Annþóri og Berki bannað að mæta fyrir dóm 2. júní 2012 04:00 Sigmundur Geir Helgason, Simbi, er ákærður í öllum málunum en neitar sök. Faðir hans (til hægri) mætti til að fylgjast með þinghaldinu, en yngri sonurinn er þar einnig ákærður.Fréttablaðið/gva
Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson fengu ekki að mæta við þingfestingu ákæru á hendur þeim í Héraðsdómi Reykjaness í gær þrátt fyrir óskir þar um. Annþór og Börkur sitja nú í einangrun á Litla-Hrauni grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana og verjendum þeirra var tilkynnt um það í gærmorgun að vegna rannsóknarhagsmuna fengju þeir ekki að mæta í dómssal á meðan. Verjendurnir tveir létu bóka mótmæli við þessa ákvörðun við þingfestinguna í gær og sögðu að hún bryti gegn mannréttindum skjólstæðinga þeirra, sem hefðu viljað vera viðstaddir og taka afstöðu til ákæruatriðanna. Það munu þeir þurfa að gera síðar. Þrjár ákærur voru teknar fyrir á sama tíma í þinghaldinu og sameinaðar í eitt dómsmál. Alls eru þrettán ákærðir í málunum, þar af einn í þeim öllum. Sá heitir Sigmundur Geir Helgason, kallaður Simbi, og er liðsmaður Hells Angels. Fyrsta ákæran snýr að þremur hrottalegum líkamsárásum. Tvær þeirra leiddu Annþór og Börkur og Annþór einn þá þriðju. Átta eru ákærðir með þeim fyrir aðild að árásunum. Önnur ákæran snýr að árás á dekkjaverkstæði, en hvorki Annþór né Börkur komu þar nærri. Sú þriðja, gegn Sigmundi einum, snýr að vörslu á fíkniefnum. Sigmundur og hinir tíu sem mættu fyrir dóminn neituðu sök að svo til öllu leyti eða tóku sér frest til að taka afstöðu.- sh
Mál Annþórs og Barkar Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Fóturinn tekinn af Glettu eftir að hún steig í minkagildru Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sjá meira