Deyðið aspirnar segja sólarlausir nágrannar 2. júní 2012 06:00 Frumbyggi í Leirutanga í Mosfellsbæ stendur óhagganlegur andspænis kröfum nágranna á báða bóga sem vilja gömlu aspirnar hans á bak og burt.Fréttablaðið/Vilhelm „
Hér eru nágrannar að skipa manni að deyða sín eigin tré inni á manns eigin lóð,“ segir Gunnar Jónsson, eigandi íbúðarhússins í Leirutanga 29, sem nú er hótað málsókn vegna hárra aspa sem nágrannar til beggja handa segja skyggja á sólina og valda tjóni og óþrifnaði. Tvenn hjón sem búa hvor til sinnar handar við Leirutanga 29 krefjast þess með atbeina Húseigendafélagsins að fimmtíu til sextíu hávaxnar aspir á lóðinni hverfi þaðan. Sólar njóti ekki sem skyldi á Leirutanga 31 og þurft hafi að hækka framlóðina við Leirutanga 27 vegna róta frá öspunum. Þá séu íbúar beggja húsanna langþreyttir á óþrifnaði frá trjánum. „Á vorin er það límkennda harpixið frá hýðinu sem festist á bíla og fleira. Síðsumars er það fræullin sem myndar hvíta drífu á nágrannalóðum, gangstéttum og götum,“ segir í bréfi lögmanns Húseigendafélagsins sem vísar í dóm þar sem húseiganda var gert að fjarlægja tré vegna skuggamyndunar. „Eigendur Leirutanga 27 og Leirutanga 31 hafa nú falið undirritaðri að gera þá kröfu að þér fellið, fjarlægið og deyðið aspirnar,“ segir lögmaðurinn í bréfinu og gefur Gunnari eins mánaðar frest til verða við kröfunni. „Þetta bréf hljómar eins og skipun frá dómstól,“ segir Gunnar sem kveðst alls ekki ætla að fara að kröfum Húseigendafélagsins og nágrannanna í Leirutanga. Hann gagnrýnir Húseigendafélagið fyrir að hafa aldrei rætt við hann áður en kröfubréfið var sent. Skýringuna á þeim vinnubrögðum rekur hann til viðhorfa sem formaður félagsins hafi sett fram í blaðagreinum. „Hann er bókstaflega búinn að frísa af grimmd gegn öspum.“ Gagnrýni nágrannanna vísar Gunnar á bug. „Það er allsendis út í loftið,“ segir hann um fullyrðingar um tjón og óþrif af völdum aspanna. „Auðvitað fýkur af trjám en það fýkur jafnt af trjám réttlátra sem ranglátra.“ Þá segir Gunnar trén orðin á bilinu þrjátíu til fjörutíu ára og því friðhelg fyrir aldurs sakir. „Fyrir utan að það er nú þegar búið að fella þau flest,“ bætir hann við og útskýrir að hann hafi orðið við ýmsum beiðnum nágrannana og fellt sum tré og leyft að greinar yrðu sagaðar af upp í fimm metra hæð til að hleypa sólarljósi að. Eftir að hann hafi leigt húsið út hafi enn fleiri tré verð felld með samþykki konu hans – þótt það hafi reyndar ekki verið með hans vitund og vilja. Nú vilji nágrannarnir meira. „Þetta bréf er bara skipun um að ég drepi tréin mín,“ segir Gunnar sem lýsir kröfunni sem inngripi í hans eignarrétt. gar@frettabladid.is
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Sjá meira