Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dæmdur í ævilangt fangelsi Zine al Abidine Ben Ali, fyrrverandi forseti Túnis, var í gær dæmdur í ævilangt fangelsi af dómstól í landinu. 20.7.2012 03:00
Bætir við sig marskálkstitli Kim Jong Un, hinn ungi leiðtogi Norður-Kóreu, hefur tekið sér titilinn marskálkur, til viðbótar við titla sem hann ber fyrir: Formaður Verkamannaflokksins, formaður varnarmálanefndar ríkisins, formaður hermálanefndar flokksins og æðsti yfirmaður hersins auk þess sem hann á sæti í forsætisnefnd framkvæmdaráðs flokksins. 20.7.2012 02:30
Ísraelar telja Írana ábyrga Ísraelsk stjórnvöld telja að maður á vegum Hezbollah-samtakanna í Líbanon, sem njóta stuðnings Írans, hafi gert sjálfsvígsárás á rútu í Búlgaríu á miðvikudag. 20.7.2012 01:30
Versti dagur byltingarinnar til þessa Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi hafa hertekið allar helstu eftirlitsstöðvar landsins við landamæri Írak. Á meðan harðna bardagar í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, þar sem stjórnarhermenn og uppreisnarmenn takast á í kjölfar sjálfsmorðsárásar sem kostaði þrjá háttsetta meðlimi sýrlensku ríkisstjórnarinnar lífið. 19.7.2012 23:42
Ólafur Arnalds í So You Think You Can Dance Lagið 3326 eftir tónlistarmanninn Ólaf Arnalds var notað í raunveruleikaþáttunum bandarísku So You Think You Can Dance í gær. 19.7.2012 23:02
Hótelstjóri og prestur rífast um 50 Shades of Grey Hörð orðaskipti hótelstjóra og sóknarprests í Bretlandi hafa vakið mikla athygli síðustu daga. Málið hófst þegar hótelstjórinn fjarlægði allar Biblíur úr hótelherbergjum sínum og setti í stað þeirra erótísku metsölubókina 50 Shades of Grey. 19.7.2012 22:00
Undirbýr sig fyrir aðgerðina Guðmundur Felix Grétarsson var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar var forvitnast um stöðu mála hjá honum en hann lauk fjáröflun sinni fyrir handaágræðslu fyrir nokkru. 19.7.2012 21:45
"Af hverju mega þær ekki fæða börnin á sínum heimaslóðum?" "Við erum virkilega leiðar yfir þessu og höfum um leið áhyggjur af þessum konum og fjölskyldum þeirra." Þetta segir Anna Eðvaldsdóttir, varaformaður Ljósmæðrafélags Íslands. 19.7.2012 21:06
Þakkar viðbrögðum björgunarmanna að ekki fór verra Eldur kviknaði um borð í humarbátnum Maggý frá Vestmannaeyjum í morgun eftir að leki hafði komið að skipinu. Sjö menn voru um borð og þakkar skipstjórinn snörum handtökum björgunarsveitarmanna að ekki fór verr og að engan hafi sakað. 19.7.2012 20:30
Fyrrverandi þingmaður vill verja Hrafnabjargafoss Húsvíkingurinn Jón Ármann Héðinsson, fyrrverandi alþingismaður, hvetur til þess að Skjálfandafljót verði látið í friði. Hann segir að svokölluð Hrafnabjargavirkjun muni ekki aðeins hafa áhrif á Aldeyjarfoss heldur einnig á fagurt umhverfi Hrafnabjargafoss, sem fáir hafi séð. Við greindum í gær frá umsóknum tveggja orkufyrirtækja um leyfi til rannsókna við ofanvert Skjálfandafljót til undirbúnings virkjun við Aldeyjarfoss sem kölluð er Hrafnabjargavirkjun. 19.7.2012 19:45
Líkir gögnum Íra um dreifingu markríls við skáldskap Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, líkir vísindagögnum írskra stjórnvalda um dreifingu makríls við Ísland við skáldskap, enda byggi gögnin ekki á rannsóknum innan íslensku lögsögunnar. Hann efast um að Evrópusambandið og Norðmenn muni fallast á kröfu Íra um refsiaðgerðir gegn Íslandi. 19.7.2012 19:15
