Fleiri fréttir Annþór og Börkur fengu ekki að mæta í héraðsdóm Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson mættu ekki í Héraðsdóm Reykjaness í morgun er þingfesting í máli gegn þeim fór fram. Að sögn verjenda þeirra fengu þeir ekki leyfi til þess þar sem þeir sitja í einangrun út af öðru máli. 1.6.2012 11:04 Kassabílafjör á Ingólfstorgi 1.6.2012 16:27
Sjá næstu 50 fréttir
Annþór og Börkur fengu ekki að mæta í héraðsdóm Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson mættu ekki í Héraðsdóm Reykjaness í morgun er þingfesting í máli gegn þeim fór fram. Að sögn verjenda þeirra fengu þeir ekki leyfi til þess þar sem þeir sitja í einangrun út af öðru máli. 1.6.2012 11:04
Danir reikna með metuppskeru af jarðarberjum Danir reikna með metuppskeru af jarðarberjum í sumar en það skýrist einkum af hagstæðum ræktunarskilyrðum snemma í vor þar sem engin næturfrost trufluðu ræktunina. 1.6.2012 10:43
Töluverðum verðmætum stolið úr sendibíl Þjófur braust inn í sendibíl miðsvæðis í Kópavogi laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi og stal talsverðum verðmætum úr honum. Þjófurinn komst undan með þýfið, en vitni gat gefið lögreglu góða lýsingu á honum og er hans nú leitað. 1.6.2012 07:07
Neyðarlögum loks aflétt í Egyptalandi Neyðarlögum sem staðið hafa óslitið í 31 ár hefur loks verið aflétt í Egyptalandi. 1.6.2012 07:02
Selja "íslenskar“ lopapeysur sem eru prjónaðar í Kína Töluvert magn af lopapeysum sem seldar eru í verslunum er prjónað eða framleitt erlendis. Peysurnar eru oft merktar sem íslensk hönnun eða vara en ekki tilgreint hvar þær eru gerðar. Enginn greinarmunur er gerður á þessum peysum og þeim sem prjónaðar eru hérlendis. 1.6.2012 07:00
John Edwards sýknaður Dómstóll í Bandaríkjunum hefur sýknað öldungadeildarþingmanninn John Edwards af ákæru um að hafa misnotað fé úr kosningasjóði sínum árið 2008 þegar hann var varaforsetaefni Demókrataflokksins í forsetakosningunum það ár. 1.6.2012 06:59
Togarar sigla í land fyrir Sjómannadaginn Togarar, sem hafa verið á karfaveiðum á Reykjaneshrygg að undanförnu, hættu veiðum í gærkvöldi og i nótt og sigldu áleilðis til lands, til að áhafnirnar verði komnar í land fyrir Sjómannadaginn um helgina. 1.6.2012 06:56
Framsýn alfarið á móti raforkusölu um sæstreng Stéttarfélagið Framsýn hafnar alfarið hugmyndum Landsvirkjunar og stjórnvalda um að flytja út raforku með sæstreng frá Íslandi til Evrópu, eð því er segir í ályktun aðalfundar Framsýnar, sem haldinn var í gærkvöldi. 1.6.2012 06:50
Stóraukin öryggisvarsla í kringum fund Bilderberg hópsins Öryggisvarsla í kringum hinn árlega fund Bilderberg hópsins sem hefst í dag hefur verið stóraukin frá því sem áður var. 1.6.2012 06:48
Reuters: Írar samþykktu sáttmálann með 60% atkvæða Reuters hefur eftir heimildum innan stjórnar Írlands að Írar hafi samþykkt fjárlagasáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í gærdag með 60% atkvæða en 40% vildu hafna sáttmálanum. 1.6.2012 06:42
Alvarleg líkamsárás í Hafnarfirði Nokkrir menn réðust saman á einn karlmann fyrir utan veitingastað í Hafnarfirði laust fyrir klukkan tvö í nótt, og létu högg og spörk dynja á honum. Hann hlaut meðal annars áverka á höfði og hálsi. 1.6.2012 06:37
Vilja gjörbreyta samfélaginu Húmanistaflokkurinn kynnti stefnumál sín á blaðamannafundi í gær, en flokkurinn hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum landsins til næstu Alþingiskosninga. Eitt helsta stefnumál flokksins eru lýðræðisumbætur. Þá vilja Húmanistar að fjármálakerfið verði undir stjórn ríkisins ásamt því að ríkið ákvarði magn peninga í umferð. 1.6.2012 06:00
