Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fórnarlamba minnst Fórnarlamba skotárásarinnar í Aurora í Colorado var minnst í nótt. Um 200 manns söfnuðust saman fyrir utan kvikmyndahúsið. 21.7.2012 09:43
Lífshættulega slasaður Karlmaður á miðjum aldri liggur nú alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans eftir bílveltu á Nesjavallavegi í gærkvöld. 21.7.2012 09:26
Réðst á 15 ára pilt Fjórar líkamsárásir áttu sér stað í Reykjavík í nótt. Karlmaður veittist að 15 ára dreng á Grundarstíg stuttu eftir miðnætti. Drengurinn hafði verið að krota á stöðumæla þegar stór og þrekinn maður réðst á hann. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru mörg vitni að þessu. Árásarmaðurinn flúði síðan af vettvangi á gylltum fólksbíl. 21.7.2012 09:16
Three and a Half Years Have Been Wasted The UK Serious Fraud Office's probe into Vincent Tchenguiz's connections with Kaupthing Bank was called off this past June. In an extensive interview with Þórður Snær Júlíusson, he discusses the case, his dealings with Icelandic banks and his opinion of Kaupthing's winding-up and resolution committees. 21.7.2012 08:00
Segir Kaupþing hafa hótað sér Skilanefnd Kaupþings lét Vincent Tchenguiz vita af því að það væru „aðrar leiðir“ til að ná til hans en að fara á eftir eignum hans. Vegna þessara skilaboða kom Tchenguiz það ekki á óvart þegar hann var handtekinn í mars 2011 af bresku efnahagsbrotalögreglunni, Serious Fraud Office (SFO), vegna viðskipta félaga sem hann stýrir við Kaupþing. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegu viðtali við Tchenguiz í Fréttablaðinu í dag. 21.7.2012 08:00
Búið að sóa þremur og hálfu ári Vincent Tchenguiz er nafn sem Íslendingar eru farnir að þekkja vel. Fæstir gera sér hins vegar grein fyrir af hverju það er. Ekki má rugla Vincent saman við Robert, bróður hans, sem var stærsti einstaki skuldari Kaupþings-samstæðunnar þegar bankinn féll og umsvifamikill fjárfestir í íslensku viðskiptalífi. Félög sem Vincent stýrir voru líka viðskiptavinir Kaupþings en einu viðskipti þeirra við móðurbankann, og í raun umsvif á Íslandi, voru 100 milljóna punda lán sem hann fékk í mars 2008. Sú lánveiting hefur dregið gríðarlegan dilk á eftir sér fyrir Vincent Tchenguiz. 21.7.2012 08:00
Fangelsisstjórinn dæmdur í fangelsi Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi fangelsisstjóri á Kvíabryggju, var í gær dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að draga sér fé og ýmis verðmæti sem tilheyrðu fangelsinu, samtals að andvirði ríflega 1,6 milljóna króna. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir. 21.7.2012 07:00
Fjalla um jarðir í erlendri eigu Hafið hefur göngu sína tímaritið Iceland Review Street Edition sem gefið er út í samstarfi Jóns Kaldals, fyrrum ritstjóra Iceland Review, og útgáfufélagsins Heims. Upplag blaðsins, sem kemur út aðra hvora viku er um 25 þúsund eintök og er áhersla lögð á að kynna vaxandi fjölda ferðamanna land og þjóð. 21.7.2012 03:15
Leikskólagutti brattur eftir Laugavegsgöngu „Mér fannst gaman að sofa í tjaldinu, fara í fjallgöngu og horfa á Álftavatn sem mér finnst mjög fallegt,“ segir Orfeus Þór Da Silva Stefánsson sem gekk fyrr í vikunni 55 kílómetra milli Landmannalauga og Þórsmerkur. 21.7.2012 02:00
Ná ekki saman um leiguna Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segist undrast orð Valtýs Valtýssonar, sveitarstjóra Bláskógabyggðar. Hann sagði í Fréttablaðinu á miðvikudag að engin svör hefðu fengist frá ráðuneytinu varðandi málefni gamla héraðsskólans á Laugarvatni. Sögufrægt hús héraðsskólans er í eigu hins opinbera og stendur tómt en bæði Gullkistan og sveitarfélagið vonast eftir því að fá afnot af því. 21.7.2012 01:00
