Fleiri fréttir

Höfum ekki stöðvað neitt mál

Gera ætti róttækar breytingar á þingsköpum til að koma betri reglu á þingstörfin, að mati Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann segir Stíg Helgasyni þó að staðan á Alþingi núna sé alfarið stjórnarflokkunum að kenna.

Málflutningur í Exeter-málinu

Málflutningur í Exetermálinu svonefnda fer fram í dag í Hæstarétti. Málið snýst um meint umboðssvik vegna útlána Byr sparisjóðs til félagsins Exeter Holding. Lánið var notað til þess að kaupa stofnfjárbréf af MP banka og tveimur stjórnarmönnum Byrs á yfirverði.

Endurskoða reglur um hælisleitendur

UNICEF hvatti stjórnvöld í gær til þess að virða Barnasáttmála og Flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, vegna máls tveggja alsírskra hælisleitenda sem dæmdir voru fyrir skjalafals. Innanríkisráðherra boðar endurskoðuð lög í haust.

Ólafur Ragnar um eiturlyfjavandann: Einfaldar aðferðir duga best

Ólafur Ragnar Grímsson forseti segir ekki mjög flókið verk að uppræta eiturlyfjavandann. Forsetinn er staddur á Írlandi þar sem hann tók þátt í ráðstefnu sem bar yfirskriftina "Evrópskar borgir gegn eiturlyfjum" en hann fékk sérstaka viðurkenningu á ráðstefnunni fyrir vel unnin störf í þágu ungmenna.

Kirkjan sætti meira aðhaldi fyrir mistök

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir mistök hafa verið gerð varðandi fjárúthlutanir til þjóðkirkjunnar og annarra skráðra trúfélaga landsins. Ríkið hefur ekki greitt neinar verðbætur með úthlutunum sóknargjalda síðan eftir bankahrunið, eins og gilt hefur hjá öðrum opinberum stofnunum.

Orð Baracks Obama vekja sterk viðbrögð

Stuðningsyfirlýsing Bandaríkjaforseta við hjónabönd samkynhneigðra hefur vakið sterk viðbrögð víða um heim, bæði þeirra sem eru sammála honum og hinna sem eru andvígir. Víða sæta samkynhneigðir enn harðri andstöðu.

Mannskæðasta árás frá byrjun

Tvær sprengjuárásir sjálfsvígsmanna kostuðu að minnsta kosti 55 manns lífið í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Nærri 400 manns eru særðir.

Jörðin í áður óséðu ljósi

Rússneska geimferðastofnunin hefur birt eina nákvæmustu mynd sem tekin hefur verið af Jörðinni. Ljósmyndin er 121 megapixlar — sem þýðir að hver myndeining er kílómetri að lengd.

Sérkennilegur fæðingarblettur kom fjölskyldu til bjargar

Eftir að hafa betlað árum saman á götum Lashgar Gah í Afganistan hefur hinn níu ára gamli Gran nú fengið nokkur hundruð þúsund krónur í gjöf frá velunnurum. Ástæðuna fyrir þessu má rekja til heldur sérstaks fæðingarbletts á síðu piltsins.

Svavar Örn ánægður - slaufan á Jónsa samt eins og smekkur

"Mér líst alveg rosalega vel á þau. Þetta er fallegt og þjóðlegt og það er gaman að sjá að það er engin flugeldasýning í gangi," segir Svavar Örn Svavarsson, hágreiðslumaður og tískulögga, um klæðnað Jónsa og Grétu Salóme sem keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision sem fram fer í Aserbaídsjan eftir rúmar tvær vikur.

Sá hlær best sem síðast hlær — Innflutningsteiti í kirkjugarðinum

Mikið hefur verið rætt um stutta tilkynningu Karls nokkurs Albrecht sem birtist í fréttablaðinu Abendblatt fyrr í vikunni. Karl vildi koma því á framfæri að hann væri fluttur og að öllum væri boðið í innflutningsteiti. Karl lést í síðasta mánuði. Teitið mun fara fram í kirkjugarðinum.

Færri snúa aftur í fangelsin hér en á Norðurlöndunum

"Við erum svo heppin með það að 76 prósent af þeim sem losna úr fangelsum hér á landi eru ekki búnir að fá nýjan dóm eftir 2 ár. Hlutfallið er miklu hærra á hinum Norðurlöndunum,“ segir Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun.

Hafnar tölum um efnahagsskaða - orkan selst ekki

Virkjanastopp sem ríkisstjórnin boðar í rammaáætlun þýðir að hagvöxtur verður 4-6% minni en ella og Ísland verður af fimm þúsund ársverkum, að mati greiningarfyrirtækis, sem reiknar með 270 milljarða króna fjárfestingatapi. Á Alþingi í dag sagði iðnaðarráðherra þessar tölur byggðar á veikum grunni.