Hæstu styrkirnir til rjúpnarannsókna Umhverfisráðuneytið hefur úthlutað 28,4 milljónum króna úr Veiðikortasjóði í styrki til ýmissa rannsóknarverkefna. Hæsti einstaki styrkurinn fer til rannsókna á rjúpum. Í kjölfar auglýsingar um umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra bárust umhverfisráðuneytinu tólf umsóknir frá 15 aðilum að upphæð ríflega 50 milljónir króna. 1.6.2012 05:30
Tíu manns fyrir dóm í dag vegna ofbeldis Ákæra á hendur Annþóri Kristjáni Karlssyni, Berki Birgissyni og átta öðrum mönnum fyrir þrjár hrottafengnar líkamsárásir verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Ákæran er afrakstur lögreglurannsóknar sem komst í fréttir þegar ráðist var í viðamikla rassíu víða á höfuðborgarsvæðinu um miðjan mars. Árásirnar þrjár voru mjög alvarlegar, eins og lesa má um hér fyrir neðan. Annþór er ákærður fyrir að standa að þremur þeirra og Börkur að tveimur. 1.6.2012 05:00
Tvöfölduð framleiðsla rúmast innan ramma Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að hægt sé að tvöfalda raforkuframleiðslu fyrirtækisins án þess að ganga gegn stefnu stjórnvalda um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Rammaáætlun þar um, auk orkustefnu stjórnvalda, gangi ekki gegn slíkri aukningu. „Það felst ekki endanleg ákvörðun í Rammaáætlun svo erfitt er að segja til um hvernig það fer. Við munum að sjálfsögðu miða okkar áætlanir við Rammaáætlunina. Við höfum sagt að við teljum að hægt sé að tvöfalda orkuframleiðslu á Íslandi á tækni- og umhverfislega fullnægjandi hátt. Ég held að það sé innan marka Rammaáætlunar, ef horft er til biðflokksins þar auk kosta sem ekki eru í Rammaáætlun,“ segir Hörður. 1.6.2012 04:00
Má bara selja tregbrennanlegar sígarettur Innanríkisráðuneytið hefur staðfest að ÁTVR megi ekki dreifa sígarettum sem ekki uppfylla nýjan öryggisstaðal Evrópska efnahagssvæðisins. Um er að ræða hertar reglur um hvernig sígarettupappír má brenna. Á vef ÁTVR segir að undanfarið hafi öll sígarettubréf verið að breytast í tregbrennanlega gerð samkvæmt alþjóðlegum stöðlum: 1.6.2012 03:30
Fjölmiðlanefnd aðhefst ekki Fjölmiðlanefnd hefur ekki heimild til að grípa til viðurlaga vegna þeirrar ákvörðunar Stöðvar 2 að bjóða aðeins Ólafi Ragnari Grímssyni og Þóru Arnórsdóttur að taka þátt í umræðuþætti á sunnudag. Nefndin hefur ekki heldur heimild til að gefa fjölmiðlaveitum fyrirmæli um hvernig umfjöllun þeirra í aðdraganda kosninga skuli háttað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Þingmenn Hreyfingarinnar höfðu sent fjölmiðlanefnd erindi vegna ákvörðunar Stöðvar 2. Þá höfðu frambjóðendur gert athugasemdir við fyrirkomulagið. 1.6.2012 03:15
Vilja jafna réttindi útlendinga samfélagsmál Ein löggjöf verður til um málefni útlendinga hér á landi ef tillögur starfshóps um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verða að veruleika. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og formaður starfshópsins, kynnti tillögur hópsins og starf á fundi á miðvikudag. Starfshópurinn vill einnig að útlendingar sem koma hingað til lands fái aukna fræðslu um réttindi sín og skyldur. Hugmynd hefur komið upp um að útbúa dvd-disk sem fók verði að horfa á hjá Útlendingastofnun þegar það sækir hér um dvalarleyfi. 1.6.2012 03:00
Segja Rússa stuðla að borgarastríði „Þeir eru að segja mér að þeir vilji ekki sjá borgarastríð. Ég hef verið að segja þeim að stefna þeirra muni hjálpa til við að stuðla að borgarastríði,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um afstöðu Rússa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. 1.6.2012 02:00
Klámmyndaleikari eftirlýstur vegna morðmáls Klámmyndaleikari og meintur morðingi er nú eftirlýstur af Alríkislögreglunni Interpol. Luka Rocco Magnotta, 29 ára klámmyndaleikari, er grunaður um að hafa myrt mann og sent líkamsparta hans með pósti á skrifstofur stjórnmálaflokks í Kanada. 31.5.2012 23:52
