Hundruð manna mótmæla 19. október 2012 06:00 Fóstureyðingar eru illa séðar af mörgum á Írlandi. nordicphotos/AFP
Jafnt kaþólskir íbúar Norður-Írlands sem mótmælendur tóku þátt í mótmælum í Belfast í gær gegn fyrstu fóstureyðingarstofunni sem opnuð er á Írlandi. Á stofunni stendur konum til boða að fá fóstureyðingarpillur ef meðganga er ekki komin lengra en á níundu viku. Þetta verður þó aðeins heimilt ef læknir telur að þungun þeirra stofni framtíðarheilsu þeirra eða lífi í hættu. Á Írlandi og Norður-Írlandi heimila lög einungis fóstureyðingar að þessum skilyrðum uppfylltum. Fjölmargir Írar og Norður-Írar eru hins vegar algerlega andvígir fóstureyðingum, jafnvel þegar svo stendur á að líf eða framtíðarheilsa móðurinnar sé í hættu. Um tvö hundruð manns mættu því til að mótmæla opnun stofunnar í gær, þeirrar fyrstu sem opnuð er á gjörvallri eyjunni. Þeir sveifluðu spjöldum þar sem á stóð „Höldum Írlandi fóstureyðingalausu“. Þá sá John Larkin, aðalsaksóknari Norður-Írlands, ástæðu til að skrifa þingmönnum, sem flestir eru andvígir fóstureyðingum, bréf þar sem hann bauð fram aðstoð sína ef þeir sæju ástæðu til að rannsaka starfsemi stofunnar. Hann tók þó fram að hann gæti ekki gefið fyrirmæli um að stofunni verði lokað nema vísbendingar komi um að „alvarlegir glæpir“ séu framdir þar.- gb
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira