Dómurinn kostar bankana tugi milljarða Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. október 2012 15:14
Dómur Hæstaréttar í gær um vaxtaviðmið vegna ólöglegra gengistryggðra lána, þar sem eldri dómur frá í febrúar var staðfestur, mun kosta bankanna tugi milljarða. Engu að síður fagna bankarnir því að Hæstiréttur varpi frekari ljósi á það hvernig eigi að endurreikna lánin. Landsbankinn segir jákvætt að gengið hafi dómur sem varpi frekari ljósi á það hvernig Hæstiréttur telur að standa eigi að endurreikningi gengistryggðra lána. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í dag í tilefni af dómi Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. Landsbankinn telur að dómurinn staðfesti fordæmisgildi dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar 2012 í máli Elvíru Mendes og Sigurðar Sigurðssonar gegn Frjálsa fjárfestingabankanum um gildi fullnaðarkvittana. Bankinn telur að hinn nýi dómur muni ekki hafa umtalsverð áhrif á fjárhag bankans, umfram þau sem áður hafði verið gert grein fyrir. En í uppgjöri fyrir síðasta ár voru gjaldfærðir 38 milljarðar króna undir liðnum „Tap af gengistryggðum útlánum og kröfum á viðskiptavini". Landsbankinn segist nú yfirfara dóm Hæstaréttar með tilliti til fordæmisgildis, en segir að í þeim tilfellum þar sem niðurstaðan verði sú að lán verði endurreiknað á ný, muni innheimta til framtíðar að sjálfsögðu taka mið af leiðréttum eftirstöðvum. Hugsanlegar ofgreiðslur verði þannig leiðréttar. Í yfirlýsingu sem Arion banki sendi frá sér í dag er tekið í svipaðan streng. Þar er tekið fram að í ársreikningi Arion banka fyrir árið 2011 hafi að fullu verið tekið tillit til áhrifa dóms Hæstaréttar frá því í febrúar. á lánasafn bankans með 13,8 milljarða króna niðurfærslu lánasafnsins. Dómur Hæstaréttar í gær breyti því engu þar um. Þó liggi ekki fyrir hver endanleg niðurfærsla lána verður í kjölfar þessara dóma. Það muni ekki liggja fyrir fyrr en að loknum endurútreikningi. Þrátt fyrir þennan kostnað bankanna skiluðu þeir allir ríflegum hagnaði í fyrra, eins og fram kom í umfjöllun Fréttablaðsins í mars, eftir að uppgjör síðasta árs lá fyrir.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Fleiri fréttir Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Sjá meira