Vilja láta taka á uppsöfnuðum halla ríkisstofnana 10. maí 2012 09:30 Starfsfólk Landspítalans fjölmennti á þingpalla í nóvember síðastliðnum þegar rædd voru fjárlög þessa árs. Landpítalinn hefur mátt þola mikinn niðurskurð síðustu ár og er með langmestan skuldahala frá fyrri árum. Fréttablaðið/GVA
Til stendur að kalla ráðherra á fund fjárlaganefndar Alþingis vegna skuldahala ríkisstofnana. Í ábendingu Ríkisendurskoðunar í gær var kallað eftir slíkum fundi. Í henni áréttar Ríkisendurskoðun að taka verði á vanda stofnana sem sitji uppi með verulegan uppsafnaðan rekstrarhalla frá fyrri árum. „Að mati stofnunarinnar þjónar engum tilgangi að láta slíkan halla hvíla á stofnunum ef ekki er talið raunhæft að ætla að þær muni geta greitt hann upp,“ segir þar. Ríkisendurskoðun telur upp 19 stofnanir sem stóðu með hlutfallslega mestan uppsafnaðan halla í árslok 2011. Þar af eru þrjár sem ekki voru með neinn halla árið á undan. Þá kemur einnig fram að sumar þessara stofnana hafi verið reknar innan fjárlaga hvers árs undanfarin ár, en ekki getað unnið á uppsafnaða hallanum. Þar á meðal eru Landspítalinn og lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Landspítalinn er með langmestan uppsafnaðan halla, eða tæpa þrjá milljarða króna. Þar á eftir kemur Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu með 449 milljóna króna halla og svo Landbúnaðarháskólinn með 317 milljóna króna halla. „Samkvæmt gildandi reglum skulu rekstraráætlanir stofnana rúmast innan fjárheimilda þeirra. Þetta þýðir að ráðuneyti mega ekki samþykkja rekstraráætlanir nema að þar sé gert ráð fyrir að halli frá fyrri árum, sé um hann að ræða, verði að fullu greiddur á viðkomandi ári. Engu að síður eru dæmi um að ráðuneytin hafi samþykkt áætlanir þar sem ekki var gert ráð fyrir slíkri uppgreiðslu,“ bendir Ríkisendurskoðun á og hvetur fjárlaganefnd til að kalla menntamálaráðherra, innanríkisráðherra, velferðarráðherra og umhverfisráðherra á sinn fund og krefja þá svara um hvernig tekið verði á rekstrarvanda stofnana með verulegan uppsafnaðan halla. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar, segir að fyrr á árinu hafi nefndin fundað með ráðuneytisstjórum hluta þessara ráðuneyta, auk þess sem farið hafi verið yfir veikleikamat fjármálaráðuneytisins á framkvæmd fjárlaga 2012. Hún kveðst fagna ábendingu Ríkisendurskoðunar, sem sé í takt við þá vinnu sem þegar hafi verið hafin á vettvangi nefndarinnar. Á næstu dögum verði kallaðir fyrir nefndina þeir ráðherrar sem málið varðar. „Enda var það niðurstaða okkar í nefndinni, eftir að hafa fundað með ráðuneytisstjórunum, að eðlileg næstu skref væru að fá til fundar ráðherra sem bera á málinu pólitíska ábyrgð.“ Í framhaldinu segir hún standa til að fjárlaganefnd skili, í fyrsta sinn, skýrslu til Alþingis um framkvæmd fjárlaga 2012, en nefndin hafi, af því tilefni, fundað um uppfært veikleikamat með Ríkisendurskoðun og fjármálaráðuneyti í gær. - óká
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira