Innlent

Ingólfur Arnarson vígir ylströnd

Ingólfur mun stíga af stalli sínum í dag og vígja eitt stykki ylströnd.
Ingólfur mun stíga af stalli sínum í dag og vígja eitt stykki ylströnd.
Ingólfur Arnarson landnámsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30.

Þá mun Lúðrasveit landnámsmanna blása létta tóna við tilefnið.

Ingólfur sjálfur mun taka nokkur lög í kjölfar landnámsmannadans í boði danshóps frumbyggja.

Mikið verður um að vera í miðborg Reykjavíkur en nú stendur yfir Hátíð hafsins. Boðið verður upp á glóaldinsafa og landnámspönnukökur á Ingólfstorgi. Þá verður fiskisúpa framreidd við Laugaveg 3. Nánari upplýsingar um hátíð hafsins má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×