Líður yfir starfsfólk vegna loftmengunar Nokkur tilvik hafa komið upp þar sem starfsmenn Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) hafa misst meðvitund við störf sín vegna brennisteinsvetnis við holur á Þeistareykjum. Vikublaðið Akureyri greinir frá þessu. Enginn hefur enn slasast eða hlotið varanlegt heilsutjón vegna þessa. Í tölvupósti sem sendur var til starfsmanna ÍSOR voru þeir beðnir um að tilkynna slys af þessu tagi til Vinnueftirlitsins. 21.7.2012 00:30
Áfram barist í höfuðborginni Bardagar héldu áfram í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í gær. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti að framlengja umboð friðargæslusveita um einn mánuð. Stjórnarherinn fagnaði ákaft eftir að hafa náð á vald sitt einu hverfi sem uppreisnarmenn höfðu haft á valdi sínu. 21.7.2012 00:00
Nesjavallavegur opnaður á ný Ökumaðurinn sem velti bíl sínum á Nesjavallaleið fyrr í kvöld var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild, samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum. Vísir hefur ekki upplýsingar um það hvort meiðsl hans séu alvarleg. Klippa þurfti bíl hans í sundur til að ná honum úr honum. Nesjavallaleið var lokað um stund á meðan unnið var á vettvangi en nú er búið að opna veginn. 20.7.2012 21:10
Óku hringinn í kringum landið á 30 klukkutímum Veigar Þór Gissurarson varaformaður björgunarsveitarinnar Sigurvonar í Sandgerði og félagar hans ákváðu að ger sér ferð hringinn í kringum landið um síðustu helgi. 20.7.2012 20:40
Starfsmenn á Heathrow ætla í verkfall Starfsfólk á Heathrow flugvelli ætlar í 24 klukkustunda verkfall daginn áður en Ólympíuleikarnir hefjast í London. Áætlanir sýna að dagurinn eigi að vera sá stærsti í sögu flugvallarins segir í frétt The Financial Times. 20.7.2012 11:25
Bílvelta á Nesjavallavegi Bílvelta varð á Nesjavallavegi laust fyrir átta í kvöld. Sjúkraflutningamenn frá Reykjavík eru á leiðinni á staðinn, en ekki hafa fengist nánari upplýsingar. 20.7.2012 20:12
"Núna er vinur okkar á leið til Ameríku í skipi“ Hælisleitendur sem fundust um borð í flugvél fyrir tveimur vikum segja að vini sínum hafi tekist að koma sér úr landi og sé nú á leið til Bandaríkjanna. Þeir eru sjálfir staðráðnir í að reyna aftur að komast úr landi. 20.7.2012 18:30
Skátarnir nota íslenskt timbur á landsmóti Landsmót skáta að Úlfljótsvatni hefst í kvöld og er fólk þegar mætt á svæðið. Mest er þar núna fjölskyldufólk og erlendir skátar sem eru komnir hingað til lands til þess að vera viðstaddir mótið. Formleg setning landsmótsins er síðan á sunnudag og er gert ráð fyrir að þá muni hundruð eða þúsundir streyma á mótssvæðið. 20.7.2012 17:06
Árásarmaðurinn er 24 ára gamall Maðurinn sem skaut 12 manns til bana í úthverfi Denver í morgun heitir James Eagan Holmes og er 24 ára gamall. CBS fréttastofan hefur þetta eftir talsmönnum lögreglunnar í Denver. Skotárásin varð í kvikmyndahúsi þegar verið var að sýna nýju Batman myndina, The Dark Knight Rises. Lögreglan telur að maðurinn hafi verið einn að verki. Tugir manna særðust í skotárásinni. 20.7.2012 15:52
Höfuðborgin iðaði af lífi Reykjavík hefur verið iðandi lífi að undanförnu og skemmtileg stemning hefur skapast í miðborginni og víðar. 20.7.2012 14:17
