Innlent

Össur fordæmir voðaverk sýrlenskra stjórnvalda

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fordæmir harðlega voðaverk sýrlenskra stjórnvalda sem og vopnaðra sveita á þeirra ábyrgð en lítill vafi leikur á að þau hafi gerst sek um skipulögð og kerfisbundin mannréttindabrot undanfarnar vikur og mánuði að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Ráðherra fordæmir sérstaklega fjöldamorð í bænum Houla í vesturhluta Sýrlands í síðustu viku og leggur áherslu á að draga þurfi til ábyrgðar alla þá sem stóðu fyrir þeim.

Svo segir í tilkynningunni að Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur lýst því yfir að flest fórnarlamba voðaverkanna í Houla í síðustu viku hafi verið tekin af lífi á hrottafenginn hátt. Af 108 sem þar féllu voru 49 börn. Vitni hafa lýst því að illvirkjarnir hafi verið liðsmenn vopnaðra sveita sem hliðhollar eru ríkisstjórn Bashars Assads forseta. Fleiri fregnir hafa borist í þessari viku af aftökum og tekur ráðherra undir þau orð mannréttindafulltrúa SÞ, Navi Pillay, sem sagði á sérstökum fundi Mannréttindaráðs SÞ í Genf í gær að lýsingar á voðaverkunum bentu til þess að um glæpi gegn mannkyni kunni að hafa verið að ræða.

Í ljósi atburðanna og þróunarinnar í Sýrlandi síðustu misseri ítrekar utanríkisráðherra kröfur frá í ágúst á síðasta ári að Bashar al Assad forseti Sýrlands víki úr embætti.

Í sérstakri umræðu um ódæðisverkin í Sýrlandi sem fram fór á vegum Mannréttindaráðs SÞ í Genf í gær átti Ísland aðild að sameiginlegri ræðu Norðurlandanna þar sem nýleg voðaverk voru fordæmd harðlega og allri ábyrgð á öryggi borgara Sýrlands lýst á hendur sýrlenskum stjórnvöldum. Var einnig lögð áhersla á að senda þyrfti sýrlenskum ráðamönnum skýr skilaboð um að þeim beri tafarlaust að stöðva ofbeldið í landinu.

Ísland var jafnframt meðflutningsaðili að ályktun á fundinum í Genf þar sem voðaverk sýrlenskra stjórnvalda voru harðlega fordæmd. Voru sýrlensk stjórnvöld þar enn og aftur hvött til að sýna stofnunum SÞ samvinnufýsi. Jafnframt var rannsóknarnefnd Mannréttindaráðsins um málefni Sýrlands falið að rannsaka atburðina í Houla, hafa uppi á þeim sem bera ábyrgð á þeim og láta þá standa reikningsskil gerða sinna.

Utanríkisráðherra lýsir yfir stuðningi við störf Kofis Annan, sérlegs sendimanns SÞ og Arababandalagsins, og eftirlitssveita SÞ, sem verið hafa á vettvangi í Sýrlandi sl. mánuð. Þá segir Össur að það sé þó ljóst að meira þarf til svo stöðva megi hildarleikinn í landinu. Þar þarf alþjóðasamfélagið allt að leggja lóð á vogarskálarnar.


Tengdar fréttir

Þóttist vera látinn til að blekkja morðingja

Sýrlenskur piltur greip til örþrifaráða þegar vígamenn myrtu fjölskyldu hans í bænum Houla í síðustu viku. Hann makaði blóði bróður síns á föt sín til að blekkja morðingjana.

Mannréttindaráð fundar í kjölfar fjöldamorða

Enn berast fregnir af fjöldamorðum í Sýrlandi. Andspyrnumenn þar í landi hafa birt myndband sem sýnir lík þrettán verkamanna en talið er að vígasveit hafi skotið þá til bana í útjaðri Qusair þorpsins í vesturhluta Sýrlands. Er þetta þriðja fjöldamorðið á einni viku í landinu.

Pillay fordæmir fjöldamorð í Sýrlandi

Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna, sagði í dag að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi á laugardaginn síðastliðinn gætu talist sem glæpur gegn mannkyni.

Blóðbað í Sýrlandi

Þjóðarráðið í Sýrlandi, stærstu samtök andspyrnumanna í landinu, hafa farið fram á að Öryggisráð Sameinu Þjóðanna komi saman vegna atburðanna í bænum Houla í Homs-héraði í nótt.

Rússar taka undir ásakanir

Báðir aðilar hafa greinilega átt hlut að dauða saklausra manna, þar á meðal nokkurra tuga kvenna og barna, segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, um fjöldamorðin í Houla í Sýrlandi á föstudag.

Rússar segja íhlutun í Sýrlandi ekki koma til greina

Rússar lýstu því yfir í morgun að hernaðaríhlutun alþjóðasamfélagsins í Sýrlandi komi ekki til greina og munu þeir því að öllum líkindum beita neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðann verði slík tillaga lögð fyrir. Áður hafði Francois Hollande forseti Frakklands sagt að slík íhlutun hljóti að koma til greina.

Fordæma fjöldamorð en deila um aðgerðir

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdu í gærkvöldi fjöldamorð ríkisstjórnarinnar í Sýrlandi í borginni Houla. Talið er að hundrað óbreyttir borgarar hafi verið myrtir af hermönnum stjórnarinnar í borginni á föstudaginn.

Fórnarlömbin í Houla voru flest tekin af lífi

Flestir hinna 108 sem fórust í Houla héraði í Sýrlandi á föstudaginn voru teknir af lífi. Þetta fullyrða eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna sem hafa skoðað líkin. Vitni að morðunum fullyrða að vígamenn á vegum ríkisstjórnar Sýrlands hafi staðið að fjöldamorðunum. Þessi yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna kemur á sama tíma og Kofi Annan erindreki samtakanna í landinu ræðir við Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. Að sögn talsmanns SÞ lítur út fyrir að færri en tuttugu af fórnarlömbunum hafi fallið í loftárásum eða af völdum skriðdrekaskothríðar. Hinir verið teknir af lífi í tveimur aðskildum árásum á þorp á svæðinu. Fjöldi barna eru á meðal hinna látnu.

Annan ræðir við al-Assad

Kofi Annan, erindreki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi hittir í dag forseta landsins Bashar al-Assad í höfuðborginni Damaskus.

Neyðarfundur í Öryggisráðinu

Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna mun funda seinna í dag um stöðu mála í Sýrlandi. Atburðir í borginni Houla í Homs-héraði síðustu daga eru megin ástæða fundarins. Að minnsta kosti 90 létust í árásum stjórnarhersins á borgina í gær að sögn andspyrnuhópa í landinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×