Sakar ríkisstjórnina um að stunda blekkingarleik með fjárlögin Formaður Framsóknarflokks sakar ríkisstjórnina um að stunda blekkingarleik með fjárlögin. Sífellt sé verið að vísa í árangur af aukinni hagræðingu og niðurskurði en raunveruleikinn sé hins vegar allt annar. Halli ríkissjóðs á síðasta ári var tvöfalt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. 19.7.2012 18:45
Rafrænar kosningar hluti af tíðarandanum "Ég er sannfærður um að almenningur mun brátt geta kosið með rafrænni kosningu.“ Þetta segir Halldór Halldórsson, formaður Samtaka sveitarfélaga. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar ræddi hann við þáttastjórnendur um rafrænar kosningar. 19.7.2012 17:46
Stúlka kom í heiminn á Reykjanesbrautinni Stúlka kom í heiminn í sjúkrabíl á Reykjanesbrautinni í nótt en óskað var eftir sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja rétt fyrir klukkan fimm til að flytja móðurina á fæðingardeild í Reykjavík. Á vef Víkurfrétta segir að engin ljósmóðir eða læknir hafi verið í bílnum og því hafi tveir sjúkraflutningamenn tekið á móti stúlkunni við Hvassahraun, á bæjarmörkum Voga og Hafnarfjarðar. Móður og barni heilsast vel, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. 19.7.2012 16:36
Næstum eitt skemmtiferðaskip á dag Höfuðborgarbúar hafa ekki farið varhluta af miklum fjölda skemmtiferðaskipa við hafnir borgarinnar í sumar. Alls koma 82 skip með 100 þúsund manns yfir sumarið. Það er næstum því eitt skip á dag miðað við tímabilið júní-september. 19.7.2012 16:26
Áfrýja málinu gegn Einari til Hæstaréttar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir einstaklingum tengdum Vítisenglum til Hæstaréttar en áfrýjunarfrestur í málinu rann út í gær. Fjórir voru dæmdir fyrir að ráðast á konu í Hafnarfirði í desember síðastliðnum og hlutu þeir tveggja og hálfs árs til fjögurra og hálfs árs fangelsis dóma. 19.7.2012 15:37
Íslenska lögreglan skarar framúr á facebook Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna fyrir notkun á samfélagsmiðlum í þágu löggæslu. Tilkynnt var í gær hvaða þrjú embætti þykja skara fram úr í heiminum. Í október verður tilkynnt hver verður sigurvegari þegar upp er staðið. 19.7.2012 15:36
Maggý komin til hafnar Skipið Maggý VE 108 er nú komið til hafnar í Vestmannaeyjum en það var dráttarskipið Lóðsinn sem dróg það í land. 19.7.2012 14:44
Vírar úr grillburstum geta fests í þörmum Ábendingar hafa borist til Neytendastofu um að vírburstar, sem notaðir eru til að hreinsa grill, hafi valdið alvarlegum slysum á fólki í Bandaríkjunum og víðar. Neytendastofa hefur ekki fengið upplýsingar um sambærileg atvik hér á landi telur mikilvægt að fólk sé meðvitað og skipti reglulega um vírbursta, sérstaklega þegar vírarnir eru byrjaðir að losna af, og hristi þá fyrir og eftir notkun. 19.7.2012 14:21
Koma til Vestmannaeyja klukkan hálf þrjú Dráttarskipið Lóðsinn er nú á leið til Vestmannaeyja með skipið Maggý VE 108 í togi og áætlað er að það verði komið til hafnar eftir rúman hálftíma. 19.7.2012 14:04
Snorra var ekki sagt upp vegna ummæla um samkynhneigð Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir í samtali við vikublaðið Akureyri að það sé af og frá að Snorra Óskarssyni, kenndan við trúarsöfnuðinn Betel, hafi verið sagt upp störfum sem kennari við Brekkuskóla í bænum vegna trúarskoðana sinna eða ummæla hans um samkynhneigð. 19.7.2012 13:31