Skurðlæknir fundinn fyrir Neskaupstað Fæðingar geta farið fram áfram á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað, en sjúkrahúsið náði í dag samningum við vanan skurðlækni sem mun fylla í skarð vegna veikinda þess sem var skráður á vaktina. 20.7.2012 13:58
Undirbúa sig fyrir að minnast látinna vina Ungliðar í norska verkamannaflokknum undirbúa sig nú undir að minnast þess að á sunnudag er liðið eitt ár frá því að Anders Behring Breivik myrti 77 manns í Útey og í Osló. Eins og fram kom á Vísi fyrir fáeinum dögum verður Guðrún Jóna Jónsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, viðstödd minningarathöfn í Útey. Guðrún flaug til Noregs í morgun. 20.7.2012 13:29
Hvetja landsmenn til að huga að garðhúsgögnum og lausamunum Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur landsmenn til að huga að lausamunum, eins og garðhúsgögnum og trampólínum fyrir helgina, en eins og greint var frá í morgun er gert ráð fyrir hvassviðri um helgina á sunnanverðu og vestanverðu landinu. Þá minnir Landsbjörg ferðamenn á að kynna sér vel veðurspár áður en lagt er af stað. Varhugavert geti verið að vera á ferð með eftirvagna svo sem fellihýsi í eftirdragi í verstu kviðunum. 20.7.2012 13:13
Rúgbrauðsát dregur úr líkum á blöðruhálskrabbameini Næring á mismunandi æviskeiðum og tengsl hennar við áhættu á krabbameini í blöðruhálskirtli. Svo hljóðar yfirskift rannsóknar Jóhönnu Eyrúnar Torfadóttur, næringarfræðings sem ver doktorsritgerð sína í næsta mánuði. 20.7.2012 12:43
Áfengissýki aldraðra vaxandi vandamál Áfengissýki aldraðra er vaxandi vandamál. Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir hjá SÁÁ. Hún segir umhugsunarvert að verið sé að færa áfengissölu inn á dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra 20.7.2012 12:30
Snæfellsnesið skartaði sínu fegursta Þessi fallega mynd af skýi var tekin frá norðanverðum Snæfellsjökli rétt eftir klukkan sex á sunnudagsmorgni. Ingvar Baldursson var að koma niður af jöklinum. "Ég var uppi á toppnum. Það var mjög falleg birta og þetta ský birtist bara allt í einu,“ segir Ingvar í samtali við Vísi um þetta fallega ský, sem líkist einna helst geimskipi. Ljóst er að fjölmargir hafa notið fegurðarinnar á Snæfellsnesi því að Vísir birti í byrjun vikunnar aðra mynd þar sem himininn skartaði sínu fegursta. 20.7.2012 11:47
Fyrsti tökudagur Noah í dag Tökur á myndinni Noah, sem skartar meðal annars Russel Crowe, Anthony Hopkins, Jennifer Conelly og Emmu Watson í aðalhlutverkum, hófust í dag. Leikstjóri myndarinnar Darren Aronfsky segir frá þessu á Twittersíðu sinni. 20.7.2012 11:19
Tjöld og tjaldvagnar gætu fokið Veðurstofan varar fólk við að tjöld, hjólhýsi og aftanívagnar geti fokið út í veður og vind suðvestanlands og á vestanverðu hálendinu annað kvöld, í slagveðurs rigningu. 20.7.2012 11:03
Sumarskötuveisla á Ísafirði Boðið verður upp á skötuveislu á Ísafirði í dag. Veislan er orðin árlegur viðburður í Tjöruhúsinu á Þorláksmessu að sumri. Lionsklúbbur Ísafjarðar stendur fyrir boðinu og á vefsíðu Bæjarins Bestu eru matráðar þeirra sagðir sannkallaðir sérfræðingar í þeirri íþrótt að kæsa og matreiða skötu. 20.7.2012 10:05
Virkjuðu skáldagáfuna hjá Vinnuskólanum Lokahóf fyrir krakkana í 8. bekk vinnuskólans í Grindavík var haldið á dögunum. Farið var í ratleik, pokahlaup og haldin grillveisla. Á einni stöð í ratleiknum þurftu krakkarnir að virkja skáldagáfuna og setja saman tvær línur um það sem var skemmtilegast við Vinnuskólann. 20.7.2012 09:51
Crowe jákvæður fyrir því að stjórna þætti á X-inu 977 „Það væri frábært ef það væri hægt að klára þetta," segir Orri Freyr Rúnarsson, útvarpsmaður á útvarpstöðinni X-inu 9.77. 20.7.2012 09:48
