Bankarnir byrji samt að endurreikna lánin Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. október 2012 16:22 Ásta Sigrún Helgadóttir er umboðsmaður skuldara.
Bankarnir ættu strax að byrja að endurreikna öll þau lán þar sem fullnaðarkvittanir liggja fyrir og ljóst er að fólk og fyrirtæki hafa staðið í skilum með lán sín. Þetta segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. Hæstiréttur dæmdi í gær að óheimilt væri að reikna vexti afturvirkt af ólöglegum gengislánum, ef fullnaðarkvittanir liggja fyrir. Talið er að dómurinn feli í sér mikilvæg skilaboð um það hvernig bankarnir eigi að haga endurútreikningi slíkra lána. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis kom saman eftir hádegi í dag til að ræða niðurstöður dómsins. Á fundinn mættu meðal annars fulltrúar bankanna, fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna, auk Ástu Sigrúnar og fleiri. „Mér fannst þessi fundur mjög góður og málefnalegur og ég finn að það eru allir sem vilja gera allt sem hægt er til að flýta þessu," segir Ásta Sigrún. Hún segir að bankarnir eigi að hefja endurútreikning lána strax í þeim tilfellum þar sem það liggur ljóst fyrir að fólk hafi staði skil á greiðslunum. „Nú erum við komin algjörlega með þetta og ég sé þvi ekkert til fyrirstöðu að byrja á því," segir hún. Hún bendir þó á að staðan sé öllu flóknari í mörgum öðrum tilfellum eins og í tilvikum þar sem fólk hafi fengið greiðsluaðlögun og annað slíkt. Þau mál þurfi að skoða nánar. Ásta Sigrún hefur sagt að of seint gangi að fá skorið úr réttarágreiningi varðandi málin. Samkomulag tókst fyrr á árinu um að höfðuð yrðu ellefu prófmál til þess að fá skorið úr helsta ágreiningi. Einungis er búið að þingfesta tvö þeirra fyrir héraðsdómi. Það beri þó að hafa það í huga að um sé að ræða flókin mál. „Þetta eru auðvitað flókin mál í eðli sínu og þessi endurútreikningur líka. Og það er líka hluti af ástæðunni fyrir því að þetta hefur tekið svona langan tíma," segir Ásta.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Sjá meira