Fleiri fréttir

Enn ekkert samkomulag

Enn hefur ekki náðst samkomulag milli þingflokksformanna um framhald þingstarfa. Annarri umræðu um frumvarp um breytingar á veiðigjöldum lauk skömmu eftir miðnætti á Alþingi þegar þingfundi var frestað en þá voru ellefu þingmenn á mælendaskrá.

Of snemmt að afskrifa Þóru - kosningabaráttan farin að snúast um ESB

Prófessor í stjórnmálafræði segir of snemmt að afskrifa Þóru Arnórsdóttur þrátt fyrir að hún mælist nú með ríflega tuttugu prósentustiga minna fylgi en Ólafur Ragnar Grímsson. Hann segir að Ólafi hafi tekist að láta kosningabaráttuna snúast um afstöðu manni til Evrópusambandsins.

Forseti fólksins eða flokkanna?

Seint í janúar 1952 lést Sveinn Björnsson, forseti Íslands frá lýðveldisstofnun átta árum fyrr. Kosningar yrðu um sumarið og fljótt kom á daginn að þrír flokkanna á Alþingi vildu hlutast til um hver fengi embættið.

Ingólfur Arnarson vígir ylströnd

Ingólfur Arnarson landnámsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30.

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 60 ára

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra fagnar í ár 60 ára afmæli. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi verið stofnað var af framsýnu fólki þann 2. mars 1952, hefur í 60 ár haft það meginmarkmið að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna.

Mubarak dæmdur í lífstíðarfangelsi

Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Egypskur dómstóll kvað upp dóm í máli hans nú snemma í morgun.

Össur fordæmir voðaverk sýrlenskra stjórnvalda

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fordæmir harðlega voðaverk sýrlenskra stjórnvalda sem og vopnaðra sveita á þeirra ábyrgð en lítill vafi leikur á að þau hafi gerst sek um skipulögð og kerfisbundin mannréttindabrot undanfarnar vikur og mánuði að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Olíuþjófar í Hafnarfirði

Lögreglan fékk tilkynningu um menn sem væru að stela olíu úr vörubílum hjá fyrirtæki í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði skömmu fyrir miðnætti.

Segir Selfossvirkjun óraunhæfa

Framkvæmda- og veitustjórn Árborgar segir hugmyndir um virkjun við Efri Laugardælaeyju sýna að ekki hafi verið um raunhæfar áætlanir að ræða hvorki hvað varðar arðsemi né tæknilega útfærslu. Þetta sýni yfirferð Verkfræðistofu Suðurlands.

Segja ríkisstarfsfólki mútað með punktum hjá Icelandair

Iceland Express hefur kært útboð um rammasamning fyrir flug hins opinbera til Kærunefndar útboðsmála. Félagið fullyrðir að kjör helsta keppinautarins, Icelandair, séu langtum lakari en þau sem Iceland Express hafi boðið og að með þeim sé auk þess verið að bera fé á opinbera starfsmenn. Útboðið tók til flugs á Evrópska efnahagssvæðinu og var auglýst í mars í fyrra. Ríkiskaup tóku tilboðum frá Iceland Express og Icelandair, þrátt fyrir ólík kjör, og töldu þau bæði hagstæð. Iceland Express fékk ekki upplýsingar um tilboð Icelandair fyrr en eftir kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

Deyðið aspirnar segja sólarlausir nágrannar

„Hér eru nágrannar að skipa manni að deyða sín eigin tré inni á manns eigin lóð,“ segir Gunnar Jónsson, eigandi íbúðarhússins í Leirutanga 29, sem nú er hótað málsókn vegna hárra aspa sem nágrannar til beggja handa segja skyggja á sólina og valda tjóni og óþrifnaði. Tvenn hjón sem búa hvor til sinnar handar við Leirutanga 29 krefjast þess með atbeina Húseigendafélagsins að fimmtíu til sextíu hávaxnar aspir á lóðinni hverfi þaðan. Sólar njóti ekki sem skyldi á Leirutanga 31 og þurft hafi að hækka framlóðina við Leirutanga 27 vegna róta frá öspunum. Þá séu íbúar beggja húsanna langþreyttir á óþrifnaði frá trjánum.