Blóðbað á forsýningu Batman myndarinnar Fjórtán manns féllu í skot- og sprengjuárás í kvikmyndahúsi í Denver í Colorado þegar nýjasta Batman myndin var forsýnd þar í nótt. 20.7.2012 08:59
Keppendur á Ólympíuleikunum fá 150.000 smokka afhenta Þeir íþróttamenn sem taka þátt í komandi Ólympíuleikum munu ekki þurfa að hafa áhyggjur af öruggu kynlífi. Ákveðið hefur verið að dreifa 150.000 smokkum meðal þeirra. 20.7.2012 07:27
Landamærastöðvar í Sýrlandi á valdi uppreisnarmanna Uppreisnarmenn í Sýrlandi hafa náð nokkrum landamærastöðvum við landamærin að Tyrklandi á sitt vald. 20.7.2012 06:45
Ben Stiller leitaði að tökustöðum á Vesturlandi Bandaríski leikarinn og leikstjórinn Ben Stiller leitaði í gær að hentugum tökustöðum á Vesturlandi fyrir endurgerð myndarinnar The Secret of Walter Mitty, sem ráðgert er að taka hérlendis að hluta næsta sumar. 20.7.2012 06:26
Missa sinn helsta bandamann Andstæðingar Hezbollah-samtakanna í Líbanon hafa verið að færa sig upp á skaftið undanfarið, enda telja þeir skammt í að stjórn Bashers al Assad Sýrlandsforseta falli. Assad hefur verið helsti stuðningsmaður Hezbollah-samtakanna og ítök þeirra í Líbanon virðast að nokkru háð áframhaldandi stuðningi hans. 20.7.2012 07:30
Mældist á 148 km hraða á Reykjanesbraut Svartur Benz fólksbíll mældist á 148 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, á móts við Vogaafleggjara á tólfta tímanum í gærkvöldi og sinnti ökumaður ekki stöðvunarmerkjum lögreglumanna. 20.7.2012 07:26
Ölvaðir á torfærujeppa ollu gróðurskemmdum Töluverðar gróðurskemmdir eru komnar í ljós eftir að þrír ölvaðir menn óku sérsmíðuðum torfærujeppa um hlíðarnar fyrir ofan sumarbústaðahverfi Kennarasamtakanna við Flúðir í fyrrinótt, með þeim afleiðingum að bíllinn valt og einn þeirra slasaðist alvarlega. 20.7.2012 06:59
Björgunarskip sótti vélarvana handfærabát Björgunarskip Landsbjargar, Oddur V. Gíslason, kom fyrir stundu með lítinn handfærabát í togi til Grindavíkur, eftir að vélin bilaði í bátnum þegar hann var staddur um sjö sjómílur suður af Þorlákshöfn á tólfta tímanum í gærkvöldi. 20.7.2012 06:56
Ökumenn teknir á flótta undan lögreglu Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna aksturs undir áhrifum áfengis og fíkniefna. 20.7.2012 06:54
Romney með örlítið meira fylgi en Obama Mitt Romney hefur örlítið forskota á Barack Obama Bandaríkjaforseta í baráttunni um forsetaembættið samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birt var í gærkvöldi. 20.7.2012 06:49
Ósáttur við hávaða frá þyrlum Hávaði frá þyrlum kann að grafa undan upplifun ferðamanna. Leiðsögumaður vill skýrar reglur. Meiri umferð fylgir eðlilega ónæði, segir þjóðgarðsvörður. 20.7.2012 06:30
Sextíu rúður brotnar á þremur vikum Um sextíu rúður í strætóskýlum hafa verið brotnar á síðustu þremur vikum, allar í eða nærri Hlíðahverfi í Reykjavík. Þetta er margfalt meira en gengur og gerist, en algengt er að fjórar til fimm rúður séu brotnar á mánuði. 20.7.2012 06:30
Landsvirkjun og OR bítast um leyfi Orkustofnun hefur til umfjöllunar tvær umsóknir sem skarast og varða rannsóknarleyfi vegna fyrirhugaðra virkjana í Skjálfandafljóti. 20.7.2012 06:00
Kröpp lægð fer yfir landið Einni dýpstu lægð sem sést hefur í júlí við norðanvert Atlantshafið og Ísland er spáð um helgina. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur skrifar á vefsíðu sína að veðrinu muni fylgja mikið vatnsveður um allt land. 20.7.2012 05:30