Ben Stiller kominn í Hólminn Ben Stiller lenti í morgun við höfnina í Stykkishólmi, en sem kunnugt er kom leikarinn á dögunum til landsins til að endurgera myndina The Secret of Walter Mitty. Myndin verður að hluta til tekin upp í Stykkishólmi. Stiller mun bæði leika í myndinni og leikstýra henni. Fram kemur á fréttavefnum Skessuhorni að þyrlan þurfti fjórar tilraunir til þess að lenda við höfnina. 19.7.2012 13:21
Þór kominn með Maggý í tog Björgunarskipið Þór er komið með skipið Maggý VE 108 og fylgir skipið Glófaxi strax á eftir. Eins og Vísir greindi frá fyrr í morgun kom eldur um borð í Maggý og kom leki inn í vélarrúmið á sama tíma. Sjö manns eru um borð í skipinu. Þeir fóru strax í flotgalla en eru óhultir, en áhafnarmeðlimir slökktu eldinn sjálfir. Dæla var sett um borð í Maggý og er talið að með því verði hægt að toga skipið að landi. 19.7.2012 12:17
Metandælan var rangt tengd Metandæla við bensínstöð N1 á Ártúnshöfða brotnaði, þegar strætisvagn rakst utan í hana um fjögur leitið í nótt, með þeim afleiðingum að metan streymdi óhindarð út í andrúmsloftið, vegna rangra tenginga í dælunni. 19.7.2012 12:09
Bann á munntóbaki leiðir ekki til aukinna reykinga Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Landlækni, telur að þó munntóbak væri bannað myndi það ekki leiða til þess að fleiri færu að reykja. Fram hefur komið að stærsti notendahópur munntóbaks sé ungir karlmenn. "Ungir strákar reykja í mjög svipuðum mæli og ungar stúlkur. Það styður þá kenningu að munntóbaksnotkun hjá ungum karlmönnum sé viðbótartóbaksnotkun," segir hann. Því myndi bann á munntóbaki líklega ekki leiða til mjög aukinna reykinga. Þeir ungu strákar sem byrja að fikta með munntóbak hefðu mögulega ekki byrjað að reykja, að mati Viðars. 19.7.2012 12:00
Almenningur sniðgangi verslunarkeðjur í nafni tjáningarfrelsis Á nýlegri síðu er almenningur hvattur til að sniðganga verslanirnar Krónuna, Nóatún, Elko og Byko sem eru í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, sem m.a. rekur Kaupás. Ástæðan er sú að á sínum tíma var tímaritið Ísafold tekið úr sölu í verslunum Kaupáss eftir að það fjallaði um skemmtistaðinn Goldfinger. 19.7.2012 11:37
Bátur í neyð - björgunarsveitarmenn á leiðinni Björgunarsveitarmenn eru nú á leið að báti sem staðsettur er skammt fyrir utan Vestmannaeyjar. Samkvæmt óstaðfestum upplýsingum fréttastofu kom leki að bátnum og eru sjö manns eru um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar Björgunarsveitarmenn eru nú á leið að báti sem staðsettur er skammt fyrir utan Vestmannaeyjar. 19.7.2012 11:18
Reykurinn kom frá pizzaofni Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um reyk frá húsnæði í miðborg Reykjavíkur á ellefta tímanum í dag. Einn bíll var sendur á staðinn og inn fóru fjórir slökkviliðsmenn. 19.7.2012 10:56
Ný stikla úr myndinni Frost frumsýnd Kvikmyndin Frost, sem er vísindatryllir í leikstjórn Reynis Lyngdal, verður frumsýnd þann 7. september næstkomandi. FROST fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Vísir frumsýnir nýja stiklu úr myndinni sem 19.7.2012 10:52
Engar skurðaðgerðir í Neskaupstað Það eru ekki aðeins fæðingar sem geta ekki farið fram á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í næstu viku því ómögulegt verður að framkvæma hvers kyns skurðaðgerðir í fjórðungnum. Eins og Vísir greindi frá í gær forfallaðist skurðlæknir sem átti að vera á vakt með litlum fyrirvara. Að jafnaði er aðeins einn skurðlæknir á vakt á sjúkrahúsinu og því verður skurðlæknislaust vegna forfallanna. 19.7.2012 10:30