Varar við óhóflegri bjartsýni í Búrma

„Þessa dagana verð ég vör við það sem ég kalla glæfralega bjartsýni,“ sagði Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, í fyrstu ræðu sinni á alþjóðavettvangi sem hún hélt í Taílandi í gær. „Ég tel að smá skammtur af heilbrigðri tortryggni væri ekki úr vegi,“ bætti hún við. Hún hefur setið í stofufangelsi í Búrma megnið af síðustu tuttugu árum en var látin laus á síðasta ári eftir að mannaskipti urðu í æðstu stöðum herforingjastjórnar landsins.

Pútín segir pólitíska lausn vel mögulega í Sýrlandi

„Það eru ýmsir hagsmunir í húfi í átökunum og maður þarf að finna þau svæði þar sem þessir hagsmunir fara saman, og fá síðan alla aðila til að setjast að sama borði,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti um ástandið í Sýrlandi, sem farið hefur hríðversnandi undanfarna daga og vikur. „Það þarf ákveðna fagmennsku til og þolinmæði,“ bætti Pútin við og lofaði að beita sér fyrir því að jákvæð niðurstaða fáist.

Segir lögregluna þurfa að ná falsaranum

„Maður er að melta þetta. Lögreglan þarf að ná í þennan mann og rannsaka hvað er þarna í gangi. Þetta tengist bara þessum eina einstaklingi,“ segir Ástþór Magnússon. Framboð Ástþórs til forseta Íslands var ekki metið gilt þar sem ekki liggur fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftalistum til stuðnings Ástþóri. Innanríkisráðuneytið tilkynnti þetta í gær.

Með fordóma gegn gyðingum

Áttundi hver Norðmaður er með fordóma gegn gyðingum, samkvæmt niðurstöðum könnunar á vegum Senter for Studier av Holocaust og livssynsminoriteter. Á vef Kristilega Dagblaðsins í Danmörku segir að könnunin leiði jafnframt í ljós að fjórði hver Norðmaður telji að gyðingar líti svo á að þeir séu betri en aðrir. Nær 40 prósent bera meðferð Ísraela á Palestínumönnum saman við meðferð nasista á gyðingum. Talsmenn gyðinga segja niðurstöðurnar bera vott um vanþekkingu á gyðingdómi.-ibs

Tíu taka við 90 prósentum

Tíu af Evrópusambandsríkjunum 27 taka á móti 90 prósentum allra hælisleitenda í Evrópu. Cecilia Malmström, innanríkismálastjóri ESB, hvetur hin ríkin 17 til þess að axla meiri ábyrgð. Malmström vill umræður um hvernig ESB eigi að takast á við innflutning frá löndum þar sem efnahagsvandi ríkir.

Ingólfur Arnarson vígir torgið

Ingólfur Arnarson landnámsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30. Þá mun Lúðrasveit landnámsmanna blása létta tóna við tilefnið.

Vilja láta lýsa framboð ógilt

Þúsundir manna komu saman í borgum Egyptalands í gær til að krefjast þess að forsetaframboð Ahmeds Shafiks, síðasta forsætisráðherra Mubarak-stjórnarinnar, verði ógilt. Shafik er annar tveggja frambjóðenda sem tilkynnt hefur verið að verði í kjöri í seinni umferð forsetakosninganna síðar í mánuðinum. Hinn er Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslíma. Mótmælendurnir segja framboð Shafiks brjóta í bága við reglur um að enginn þeirra sem voru í stjórn Hosni Mubaraks megi bjóða sig fram til forseta.- gb

Bendi á annan stað fyrir Sierra

Fulltrúar í skipulagsráði Reykjavíkur hafa frestað ákvörðun um staðsetningu listaverksins Svörtu keilunnar sem menningarráð borgarinnar vill að verði til frambúðar á Austurvelli. Eins og komið hefur fram vill höfundur Svörtu keilunnar, Spánverjinn Santiago Sierra, gefa borginni verkið með því skilyrði að það verði á Austurvelli. Svörtu keilunni er ætlað að vera minnisvarði um borgaralega óhlýðni. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, vill að verkið sé þegið og það haft á Austurvelli. Alþingi leggst gegn því og skipulagsráð vill að Hafþór stingi upp á öðrum staðsetningum. - gar

Annþóri og Berki bannað að mæta fyrir dóm

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson fengu ekki að mæta við þingfestingu ákæru á hendur þeim í Héraðsdómi Reykjaness í gær þrátt fyrir óskir þar um. Annþór og Börkur sitja nú í einangrun á Litla-Hrauni grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana og verjendum þeirra var tilkynnt um það í gærmorgun að vegna rannsóknarhagsmuna fengju þeir ekki að mæta í dómssal á meðan.

