Innlent

Fimm nýir dómarar munu bætast við Héraðsdóm Reykjavíkur

Innanríkisráðuneytið auglýsir í dag lausar stöður fimm héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Tveir dómarar verða skipaðir með fast sæti við dóminn en þrír dómarar verða settir tímabundið. Gert er ráð fyrir að dómararnir hefji störf um næstu áramót. Samkvæmt upplýsingum á vef Héraðsdóms Reykjavíkur eru á þriðja tug dómara starfandi við réttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×