Innlent

Úlpumaðurinn slær hafragrautsmanninum við

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því á Facebook-síðu sinni að einn af þeirra allra bestu mönnum stoppaði ökumann fyrr í dag, en ástæða þess að lögreglan hafði afskipti af ökumanninum var sú að sá hafði ekki verið með bílbelti við aksturinn.

Ökumaðurinn sagði skýringu liggja að baki bílbeltaleysinu, sem væri sú að hann hafi verið að klæða sig í úlpu og því ekki getað verið með beltið á sér um leið.

Lögreglumaðurinn spurði þá hvort það væri rétt skilið að ökumaðurinn hefði verið að klæða sig í úlpu, undir stýri, á ferð. Ökumaður játti því og taldi sig hafa útskýrt mál sitt vel.

Skýringin var ekki tekin gild og má maðurinn búast við sekt.

Þessi ökumaður er ekki sá eini sem er vant við látin í umferðinni. Á dögunum sást til manns borðandi hafragraut undir stýri snemma um morguninn. Þó er raunar einn maður sem tekur hina ökumennina í nefið hvað þetta varðar. Hægt er að fylgjast með honum í myndskeiði hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×