Lítið af gulli eftir í gullverðlaunum Ólympíuleikanna Það er svo lítið eftir af hreinu gulli í gullverðlaununum sem veitt eru á komandi Ólympíuleikum í London að verðmæti þeirra nemur aðeins rúmlega sjötíu þúsund krónum á stykkið. Væru hin rúmlega 400 gramma gullverðlaun úr hreinu gulli væri verðmætið um 2,5 milljónir króna. 19.7.2012 09:42
Sjúkratryggingar greiddu út 30 milljarða Útgjöld til sjúkratrygginga, slysatrygginga og sjúklingatrygginga í fyrra námu samtals 30,6 milljörðum króna. Það eru um 5,4% af heildarútgjöldum ríkisiins og um 1,9% af landsframleiðslu. Útgjöldin jukust um 767 milljónir frá fyrra ári. 19.7.2012 09:42
Kölluðu lögreglu til vegna síbrotakattar Starfsmönnum í næturverslun í borginni var nóg boðið í nótt, þegar köttur læddist þar enn einusinni inn, reif upp harðfiskpoka og tók að gæða sér á innihaldinu. 19.7.2012 07:11
Bandaríkjastjórn telur að Assad sé að missa tökin Bandaríkjastjórn telur að Bashar Assad forseti Sýrlands sé að missa tökin á stjórn landsins og að daga hans í embætti séu taldir. 19.7.2012 06:52
Kettlingur ferðaðist á eigin spýtur þvert yfir Kyrrahafið Kettlingur er kominn í sviðsljós fjölmiðla í Kaliforníu eftir að hann ferðaðist á eigin spýtur þvert yfir Kyrrahafið. 19.7.2012 06:41
Alvarlega slasaður eftir að torfærubíll valt Karlmaður slasaðist alvarlega á höfði þegar óskráður torfærubíll valt í grennd við Flúðir í Árnessýslu um klukkan fjögur í nótt. Hann hlaut meðal annars höfuðáverka og missti meðvitund. 19.7.2012 06:38
Mikil hætta þegar metandæla brotnaði á Ártúnshöfða Metandæla við bensínstöð N1 á Ártúnshöfða brotnaði, þegar strætisvagn rakst utan í hana um fjögur leitið í nótt, með þeim afleiðingum að metan streymdi óhindarð út í andrúmsloftið. 19.7.2012 06:34
Kona særð í vopnaðri árás í heimahúsi Kona var flutt á slysadeild Landspítalans um klukkan tíu í gærkvöldi, vegna sára sem hún hlaut, þegar ótilgreindur aðili réðst að henni með einhverskonar vopni í heimahúsi í Reykjavík. 19.7.2012 06:31
Fá ekki fólk til að semja frumvarp um staðgöngu Starfshópur sem á að undirbúa frumvarp um að heimila staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni hefur ekki enn verið skipaður þrátt fyrir að þingsályktunartillaga um málið hafi verið samþykkt í janúar. Tillagan fól velferðarráðherra að skipa starfshóp um málið og leggja fram frumvarp "svo fljótt sem verða má". 19.7.2012 08:00
Utanbæjarmaður og strípalingur í fangaklefum í nótt Ölvaður utanbæjarmaður, sem hafði hvergi húsaskjól í borginni í nótt, greip á það ráð að brjótast inn í bíl við Smiðjuveg í Kópavogi til að halla þar þreyttu höfði sínu. 19.7.2012 07:12
Andlega fatlaður fangi tekinn af lífi í Texas Yfirvöld í Texas hafa tekið af lífi dauðadæmdan fanga þrátt fyrir að fanginn sé andlega fatlaður. 19.7.2012 06:56
Rólegt við Kötlu eftir skjálftahrinu Eftir skjálftahrinu í grennd við Kötlu um áttaleitið í gærkvöldi, hefur verið fremur rólegt á svæðinu í nótt. 19.7.2012 06:53
Fjöldi austurevrópskra fanga tvöfaldast í dönskum fangelsum Á síðustu fjórum árum hefur fjöldi austurevrópskra fanga í dönskum fangelsum meir en tvöfaldast. 19.7.2012 06:50
Umsóknir um háskólanám aldrei fleiri í Danmörku Umsóknir um háskólanám hafa aldrei verið meiri í sögunni í Danmörku. Alls hafa tæplega 81 þúsund nemendur sótt um nám í háskólum landsins. 19.7.2012 06:48
Atburðir í Rúmeníu vekja áhyggjur ESB Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gagnrýnir harðlega Rúmeníu og Búlgaríu fyrir að standast ekki kröfur sem gerðar eru til aðildarríkjanna. Búlgaría ræður ekkert við skipulagða glæpi og Rúmeníustjórn grefur undan lýðræðinu. 19.7.2012 06:30