Fleiri þurfi vottorð til að vinna með börnum

Yfirvöld í Danmörku ráðgera að auka eftirlit með fólki sem vinnur með börnum með því að fjölga þeim störfum sem krefjast svokallaðs barnavottorðs. Þeim svipar til sakavottorða og kanna bakgrunn starfsfólks á dagheimilum, bílstjórum sem aka börnum og svo framvegis.

Finnska lögreglan fær aðstoð

Afbrotum sem rekja má til Rúmena hefur fjölgað verulega í Finnlandi eftir að Rúmenía varð aðili að Evrópusambandinu árið 2007. Rúmensku afbrotamennirnir í Finnlandi eru í mörgum tilfellum grunaðir um vasaþjófnað, stuld úr verslunum og svindl við greiðslu vegna viðskipta.

Varði átta milljónum í ódæðin

NoregurFjöldamorðinginn Anders Behring Breivik eyddi alls um 390 þúsund norskum krónum, sem nemur rúmum 8,3 milljónum íslenskra króna, í skipulag og framkvæmd ódæðanna í fyrrasumar. Þetta kom fram við réttarhöldin í gær.

Hægri grænir vilja stafinn G

Flokkur hægri grænna, flokkur fólksins, hefur formlega sótt um listabókstafinn G. Flokkurinn, sem leiddur er af Guðmundi Franklín Jónssyni, skilaði inn meðmælendalistum til Innanríkisráðuneytisins í gær.

Stálu díselolíu fyrir 65 þúsund

Alls 260 lítrum af díselolíu var stolið af tveimur flutningabílum á Suðurnesjum. Að sögn lögreglu var olíunni stolið um nótt en á vettvangi var lítill olíubrúsi og slanga sem þjófarnir notuðu við þjófnaðinn. Miðað við að lítrinn af díselolíu kosti 248 krónur, eins og algengast er í dag, þá stálu þjófarnir olíu fyrir tæpar 65 þúsund krónur.

Afmælisveislan fékk sjö tilnefningar

Menning Leiksýningarnar Afmælisveislan, Heimsljós, Hreinsun, Vesalingarnir og Tengdó eru tilnefndar til Grímuverðlauna sem besta sýning ársins. Tilnefningar voru kynntar í Tjarnarbíói í gær.

Íslenska gulrófan óvenju góð

Fólki finnst skoskar rófur vondar. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. Íslenskar gulrófur þykja hins vegar óvenju góðar.

Segir ruslmál á Íslandi í tómu tjóni

Reglur sem neyða Skaftárhrepp til að loka sorpbrennslunni á Kirkjubæjarklaustri eru fáránlegar, segir sveitarstjórinn, og telur mun verra fyrir umhverfið að urða sorpið. Hreppurinn stendur frammi fyrr því að hafa ekki efni á að kynda skólann og sundlaugina.

Er háskólamenntun tímans virði?

Er háskólamenntun ennþá tímans og peninganna virði? Þessari spurningu er varpað fram í breska blaðinu The Guardian í dag. Sífellt fleiri ungmenni í Evrópu eiga í erfiðleikum með að finna sér vinnu þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum margra ára háskólanám. Mörgum finnst gildi háskólamenntunar hafa fallið.

Nýr vegarslóði að Flóaáveitu

Áttatíu og fimm ár eru liðin frá því að Flóaáveitan bætti grassprettu til muna og gerði efnalitla bændur í Flóahreppi ríka. Í tilefni tímamótanna hefur verið ákveðið að opna vegslóða að þessu þekkta mannvirki sem er eitt af tveimur í heiminum sem sagt er að sjáist frá tunglinu.