Mark Zuckerberg lék í kínverskum glæpaþætti Mark Zuckerberg er margt til listanna lagt. Ekki nóg með að hafa stofnað vinsælasta samskiptamiðil veraldar og stýrt honum í gegnum hlutfjárútboð á dögunum þá er hann einnig ágætis leikari. 31.5.2012 22:30
Segja nákvæmlega fyrir um árekstur vetrarbrauta Geimvísindamenn hafa reiknað út nákvæmlega hvenæra vetrarbrautin okkar mun rekast á næstu vetrarbraut, Andromedu, með hjálp Hubble geimsjónaukans. Þyngdarafl dregur vetrarbrautirnar tvær saman og áreksturinn mun hefjast eftir eina fjóra milljarða ára. Tveimur milljörðum ára síðar verða þær orðnar ein heild. 31.5.2012 22:14
Hlaupið fyrir krabbameinssjúka - myndir Heilsuhlaup krabbameinsfélags Íslands var haldið í 21. sinn í dag. Veðrið lék við hlaupagarpana sem alls voru 300. Geir Gunnlaugsson, landlæknir, ræsti hlaupið og hvatti þáttakendur til dáða. Kári Steinn Karlsson og Eva Margrét Einarsdóttir voru fljótust að hlaupa 10 km. 31.5.2012 21:54
Ástþór segir galla á kosningakerfinu Á morgun verður tilkynnt hverjir hafa skilað inn fullgildu framboði og verða í framboði til embættis forseta Íslands. Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, hefur verið andvaka vegna þess að stuðningsmannalistar hans hafa ekki fengið formlega staðfestingu og því er mögulegt að framboð hans verði ekki talið fullgilt. 31.5.2012 21:42
Þóttist vera látinn til að blekkja morðingja Sýrlenskur piltur greip til örþrifaráða þegar vígamenn myrtu fjölskyldu hans í bænum Houla í síðustu viku. Hann makaði blóði bróður síns á föt sín til að blekkja morðingjana. 31.5.2012 21:30
Tvöfalt meiri álagning á bensín á Íslandi Álagning olíufélaganna á bensínverð er tvöfalt meiri á Íslandi en í Svíþjóð og 30% meiri en í Danmörku. Þetta sagði Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. 31.5.2012 21:25
Dýrt að grilla í sumar Grillveislurnar verða dýrari í sumar en síðustu ár. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðsins sem kom út í dag. Helstu kjötafurðir hafa hækkað um allt að 24% á síðustu tólf mánuðum. Menn eru ekki sammála um hvað valdi hækkuninni. 31.5.2012 20:54
Sæstrengur til skoðunar af fullri alvöru hjá báðum ríkjum Heimsókn orkumálaráðherra Bretlands til Íslands staðfestir að sæstrengur milli landanna er kominn til skoðunar fyrir alvöru. Ráðherrann átti viðræður við utanríkisráðherra og Landsvirkjun um málið í dag. Breski orkumálaráðherrann, Charles Hendry, hóf daginn á ráðstefnu í höfuðstöðvum Arion banka. 31.5.2012 20:30
Framtíðarsýnin breyttist á Sveinstindi Ellert Grétarsson ljósmyndari hefur breyst úr virkjunarsinna í náttúrurverndarsinna og nú vekur hann athygli á fegurð Reykjanessins í nýrri bók. "Ef Reykjanesinu verður breytt í eina samfellda iðnaðarlóð skerðir það alla útivistar- og ferðamöguleika þar fyrir höfuðborgarbúa, heimafólk og gesti. Ríflega 80% erlendra ferðamanna eru hingað komnir til að upplifa ósnortna náttúru, þeir eru ekki að koma til að skoða borstæði og háspennulínur,“ segir Ellert Grétarsson, ljósmyndari og stuðningsfulltrúi, sem hefur gefið út bókina Reykjanesskagi – Ruslatunnan í Rammaáætlun. Aðallega er um vefútgáfu að ræða sem hefur vakið athygli og viðbrögð og er á slóðinni http://issuu.com/ellertg/docs/nsve1. Í samvinnu við Landvernd var bókin prentuð í litlu upplagi og í gær afhenti Ellert alþingismönnum eintök. 31.5.2012 23:00
Ökumaður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Átján ára piltur sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi eftir að hafa orðið Eyþóri Darra Róbertssyni að bana við ofsaakstur, mótmælti ákærunni fyrir dómi í morgun. Í ákæru segir að hann hafi einnig stofnað vegfarendum í hættu "á ófyrirleitinn hátt." Móðir Eyþórs Darra mætti við þingfestinguna í morgun ásamt bróður hans og ömmu. 31.5.2012 19:54