Var níu daga í fangelsi á Suðurnesjum

Fimmtán ára gamli drengurinn sem dæmdur var í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til landsins var í haldi í níu daga í fangelsi á Suðurnesjum. Hann segist hafa liðið hræðilega og finnist hann í fyrsta skipti öruggur hjá fósturfjölskyldu sinni.

Sjálfstýrður bíll frá Google

„Það er töluvert síðan að þessi tækni kom til sögunnar. Menn hafa verið að gera þetta hver í sínu horni en nú eru menn farnir að keyra þetta meira saman," segir Ólafur Guðmundsson hjá FÍB, um nýja sjálfstýrða bílinn frá Google, í samtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Verða glæsileg í Aserbaídsjan

Þau Gréta Salóme og Jónsi verða glæsileg á sviðinu í Aserbaídsjan eftir rúmar tvær vikur en þau opinberuðu í dag fatnaðinn sem þau ætla að klæðast. Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag eiga þær Rebekka Ingimundardóttir og Elma Bjarney Guðmundsdóttir heiðurinn að klæðaburði íslenska hópsins í ár. Vinir Sjonna, sem kepptu í Eurovision í fyrra, tóku lagið þegar fatnaðurinn var kynntur í dag. Þetta var síðasti viðburðurinn sem þau Greta Salóme og Jónsi tóku þátt í en þau halda af stað til Aserbaídsjan á laugardaginn.

Karl Bretaprins fór með veðurfréttir

Vafalaust hafa nokkrir rekið upp stór augu þegar Karl Bretaprins, ríkisarfi að bresku krúnunni, birtist á sjónvarpsskjám Breta nýverið.

Heiðar Már stefnir Seðlabankanum - mál gegn Heiðari fellt niður

Bæði ríkissaksóknari og sérstakur saksóknari hafa fellt niður rannsókn máls á hendur fyrirtæki í eigu Heiðars Más Guðjónssonar fjárfestis, sem hafin var af Seðlabanka Íslands. Heiðar Már fullyrðir að rannsóknin hafi orðið til þess að hann var útilokaður frá viðskiptum með hlutafé í vátryggingafélaginu Sjóvá Almennum tryggingum hf.

Í lagi að hjólreiðamenn séu á akbrautum

Vegfarendur á hjóli hafa fullan rétt á að vera á akbrautum, segir í orðsendingu sem Umferðarstofa hefur sent fjölmiðlum vegna þeirra fullyrðinga Áreksturs.is að hjólreiðamenn hafi valdið árekstrum í umferðinni. Árekstur.is fullyrti í morgun að hjólreiðamenn ættu ekki að vera á akbrautum.

Tala látinna hækkar í Damaskus

Tala látinna í kjölfar sjálfsmorðssprengjuárása í sýrlensku borginni Damaskus fer hækkandi. Samkvæmt innanríkisráðuneyti Sýrlands létust að minnsta kosti 55 í tilræðinu og rúmlega 370 særðust, margir alvarlega.

Karlmenn verði 10% leikskólastarfsmanna árið 2050

Stefna á að því að karlmenn verði 10% starfsmanna á leikskólum árið 2050, samkvæmt tillögum um aðgerðir til að efla leikskólastigið. Tillögurnar voru unnar af starfshóp á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Markmiðum er skipt niður í langtíma- og skammtímamarkmið.

Íslensk hjón bíða eftir barni í Kólumbíu

Íslensk hjón hafa dvalið í Kólumbíu í rúma fjóra mánuði og beðið eftir að ættleiða kólumbískt barn. Ættleiðingin hefur dregist úr hófi fram og hafa íslensk yfirvöld blandað sér í málið.

Gera athugasemdir við að Geysissvæðið fari í verndarflokk

Eigendur Geysis í Haukadal gera verulegar athugasemdir við að Geysissvæðið skuli sett í verndarflokk í rammaáætlun án samráðs við landeigendur og segja það skýlaust brot á stjórnsýslulögum. Þeir segjast geta haft tugi milljóna í árlegar tekjur með því að leigja orkuauðlindina.

Veðurstofan varar við kuldakasti um helgina

Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á slæmri veðurspá fyrir nk. sunnudag og mánudag. Ferðafólki, bændum, sjómönnum og öðrum sem eru háðir veðri í leik og starfi er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir.

Rétt að endurskoða reglur og siði um komu flóttamanna

Ögmundur Jónassson, innanríkisráðherra, telur rétt að endurskoða reglur og siði varðandi komu flóttamanna hingað til lands. Þetta kom fram í máli ráðherra á Alþingi í morgun þegar rætt var um alsírsku drengina sem voru handteknir á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði. Þingmaður Samfylkingarinnar dregur í efa að barnaverndarsáttmáli Sameinuðu þjóðanna hafi verið virtur í málinu.

Hryðjuverk í Damascus - 40 látnir

Mikið öngþveiti ríkir í Damascus, höfuðborg Sýrlands, eftir að tvær sprengjur sprungu í borginni í morgun. Að minnsta kosti 40 létust í sprengingunum og um 170 særðust, margir hverjir alvarlega.

