Innlent

Segir lögregluna þurfa að ná falsaranum

Innanríkisráðuneytið tilkynnti í gær að framboð Ástþórs væri ógilt.
Innanríkisráðuneytið tilkynnti í gær að framboð Ástþórs væri ógilt.
„Maður er að melta þetta. Lögreglan þarf að ná í þennan mann og rannsaka hvað er þarna í gangi. Þetta tengist bara þessum eina einstaklingi,“ segir Ástþór Magnússon.

Framboð Ástþórs til forseta Íslands var ekki metið gilt þar sem ekki liggur fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftalistum til stuðnings Ástþóri. Innanríkisráðuneytið tilkynnti þetta í gær.

Málið snýst um tugi falsaðra undirskrifta í kjördæminu frá einum manni sem var að vinna fyrir Ástþór í kosningabaráttunni.

„Ég held að það sé búið að kæra hann og biðja um rannsókn,“ segir Ástþór þegar hann er inntur eftir því hvort hann ætli að kæra málið. Hann segir málið verðfall á lýðræðinu á Íslandi. „Það hefur afhjúpast gat í kosningakerfinu þannig að hvaða fólk sem er getur ráðist á lýðræðisleg framboð,“ segir hann. „Það sem er alvarlegast í þessu er að stjórnsýslan lá lengi á listanum án þess að vinna nokkuð úr þeim.“

Ástþór vill ekki nafngreina manninn sem sá um að falsa undirskriftirnar.

„Hann kom bara óumbeðinn og vildi vinna,“ segir hann. „Ég hef ekki hugmynd um hvað býr að baki.“- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×