Áhlaup á Landsbankann Á annað hundrað manna gerði áhlaup á Landsbankann á Fáskrúðsfirði í dag, að sögn þátttakenda, til að mótmæla lokun útibúsins. Einn þeirra segir gríðarlega reiði meðal bæjarbúa. 31.5.2012 19:47
Ræður allra forsetaframbjóðendanna á Vísi Forsetaefnin komu saman í Iðnó í gær á fundi og ræddu stöðu forsetans og hlutverk miðað við hið nýja stjórnarskrárfrumvarp Stjórnlagaráðs. Nú eru framsöguræður allra frambjóðendanna komnar inn á Vísi. 31.5.2012 19:41
Segir veiðireglu ESB mótsagnakennda og brjóta gegn EES-samningnum Sérfræðingur í hafrétti segir að löndunarbann og bann gegn sölu sjávarafurða í drögum að reglum Evrópusambandsins feli í sér mun víðtækari bann en EES-samningurinn heimilar. Því sé um að ræða brot á samningnum, samþykki Evrópuþingið regluna. 31.5.2012 18:30
Vill sauðnaut til Ísafjarðar Snævar Valentínus Vagnsson hefur óskað formlega eftir því við Ísafjarðarbæ að fá að flytja sauðnaut til Íslands frá Grænlandi og ala þau á Vestfjörðum. Hann telur mögulegt að skapa þeim góð skilyrði, enda mikið landsvæði þar ónotað með öllu. 31.5.2012 18:19
Kosningamiðstöð Herdísar opnar á laugardaginn Stuðningsmenn Herdísar Þorgeirsdóttur munu formlega opna kosningamiðstöð að Laugavegi 87 næstkomandi laugardag, klukkan 13:00. 31.5.2012 18:02
Strípalingar í umferðinni Fjórir ungir menn tóku upp á því að afklæðast og spranga svo um Strandveg í Grafarvogi berir á tólfta tímanum í gær. Uppátækið fór fyrir brjóstið á einhverjum vegfarendum og lögreglan var kölluð á svæðið. Þegar lögreglan kom á vettvang voru strípalingarnir á bak og burt og höfðu vel að merkja haft föt sín með sér. 31.5.2012 17:55
Styrkir til doktorsnema og vísindamanna Tuttugu og fjórum vísindastyrkjum var úthlutað úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands í Hátíðasal háskólans í dag. Styrkirnir nema samanlagt um 160 milljónum króna. 31.5.2012 17:41
Drekinn er lentur Starfsmenn bandaríska fyrirtækisins SpaceX fögnuðu ákaft þegar Dragon-birgðahylkið lenti í Kyrrahafinu við strendur Kaliforníu fyrir stuttu. 31.5.2012 16:52
Jóhanna kemur heim í fyrramálið Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tók þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins sem lauk í dag í Stralsund í Þýskalandi. Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlöndin fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu. 31.5.2012 16:45
Svör Herdísar Þorgeirsdóttur við spurningum Vísis Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi svarar spurningum Vísis um helstu áherslumál sín sem snerta forsetaembættið og viðhorf sín til þess: 31.5.2012 16:21
Flateyringar þurfa að aka 22 kílómetra til þess að komast í banka Bæjarráð Ísafjarðarbæjar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Landsbankans að loka útibúum sínum á Bíldudal, Króksfjarðarnesi, Flateyri og í Súðavík að því er fréttavefurinn bb.is greinir frá. 31.5.2012 16:15
Gera stjórnsýsluúttekt á þróun fornleifarannsókna á Íslandi Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur ákveðið að láta gera stjórnsýsluúttekt á stöðu og þróun fornleifarannsókna á Íslandi á árunum 1990 – 2010 samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. 31.5.2012 15:56
Fjölmiðlanefnd ætlar ekki að aðhafast vegna kvörtunar Fjölmiðlanefnd ætlar ekki að aðhafast vegna kvörtunar Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, vegna ákvörðunar Stöðvar 2 um að ræða einungis við tvo frambjóðendur til forsetakosninga af sjö. 31.5.2012 15:24
Breivik sagður hafa tekið inn lyfjakokteil Talið er að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafi tekið inn blöndu af örvandi lyfjum stuttu áður en hann framdi ódæðisverk sín í júlí á síðasta ári. 31.5.2012 14:50