Innlent

Herdís opnar kosningaskrifstofu

Stuðningsmenn Herdísar Þorgeirsdóttur forsetaframbjóðanda opna í dag kosningamiðstöð að Laugavegi 87.

Í tilkynningu frá þeim segir að opnunarhátíðin standi yfir alla helgina en sérstök dagskrá verður seinni partinn í dag með tónlist, upplestri og ávarpi Herdísar.

Að lokinni opnunarhelgi verður kosningamiðstöðin opin fram að forsetakosningum 30.júní, á vikum dögum kl. 14 - 18 og um helgar kl 13 - 16.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×