Sala ÁTVR á áfengi eykst

Sala áfengis það sem af er árinu hefur aukist miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin nemur 1,5% í lítrum talið. Sé rýnt í tölur ákveðinna víntegunda kemur í ljós að sala á rauðvíni hefur aukist um 3% og hvítvíni um 5%. Aftur á móti er samdráttur í sölu brennivíns og vodka.

Tónleikum Buiku frestað vegna veikinda

Vegna bronkítis og barkabólgu spænsk/afrísku söngkonunnar Buiku verður tónleikum hennar frestað. Tónleikarnir áttu að vera næsta sunnudag. Nú er unnið að því að finna nýja dagsetningu sem tilkynn verður um á næstu dögum. Allir seldir miðar gilda auðvitað á hina nýju tónleika, sömu sæti.

Tilnefningar til Grímunnar 2012 kynntar

Tilnefningar til Grímunnar 2012 voru kynntar í Tjarnarbíó í dag. Alls voru 89 verk tilnefnd af leikhúsum og sviðslistahópum til Grímuverðlauna í ár.

Munir úr einvígi aldarinnar til sýnis

Stærsta einkasafn muna úr einvígi þeirra Bobby Fischers og Boris Spasskí verður sýnt um helgina á sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara.

Grimmur flækingshundur beit barn

Hundur sem talinn er vera flækingshundur beit barn og glefsaði í konu í Reykjanesbæ í vikunni. Hundurinn var sagður ógnandi og lýstu þeir sem sáu hann á þann hátt að hann væri eins og "stór rotta“ og að hann væri grimmur. Lögregla var kölluð til en þá var dýrið horfið á braut.

Faldi kókaín innvortis - í gæsluvarðhald

Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn, sem er erlendur, hafi verið stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá London.

Sumarið er komið - 24,4 gráður á Suðurlandi

Það má með sanni segja að júnímánuður byrji vel því heiðskýrt er að mestu um allt land og hitatölur sjást sem einhverjum gæti einungis dreymt um að sjá erlendis. Mestu hlýindin hafa mælst á Þingvöllum, 21,8 gráður, og á Eyrabakka 24,4 gráður, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands.

Pillay fordæmir fjöldamorð í Sýrlandi

Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna, sagði í dag að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi á laugardaginn síðastliðinn gætu talist sem glæpur gegn mannkyni.

Hjóluðu 740 þúsund kílómetra á þrettán dögum

11.380 þátttakendur frá 666 vinnustöðum hjóluðu 741.450 kílómetra á þeim 13 dögum sem verkefnið Hjólað í vinnuna stóð yfir. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að við það hafi sparast um 133 tonn af útblæstri koltvísýrings og 55.597 lítrar af eldsneyti sem gera um 14 milljónir króna sé miðað við 80kg einstakling sem ekur á fólksbíl.

Vill banna gosdrykki í yfirstærð

Borgarstjórinn í New York vill banna gosdrykki í stórum ílátum til þess að sporna gegn offituvandamálinu í borginni. Gangi hugmyndir Michaels Bloomberg eftir yrði hámarksstærð á gosdrykkjaílátum hálfur lítri en þetta yrði í fyrsta sinn sem slíkum aðferðum yrði beitt í Bandaríkjunum.

Flugdólgi vísað út úr flugvél - endaði í fangaklefa

Flugstjóri flugvélar, sem var á leið til Lundúna frá Keflavíkurflugvelli í vikunni, neitaði að fljúga með erlendan karlmann á fertugsaldri vegna ölvunarástands hans. Honum var vísað út úr flugvélinni og tóku lögreglumenn á móti honum í flugstöðinni. Honum var tilkynnt að hann þyrfti að gera hlé á ferðalagi sínu og gista á flughóteli.

Kona og börn læstust inni á klósetti í 45 mínútur

Kona, ásamt þremur börnum sínum, læstist inni á klósetti í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ í fjörutíu og fimm mínútur í vikunni. Óttast var að súrefnislaust gæti orðið á salerninu og því var ákveðið að kalla á lögreglu. Þegar hún kom á staðinn hafði starfsmaður í sundlauginni náð að brjóta upp hurðina og hleypa konunni og börnunum út.

Sjá næstu 50 fréttir