Óljóst hvenær Björk byrjar að syngja á ný

Alveg óljóst er hvenær Björk Guðmundsdóttir mun geta sungið opinberlega að nýju, segir Guðmundur Gunnarsson faðir hennar. Björk hefur verið í hvíld frá tónleikahaldi að undanförnu að læknisráði en læknar fundu hnúð á raddböndum hennar.

"Bryggjuball“ á Djúpavogi

Óvænt vertíðarstemmning ríkir nú á Djúpavogi og komu um það bil 40 strandveiðibátar þangað til hafnar að loknum veiðidegi í gærkvöldi.

Sóttu slasaðan vélhjólamann

Maður féll af vélhjóli í grennd við Kleifarvatn um ellefu leitið í gærkvköldi, og meiddist í fallinu. Þetta gerðist á slóða í nokkurri fjarlægð frá þjóðveginum.

Lögðu fram nýja lögbannskröfu

Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda lögðu í gær fram nýja lögbannskröfu hjá sýslumanninum í Reykjavík, þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána. Sýslumaður hafnaði lögbannskröfu þessa efnis þann 27. apríl síðastliðinn á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega skýrt afmörkuð.

Ólympíuloginn tendraður

Kveikt verður í Ólympíukyndlinum við hátíðlega athöfn í borginni Ólympíu í Grikklandi síðar í dag. Síðan verður hlaupið með logann í boðhlaupi um allt Grikkland uns hann verður fluttur til Bretlands.

Fundu brak rússneskrar farþegaþotu

Yfirvöld í Indónesíu segjast hafa fundið brakið af rússneskri farþegaþotu sem fórst í landinu í gær. Vélin, sem kallast Sukhoi Superjet hvarf af radar fimmtíu mínútum eftir flugtak í höfuðborginni Jakarta en vélin var í stuttu kynningarflugi með um fimmtíu manns innanborðs.

Risafugl á flugi yfir Reykjanesbæ

Mjög sérstætt skýjafar sást víða af Reykjanesi um ellefu leytið í gærkvöldi, þegar skýjaslæða á annars heiðum himni tók á sig hinar ýmsu kynjamyndir.

Pútín mætir ekki á G8 fundinn

Vladimir Putin, sem aftur er kominn á forsetastól í Kreml, ætlar ekki að mæta á G8 fundinn síðar í þessum mánuði þar sem helstu leiðtogar heimsins hittast og ráða ráðum sínum. Pútin hefur tilkynnt Obama bandaríkjaforseta þessa ákvörðun sína en hann segist eiga of annríkt þar sem hann sé að leggja ráðherrakapalinn í ríkisstjórn Rússlands.

Þriðja tilraun gerð til stjórnarmyndunar

Tilraun Vinstrimanna á Grikklandi til stjórnarmyndunar fór út um þúfur í gær og nú er röðin komin að leiðtoga þriðja stærsta flokks landsins að gera tilraun. Formaður Pasok flokksins, Evangelos Venizelos, er þó ekki talinn líklegur til að takast það ætlunarverk og því veðja flestir á að blása verði til kosninga að nýju í landinu.

Segja herbúðasnið slæmt - hafa samt meiri áhyggjur af umferðinni

"Í bókuninni er líka gefið til kynna að líkamsrækt með herbúðasniði eigi lítið erindi í dalinn og dregið fram að líkamsræktarstöð á þessum stað fylgir mikil umferð bíla og rík þörf fyrir stæði. Þetta bílakraðak er auðvitað mesta áhyggjuefnið,“ skrifa fulltrúar Vg í skipulagsráði Reykjavíkurgborgar, þau Torfi Hjartarson og Sóley Tómasdóttir, í grein sem birtist á Vísi í dag.

Vilja láta taka á uppsöfnuðum halla ríkisstofnana

Ráðherrar þurfa að svara fyrir uppsafnaðan halla stofnana á fundi með fjárlaganefnd. Ríkisendurskoðun gagnrýnir skort á viðbrögðum vegna vandans og bendir á 19 stofnanir með mestan uppsafnaðan halla.

Greniskógi rutt burt vegna snjóflóðagarða

Ekki eru allir sammála um að reisa eigi snjóflóðagarða í hlíðinni fyrir ofan grunnskólann og sjúkrahúsið á Patreksfirði. Íbúi segir gríðarleg náttúruspjöll verða við framkvæmdirnar. Veik rök að vilja verja hríslur, segir bæjarstjóri.

Bæjaryfirvöld losi þau undan tóbaki

Krakkarnir í 7. M í grunnskólanum í Þorlákshöfn hafa skorað á bæjaryfirvöld í Ölfusi að gæta þess að tóbaksnotkun við byggingar og á lóðum sveitarfélagsins trufli ekki þá sem ekki nota tóbak.

Sjá næstu 50 fréttir