Erlent

Ágóðinn af kannabisrækt fór til fátækra í Kenýa

Ensk bændahjón á sjötugsaldri í Englandi hafa verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir umfangsmikla kannabisrækt á bóndabæ sínum.

Málið hefur vakið nokkra athygli í Englandi því allan ágóðann af kannabissölunni notuðu hjónin til góðgerðarverka.

Ágóðinn, um 400.000 pund eða um 80 milljónir kr., fór allur til fátæks þorps í Kenía. Þar var hann notaður til að mennta börn, kaupa lyf og tölvubúnað og til tækjakaupa fyrir sjúkrastofu þorpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×