45 Kortið sýnir hvar Íslendingar og Norðmenn sömdu um gagnkvæman 25% nýtingarrétt á Jan Mayen-hryggnum.
Áform Norðmanna um að opna sinn hluta Jan Mayen-svæðisins til olíuleitar gætu haft verulega þýðingu fyrir Íslendinga, bæði vegna samningsákvæðis um fjórðungshlut Íslands, en einnig vegna nálægðar við Drekasvæðið. Norsk stjórnvöld hófu í vikunni opið umsagnarferli vegna umhverfismats við Jan Mayen en þetta er liður í þeirri stefnumörkun þeirra að opna svæðið til olíuvinnslu. Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, fylgdi þessari ákvörðun úr hlaði með yfirlýsingu um að við Jan Mayen gætu verið verulegar olíu- og gaslindir. Frestur er veittur fram í janúar til að skila inn athugasemdum en þegar umhverfismatinu lýkur hyggst ríkisstjórn Noregs leggja áætlun fyrir norska stórþingið þar sem nánar verður mælt fyrir um olíuleitina. Íslendingar hafa sérstaka ástæðu til að fylgjast grannt með hvaða stefnu Norðmenn taka því ákveði þeir að hefja olíuleit sín megin á Jan Mayen-hryggnum má telja líklegt að athygli olíuiðnaðarins muni jafnframt beinast að Drekasvæðinu, þeim hluta sem er Íslandsmegin. Þá hafa Íslendingar einnig beinna hagsmuna að gæta, hefji Norðmenn olíuleit þarna, því Jan Mayen-samkomulag þjóðanna, frá árinu 1981, veitir Íslendingum rétt til 25 prósenta hlutdeildar í olíuleit og vinnslu á stóru svæði Noregsmegin lögsögumarkanna.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira